blaðið - 30.06.2006, Blaðsíða 23
blaöiö FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2006
HEIMSPEKI I 23
Mannvinurinn Rudolf Steiner
hann að hjálpa til í matjurtagarði
foreldra sinna af miklum móð og
kynntist hann því fljótt bæði lif-
andi náttúru og tækni sinnar aldar.
Steiner varð líka fyrir miklum
áhrifum af kenningum kirkjunnar
og leitaði þangað eftir skýringum
sem náttúruvísindin gátu ekki
gefið.
Kant og flatarmálsfræði
Faðir Steiners vildi að hann yrði
verkfræðingur og þess vegna var
hann, tíu ára gamall, látinn fara í
gagnfræðaskóla þar sem áhersla
var lögð á stærðfræði og náttúru-
fræði. Hann hafði sérstaklega
gaman af flatarmálsfræði og náði
snemma mikilli færni á því sviði.
Þegar Steiner var þrettán ára gam-
all, keypti hann sér verk þýska heim-
spekingsins Kants, sem þá voru ný-
komin út í hentugri útgáfu.. Steiner
leiddist i tímum í mannkynssögu
og er til fræg saga af því þegar hann
tók bindi úr verkum Kants í sundur
og límdi blöðin úr því inn í kennslu-
bókina i sögu og las svo heimspeki
Kants í sögutímum. Hann hafði
líka áhuga á að læra fornmálin og
keypti kennslubækur í grísku og
latínu og lærði þau tungumál upp
á sitt eindæmi.
Ritstörf í Þýskalandi
Steiner varð snemma bókhneigður
og þegar hann varð átján ára hóf
hann að læra stærðfræði, efna-
fræði, eðlisfræði og náttúrusögu
við Tækniháskólann í Vín. Þegar
hann var aðeins 21 árs fékk hann
það spennandi verkefni i sínar
hendur að búa verk Goethes um
náttúruvísindi til útgáfu. Hann
sá fyrir sér með því að taka að sér
einkakennslu í Vín. Á þrítugsaldr-
inum tók hann einnig þátt í þvi að
skrifa alfræðiorðabók sem lengi
var talin sú besta sinnar tegundar á
þýska tungu. Árið 1891 varði hann
doktorsritgerð sína við Háskólann
í Rostock og fjallaði ritgerðin um
undirstöður kenninga þýska heim-
spekingsins Fichtes.
Árið 1980 fluttist Steiner til
Þýskalands og þar fékkst hann við
Kenn ingar Steiners hafa haft mikil áhrif á skólamál
ýmis ritstörf og útgáfuvinnu. Hann
gaf m.a. út verk Schopenhauers í
12 bindum. Einnig ritstýrði hann
þekktu bókmenntatímariti og var
ákaflega vinsæll fyrirlesari. Orðstír
hans náði langt út fyrir landamæri
Þýskalands. Um tíma var Steiner
mjög upptekinn af guðspeki og
starfaði í slíkum félagsskap þar
til alheimsforseti guðspekinga
hélt því fram að indverski dreng-
urinn Krishnamurti væri Kristur
endurborinn.
Fyrsti Waldorfskólinn
Eftir að hafa snúið frá guðspekinni
hóf Steinar að boða mannspeki-
stefnu þar sem hann fléttaði saman
náttúru- og mannvísindum. Kjarni
hugmyndanna var svo sannarlega
heimspekilegur en hugmyndirnar
voru einnig mjög hagnýtar og unnt
var að hrinda þeim í framkvæmd í
mörgum ólíkum greinum, t.d. land-
búnaði.læknisfræðiogbyggingalist.
Kenningar Rudolfs Steiners hafa þó
líklega haft mest áhrif í uppeldis-
og skólamálum. Árið 1919 var Rud-
olf fenginn til þess að stofna skóla
fyrir börn verkamanna í Stuttgart
sem var kostaður af forstjóra tób-
aksfyrirtækisins Waldorf-Astoria.
Það var fyrsti Waldorf skólinn
en þeir eru nú starfandi víða um
heim. Hugmyndir Waldorfs náðu
sérstaklega til þeirra sem önnuðust
þroskaheft börn. Hugmyndir Stein-
ers grundvallast á meðvitund um
efnislega og andlega krafta manns-
ins. Hann taldi mikilvægt að listir,
tónlist og handmennt væru allt
eins mikilvægar námsgreinar og
lestur, ritun og reikningur. Siðferði-
legir og félagslegir þættir skipuðu
einnig veglegan sess og hann sá
kennarann sem mikilvægan upp-
alanda. Steinar taldi mikilvægt að
hlúa sérstaklega vel að börnum á
fyrstu árunum því þá væri lagður
grunnurinn að allri ævinni.
Rudolf Steiner
Hinn fjölhæfi fræðimaður
Rudolf Steiner fæddist árið
1861 þorpinu Kraljevec sem
þá tilheyrði Austur-ungverska
keisaradæminu en er í dag partur
af Króatíu. Faðir hans var stöðvar-
stjóri hjá járnbrautum ríkisins, en
vegna starfs hans þurfti fjölskyldan
oft að flytjast búferlum. Þegar
Steiner var barn að aldri lék hann
sér í skóginum og á ökrunum þar
sem hann kynntist lífi bændafólks.
Þessi þáttur í uppvextinum hafði
mjög mótandi áhrif á allt hans líf og
kenningar seinna meir.
Steiner dvaldi löngum stundum
hjá föður sínum á járnbrautarstöð-
inni, þar sem járnbrautir, klukkur
og tæki af ýmsu tagi vöktu áhuga
hans. Þegar hann varð eldri fór
Heimsmynd
McGahern
Rithöfundurinn John McGahern
lést fyrr á þessu ári. Skömmu
fyrir lát hans kom út sjálfsævi-
saga hans sem ber þann látlausa
titil Memoir. Bókin hefur notið
mikilla vinsælda síðan hún
kom út og lýsir McGahern þar
erfiðum uppvexti sínum á Irlandi
á fyrrihluta tuttugustu aldar,
Iitskrúðugri ævi og hugmyndum
sínum um skáldskapinn og veru-
lcikann sjálfan. McGahern ákvað
snemma að gerast rithöfundur.
Faðir hans var sérlega geðstirður
og það fór að halla undan fæti
þegar móðir hans dó ung að
árum. Fjölskyldan tilheyrði milli-
stétt og fékk McGahern strangkaþ-
ólskt uppeldi.
McGahren gekk menntaveginn
og starfaði lengst af við kennslu
meðfram ritstörfum. Á ferlinum
skrifaði McGahern sex skáldsögur
og þrjú smásagnasöfn sem öll hafa
mikla þýðingu fyrir bókmennta-
sögu írlands.
Fáir höfðu meira vald yfir smá-
sagnaforminu en John McGahern
og í sögum hans birtist einstæð nátt-
úrusýn og mynd af írlandi sem er
ekki hægt að nálgast annars staðar.
Hann þurfti eins og flestir aðrir
írskir rithöfundar að þola það að
Memoir
‘A gíowing nwstérplctc.' mt. vKt mamh
JOHN
McGAHERN
’VURnitwvnt .. M.mJ(s) Mtprtnic ín ihe ItivhjcjÁwn.'
vera borinn saman við James Joyce
og vegna þess að hann valdi sveitina
oftast sem sögusvið var honum oft
likt við Hardy. McGahern dundaði
sér við ýmis fræðistörf í gegnum tíð-
ina, var mjög dulur og forðaðist fjöl-
miðla eins og heitan eldinn. I sjálf-
sævisögu hans, Memoir, má fræðast
um heimsmynd McGaherns, ást
hans á landinu fagra og heimspeki
rithöfundarins.
LAMISIL
TERBINAFINE
...einu sinni á dag í viku drepur fótsveppinn
Það er engin ástæða til að láta sér liða ilia
á besta tima ársins.
Komdu og fáðu ráðgjöfhjá okkur.
t^Lyf&heilsa
Við hlustum!
Lamisil er borið á einu sinni á dag i eina viku. Hreinsið og þurrkið sýkt svæði vel áður en Lamisil er borið á. Bera skal Lamisil á í bunnu lagi á sýkta
húö þannig að það þekji allt sýkta svæðið. Lamisil er milt og veldur mjög sjaldan húðertingu. Lamisil inniheldur terbinafin sem er sveppadrepandi
(fungisid) efni og vinnur á sveppasýkingum í húð af völdum húðsveppa, gersveppa og litbrigðamyglu (“lifrarbrúnir blettir"). Lamisil á ekki að
nota gegn sveppasýkingum í hársverði, skeggi eða nöglum nema samkvæmt læknisráði. Það má ekki nota ef þekkt er ofnæmi fyrir terbinafini eða
öðrum innihaldsefnum í Lamisil. Geymist þar sem böm hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega leiðbeiningarseðil sem fylgir hverri pakkningu.