blaðið - 30.06.2006, Síða 2
2IFRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2006 blaöiö
blaóió^=
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700 •www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Maradona þarf ekki að hafa áhyggjur
af vangoldnum gjöldum. Hann verður á
vellinum í dag.
Skatturinn herjar
á HM-fíkla
Argentínsk skattayfirvöld herja á
einstaklinga sem vel liggja við höggi
þessa dagana. Starfsmenn skattstjór-
ans í Buenos Aires, höfuðborg lands-
ins, hafa í þessari viku farið inn á
heimili þeirra sem ekki hafa greitt
skattinn sinn og tekið sjónvörp
þeirra sem tryggingu. Hefur að-
gerðin sett gríðarlega pressu á knatt-
spyrnuóða Argentínumenn sem
skulda skattinum, ekki síst þar sem
Argentína leikur á móti Þjóðverjum
í átta liða úrslitum heimsmeistara-
keppninnar í dag.
Aðgerðin er enn einn liðurinn í
herferð Santiago Montoya, aðalskatt-
heimtumanns Buenos Aires og nær-
sveita, gegn landlægu skattasvindli
í Argentínu. Montoya hefur áður
staðið að umdeildum aðgerðum
til þess að setja þrýsting á þá sem
skulda skatt. Hann hefur látið emb-
ættismenn skrifa mökum skuldara
bréf, sem og ítrekað kröfur um skil
á sköttum með því að leggja inn
skilaboð á talhólf skuldaranna.
Meistaflug við höfnina
Þaö sindrar ekki aðeins af vesturgluggum sem brenna I húsunum, því í slippnum neistar enn af skipsskrokkunum. Senn hljóöna þó
hamarshöggin þar, því á slippsvæðinu í Reykjavík á aö rísa huggulegt bryggjuhverfi. Fyrir viðkvæm eyru íbúanna myndi sjálfsagt iskra
of hátt í hjólum atvinnulífsins.
Ánægja með
sjúkraþjálfara
Rúmlega 6o% þeirra sem leitað hafa
til sjúkraþjálfara einhvern tíma á æv-
inni segja að meðferðin hafi dregið úr
notkun verkjastillandi og bólgueyð-
andi lyfja. Þá segja yfir 80% þeirra
sem til sjúkraþjálfara hafa leitað að
meðferðin hafi haft frekar eða mjög
góð áhrif á starfsþrek sitt þegar til
lengri tíma væri litið.
Þetta er ein af niðurstöðum nýrrar
könnunar sem Félagsvísindastofnun
hefur unnið fyrir Félag sjálfstætt
starfandi sjúkraþjálfara.
í tilkynningu frá félaginu í gær
segir meðal annars um niðurstöður
könnunarinnar:
„í könnuninni var almennur hluti
þar sem spurt var um viðhorf til
sjúkraþjálfara og þekkingu á starfi
þeirra. I sérstökum hluta könnunar-
innar voruþeirsíðan einungis spurðir
sem leitað höfðu til sjúkraþjálfara. I
almenna hlutanum kom fram að nær
allir, eða 97,4% aðspurðra, voru ann-
aðhvort jákvæðir eða mjög jákvæðir
gagnvart starfi sjúkraþjálfara. Meðal
þeirra sem höfðu leitað til sjúkraþjálf-
ara voru litlu færri eða 87% ánægð
með meðferðina."
Aöstööuleysi veldur utanvegaakstri
Átaki gegn utanvegaakstri var ýtt úr vör í gær. Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra segir það á
hendi stjórnvalda að rétta aðstaðan fyrir ökutæki sé fyrir hendi. Átaki ýtt úr vör í gær.
Eftir Atla (sleifsson
Jónína Bjartmarz
Jónína Bjart-
marz.umhverf-
isráðherra,
segir utanvega-
aksturvaxandi
vandamál sem
stafi aðallega
af aukningu (
innhlutningi,
bæði á stórum
t 0 r f æ r u -
jeppum og tor-
færuhjólum.
„Torfæruhjólin
telja nú hátt
í 4.000. Vand-
inn eins og
hann horfir
við okkur er til-
tekið aðstöðu-
leysi fyrir tor-
færuhjólin,
segir Jónína
í samtali við
Blaðið.
Umhverfisspjöll af völdum öku-
manna torfæruhjóla og jeppa hafa
aukist mikið á undanförnum árum.
Þó að vandinn sé landlægur er hann
einna mestur á suðvesturhorni
landsins, ekki síst á Reykjanesi og
í nágrenni höfuðborgarsvæðisins.
Átakinu „Áfram veginn - á réttum
slóðum“, sem er átak gegn utan-
vegaakstri á Islandi, var ýtt úr vör
im
Benedikt Magnússon
í gær. Ferðaklúbburinn 4x4 og Vél-
hjólaíþróttaklúbburinn standa fyrir
átakinu í samvinnu við Ferðafélag
Islands, Útivist, Umhverfisstofnun,
Landgræðsluna, Landvernd, Poka-
sjóð og fleiri aðila.
Vakningarherferð
Jónína segir þetta vera vakningarher-
ferð sem á að sporna gegn akstri utan
vega, bæði með aðhaldi og fræðslu.
„Þetta er mjög jákvætt framtak sem
byggir á félagslegu aðhaldi. Kenna
á þeim sem eiga þessi tæki og vilja
njóta náttúrunnar á þennan hátt að
umgangast hana og virða. Það eru
samtökin sjálf sem eiga frumkvæði
að og standa fyrir þessu í samstarfi
við aðra aðila."
Jónína segist horfast í augu við
að eitthvað verði einnig að koma á
móti frá stjórnvöldum í baráttunni
gegn utanvegaakstri. „Gagnvart öku-
mönnum torfæruhjóla og jeppa er
þetta einnig spurning um aðstöðu.
Fjallvegir og slóðar verða að vera vel
merktir með stikum svo að fólk valdi
ekki tjóni í ógáti. Það er á hendi ríkis
og sveitarfélaga að rétta aðstaðan sé
fyrir hendi,“ segir Jónína.
Árvisst vandamál
Benedikt Magnússon, formaður
Ferðaklúbbsins 4x4, segir að með
átakinu vilji þeir aðilar sem að því
koma stuðla að því að innlendir jafnt
sem erlendir ferðamenn geti notið
fegurðar náttúrunnar um ókomin
ár. „Utanvegaakstur er árvisst vanda-
mál. Átakið felur í sér að við ætlum
að vera með kynningu og áróður, þar
sem hvatt verður til þess að fólk sýni
náttúrunni virðingu og aki einungis
á löglegum slóðum og haldi sig á
þeim,“ segir Benedikt.
Að sögn Benedikts hefur vandinn
verið viðvarandi lengi. „Ferðaklúbb-
Mynd/RAX
urinn 4x4 hefur áður staðið fyrir
svona átaki sem olli talsverðri hugar-
farsbreytingu hjá jeppamönnum, en
þó hvergi nærri nóg. Það þarf stöðugt
að minna ökumenn á að halda sig á
réttum slóðum,“ segir Benedikt.
atlii@bladid.net
Mikið úrval af LCD flatskjám og lofftnetum
Tiivalið í ferðalagið
20" LCD 12V/220
Jieico
SKÚTUVOGI 6
SÍMI 570 4700 • www.eico.is
D HefðsWrtÍw^; ■ Uttskýjaíá**. SkýjaS Alskýjað^jí^ Rigning.lítilsháttar^-^Rigningi*— Súlrl ■ -* Snjókoma" ■ siydda^íSl. Snjðél ---s
jJUJjjli'
Algarve 23
Amsterdam 22
Barcelona 27
Berlín 24
Chicago 18
Dublin 15
Frankfurt 24
Glasgow 16
Hamborg 20
Helsinki 21
Kaupmannahöfn 20
London 25
Madríd 34
Mallorka 30
Montreal 16
New York 21
Oríando 24
Osló 22
Paris 25
Stokkhólmur 24
Vín 20
Þórshöfn 12
A morgun
Veðurhorfur í dag
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands