blaðið - 30.06.2006, Blaðsíða 28
28 I GÆLUDÝR
FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2006 blaöiö
Gefa hundunum
afmælisgjafir
Bretar segjast vera hundaelskandi þjóð.
Einn af hverjum þremur
hundaeigendum í Bret-
landi segist halda upp
» á afmæli hundsins síns
með því að gefa honum
gjöf eða gera eitthvað
sérstakt fyrir hann.
Þetta var ein niðurstaða
könnunar sem gerð var
þar í landi. 1.600 hunda-
eigendur tóku þátt í
könnuninni og sögðust
þeir sem gáfu dýrum
sinum afmælisgjafir
yfirleitt kaupa dót eða
jafnvel hundaföt. Þá
játaði einn af hverjum
». ío að hann skrifaði af-
mæliskort handa hundi
sinum þegar hann ætti
afmæli. „Að við komum
eins fram við hunda og fólk þegar það á afmæli sýnir best hversu hunda-
elskandi þjóð við erum,“ sagði Chris Price, sem stýrði könnuninni.
r
■
r*
i
r
\
Fyrir
hundinn
þinn
Mánudagmn 3. júlí
blaðið=
Augiysendur, upplysingar veita:
Kolbrún Ragnarsdóttir • Simi 510 3722 • Gsm 848 0231 • kolla@bladid.net
Magnús Gauti Hauksson • Sími 510 3723 • Gsm 691 2209 • maggi@vbl.is
Góðar líkur eru á að þessi bandaríski hundur beri nafnið Max.
Max og Maggie
vinsœlust
Bandaríska heilbrigðiseftirlitið
gaf nýverið út lista yfir vinsælustu
hundanöfnin þar í landi. Listinn nær
að sjálfsögðu aðeins yfir hunda sem
eru skráðir en talið er að einungis
fimmti hver hundur sé skráður þar í
landi. Listinn ætti þó að gefa nokkuð
raunhæfa mynd af því hvaða ío nöfn
eru mest notuð á hunda og tíkur í
Bandaríkjunum. Hér getur að líta ío
vinsælustu nöfnin í hvorum flokki:
Vinsælustu nöfn á tíkur:
1. Maggie
2. Molly
3. Lady
4. Sadie
5. Lucy
6. Daisy
7. Ginger
8. Abby
9. Sasha
10. Sandy
Vinsælustu nöfn á hunda:
1. Max **'4
2. Jake
3. Buddy
4. Bailey ,
5. Sam .. *
6. Rocky
7. Buster
8. Casey 'þ'Y , '
9. Cody
10. Duke
Þúsund rottur
á heimilinu
67 ára gamall maður hefur verið
ákærður fyrir grimmd gegn
dýrum eftir að upp komst að
hann hafði yfir þúsund rottur á
heimili sínu í Kaliforníu í Banda-
ríkjunum. Maðurinn hélt því
fram að rotturnar einfaldlega
hændust að honum og honum
þætti ekki síður vænt um þær.
Hann játaði þó að rottubú sitt
hefði íarið úr böndunum enda
hafi hann ekki getað haft nokkra
stjórn á því hversu mikið þær fjöl-
guðu sér.
Nancee Tavares, starfsmaður
dýraeftirlitsins, sagði málið afar
óvenjulegt. „Það eru ekki margir
semhafa áhuga áþví að eiga rottu.
En þessi fjöldi er alveg ótrúlegur,“
sagði Tavares. Maðurinn sagðist
ekki hafa haft brjóst í sér að reka
rotturnar burt frá heimili sínu.
Snákar sem
breyta um lit
Vísindamenn hafa til rannsóknar
snáka sem fundust í Indónesíu og
geta að sögn breytt um lit líkt og
kameljón. Snákarnir fundust í Be-
tung-þjóðgarðinum á Borneó og
hafa verið nefndir Kapuas Mud
eftir á sem rennur um þann hluta
eyjunnar sem þeir fundust á.
Snákarnir eru um hálfs metra
langir og brúnleitir en geta breytt
um lit eftir því umhverfi sem þeir
eru í. Enn sem komið er hafa þeir
þó aðeins orðið hvítir og er ekki
vitað hvort þeir búi yfir fleiri
litum. „Ég setti rauðbrúnan snák
í dökklitaða fötu. Þegar ég sótti
hann nokkrum mínútum síðar
var hann orðinn nær alveg hvítur,“
sagði Mark Auliya, sem fann snák-
ana fyrstur manna. Ekki er vitað
hvað orsakar litabreytingarnar.
Aparnir fylgjast með HM
Órangútan vefur sig inn í enska fánann í dýragarði í Chester á Englandi í gær. Englendingar eru komnir í fjórðungsúrslit HM í knatt-
spyrnu, hvar þeir munu mæta Portúgölum á laugardag, og hafa dýrin ekki farið varhluta af því. Dýrin hafa verið fengin til að taka þátt í
alls kyns atburðum tengdum heimsmeistaramótinu en óljóst er hvort þau haldi í raun og veru með Englandi í keppninni.