blaðið - 30.06.2006, Side 6
FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2006 blaðið
TÖLVUVERSLUN
BRAUTARHOLT110-14 | S: 588 1000 | WWW.TASK.IS
Opið:
10-18 virka daga
12-16 laugardaga
Uikutilboú Task!
Alvöru fartölva!
Asus A6V
Skjár: 15.4" SXGA
Örgjörvi: Intel Pentium 1,73Ghz
Skjákort: ATi Radeon X700 Pro - 128mb
Minni: 512MB DDR2/ mest 1B
Harður diskur: 60GB - 4200rpm
Stýrikerfi: Windows XP Professional
Verðáður 139.900r
Verð nú 119.900,"
Öflug leikjavél!
Asus W2U
Skjár: 17" SXGA (1680x1050)
Örgjörvi: Intel Pentium Mobile 770 2,13Ghz|
Skjákort: ATI Radeon X700128MB
Minni: 1GB DDR2 / mest 2GB
Harður diskur: 100GB 5400rpm
Geisladrif: DVD double layer brennari
Stýrikerfi: Windows XP Pro
Og margt margtfleira!
Verðáður 229.000,"
Verð nú 209.900."
JHcyul
6 i frettÍr
Koizumi og Kóngurinn
Eftir fundarhöld forsætisráðherra Japans og George Bush, forseta
Bandaríkjanna, liggur leiðin til Graceland í Memphis í Tennessee.
Forsætisráðherra Japans, Junichiro
Koizumi, fundaði í gær með George
Bush, forseta Bandaríkjanna. Koiz-
umi er í sinni síðustu opinberu heim-
sókn til Bandaríkjanna en hann
mun láta af störfum sem forsætisráð-
herra í septembermánuði næstkom-
andi. Leiðtogafundir Bandarikjanna
og Japan vekja ávallt mikla athygli
enda eru þjóðirnar nánir banda-
menn sem deila sameiginlegum
áhyggjum af stöðu mála í Asíu og á
öðrum stöðum í heiminum. Á fund-
inum munu Bush og Koizumi meðal
annars ræða langdrægar eldflaugar
Norður-Kóreumanna og stuðning
Japana við Bandaríkin í hinu svokall-
aða „stríði gegn hryðjuverkum”.
En heimsókn Koizumis snýst
ekki eingöngu um viðræður um
brýn úrlausnarefni í heimi alþjóða-
mála. Stjórnvöld í Bandaríkjunum
eru að kveðja merkilegan stjórn-
málamann sem hefur verið dyggur
stuðningsmaður George Bush á al-
þjóðavettvangi og hefur að mörgu
leyti umbreytt japanskri utanrík-
isstefnu með þeim afleiðingum að
stuðningur Japana við Bandaríkin
er virkari og áþreifanlegri en áður.
Og til þess að sýna þakklæti sitt
ætlar George Bush að bjóða Junic-
hiro Koizumi með sér til Graceland í
I Jurdchiro Koizumi
I PniMWbl
| My Favortte Elvis Songs
I *
Diskurinn með 25 uppáhalds Presleylög-
um Koizumis er vinsæll í Japan
Memphis í Tennessee að loknum við-
ræðum um ástandið í alþjóðamálum
og samskipti ríkjanna. Forsætisráð-
herrann er nefnilega gríðarlegur El-
vis Presley aðdáandi og hefur lengi
beðið eftir tækifæri til þess að fara í
pílagrímsför til heimilis Kóngsins.
Junichiro Koizumi heillaðist
ungur af Elvis Presley og hefur sagt
að fyrsta lagið sem hann hafi heyrt á
ensku hafi verið „I Want You, I Love
You, I Need You” og í kjölfarið féll
hann kylliflatur fyrir hæfileikum
Junichero Koizumi, forsætisráðherra Japans, kom til Washington D.C í gær. Reuters
rokkgoðsins. Árið 1987 stóð hann
fyrir fjáröflun ásamt yngri bróður
sínum til að láta reisa styttu af
Presley. Styttan stendur nú í Hara-
juku-hverfinu í Tókýó.
Árið 2001, stuttu eftir að Koizumi
tók við starfi forsætisráðherra Jap-
ans, tók hann sér tíma til að standa
að útgáfu safndisks með tónlist Pres-
leys. Diskurinn, sem inniheldur 25
uppáhaldslög forsætisráðherrans
ásamt umfjöllun hans um þau, seld-
ist eins og heitar lummur í Japan.
Elvis áhrifabreyta í alþjóðamálum?
Aðdáun Koizumis á Elvis Presley
hefur einnig spilað hlutverk í starfi
hans sem stjórnmálamanns. Sagt
er að engum mannfagnaði á vegum
stjórnmálaflokks forsætisráðherr-
ans, Frjálslyndra demókrata, sé
slitið án þess að leiðtoginn komi
upp og taki „Love Me Tender” í kar-
íókí. Og á alþjóðavettvangi kann að
vera að áhugi Koizumis og aðdáun á
Presley hafi hjálpað til við að mynda
náin persónuleg tengsl við mikil-
væga bandamenn. Hermt er að þegar
Koizumi fundaði fýrst með Bush, á
búgarði hins síðarnefnda í Texas,
hafi hann tekið nokkur Elvis-lög
Kóngurinn hefur heillað fleiri ráðamenn
en Koizumi. Presley og Richard M. Nixon í
Hvíta húsinu á áttunda áratugnum.
við góðar undirtektir. Condoleezza
Rice þótti mikið til þekkingar Koiz-
umis á bandarískri dægurlagamenn-
ingu koma þegar þau hittust fyrst í
opinberum kvöldverði. Og Koizumi
og Alexander Downer, utanríkisráð-
herra Ástralíu, sungu tónlist Elvis
eitt sinn saman í kvöldverðarboði.
Junichiro Koizumi er merkur
stjórnmálamaður sem er bæði um-
deildur og vinsæll í Japan. Hann
er ólíkur mörgum fyrirrennurum
sínum sökum þess hve alþýðlegur
hann þykir. Heimsókn hans til
Graceland undirstrikar það og er
táknrænn lokapunktur á siðustu
opinberu heimsókn Koizumis til
Bandaríkjanna.
Einum sleppt úr gæsluvarð-
haldi vegna TR-málsins
Hlutur eins þeirra sem hnepptur var í gæsluvarðhald vegna fjár-
svikamálsins hjá Tryggingastofnun mun vera upplýstur að fullu.
Eftir Val Grettisson
Einstaklingi sem grunaður er um að-
ild að fjársvikum innan Trygginga-
stofnunar ríkisins hefur verið sleppt
úr gæsluvarðhaldi, samkvæmt Jóni
H.B. Snorrasyni, saksóknara efna-
hagsbrotadeildarríkislögreglustjóra.
Hlutur þess aðila mun vera upp-
lýstur að fullu. Kona á fertugsaldri
er grunuð um að hafa svikið alls 75
milljónir út úr Tryggingastofnun
ríkisins en afbrotin ná yfir fjögurra
ára tímabil. Hún starfaði sem þjón-
ustufulltrúi hjá Tryggingastofnun.
Fernt var hneppt í gæsluvarðhald
á mánudag og þar á meðal sonur kon-
unnar og kærasta hans samkvæmt
heimildum Blaðsins. Samkvæmt
heimildum mun konan búa í félags-
legri íbúð í Breiðholtinu og segja ná-
grannar að hún hafi lifað hátt áður
en hún var hneppt í gæsluvarðhald.
Yfirheyrslur enn í gangi
Um tuttugu manns eru viðriðnir
málið og er lögreglan að yfirheyra
þá aðila og athuga hvort um mein-
særi hafi verið að ræða samkvæmt
Jóni. Ekki liggur fyrir hvort ein-
hverjir af þeim tuttugu sem liggja
einnig undir grun hafi verið kærðir.
Grunur leikur á að þessir aðilar hafi
opnað reikninga og konan lagt inn á
þá og borgað þeim þóknun fyrir.
Jón H.B. getur ekki staðfest hvort
játningar liggi fyrir en þrennt mun
áfram verða i gæsluvarðhaldi til 7.
júlí.
Lifði um efni fram?
Samkvæmt nágrönnum konunnar
virtist hún lifa langt um efni fram.
Hún virtist skipta reglulega um bif-
reiðar og einnig mun hún hafa skipt
nær árlega algjörlega um innbú. Lét
hún það gamla undir stigaganginn
þar sem það safnaði ryki samkvæmt
heimildum.
Að sögn nágrannanna mun nokk-
urt ónæði hafa borist frá íbúðinni
á kvöldin því konan spilaði háværa
tónlist og mikill gestagangur var
hjá henni. Sonur hennar sem einnig
situr í gæsluvarðhaldi mun áður
hafa komist í kast við lögin sam-
kvæmt heimildum en þar mun þó
ekki um að ræða afbrot af þessari
tegund.
Málið er enn í rannsókn hjá
ríkislögreglustjóra.
valur@bladid.net