blaðið - 30.06.2006, Blaðsíða 20
20 I SÖLKUFRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2006 blaðÍA
Hollustan í fyrirrúmi
Árið 2006 verður blómlegt hjá SÖLKU. Fyrsta
bók ársins, Endalaus orka, seldist upp á aðeins
tveimur mánuðum en nú er önnur prentun
komin aftur í allar bókabúðir og helstu
matvöruverslanir. Bókin fer um eins og eldur
í sinu, enda eru íslendingar meðvitaðir um
holla lifnaðarhætti. Við vitum líka að í einu
glasi afnýpressuðum safa er mun meira
magn afhollustu en til dæmis íeinu epli
sem við grípum á milli mála.
í bókinni eru yfir 200 uppskriftir að
Ijúffengum og hollum drykkjum: Sumir
eru hreinsandi og vatnslosandi og hentugir fyrir
föstur, aðrir eru fyrirbyggjandi. Svo má finna Ijúffenga safa fyrir
krakkana auk framandi veisludrykkja sem krydda stemmninguna.
ísama flokki og Endalaus orka er bókin vinsæla Flreystin kemurinnan
frá en þar eru aðgengilegar leiðbeiningar um hvernig við getum
losnað við aukaefni úr líkamanum, grennst og öðlast meiri orku.
Miðaldra... og í banastuði!
Súsanna Svavarsdóttir er að þýða bandaríska
metsölubók þar sem sagt frá grasrótarhreyfingu
miðaldra kvenna og stöðu þeirra í heimi
æskudýrkunar. Þær kalla sig Fhe Red Hat
Society eða Rauðhettuklúbbinn. í bókinni eru
drepfyndnar og persónulegar reynslusögur
kvenna sem hafa áttað sig á því að eftirfimmtugt
sé visst frelsi í höfn og konur eigi að nýta sér það.
Börnin eru uppkomin og metorðastiginn skiptir
minna málisvo nú má leyfa litlu stelpunni í okkur
að fara aftur út að leikal Það skiptir ekki máli hvort
við erum feitareða grannar, smekklegareða ósmekklegar, lífið snýst um að
vera hamingjusamar og sáttar. Við erum lausar undan oki ofurkonunnar
- og höfum fengið nýtt hlutverk. Súsanna mun ekki einungis þýða bókina
heldur stofna rauðhettuklúbba með fleiri kvenskörungum víða um land.
- Miðaldra erum við á toppnum á tilverunni!
Súsanna Svavarsdóttir
Kilja... góð í rúminu
Draumaveröld kaupalkans
Ómissandi bók fyrir skvísur!
BÆKUR SEM HITTAIHJARTASTAÐ
Bókaútgáfan SALKA var stofnuð á vormánuðum árið 2000. Hildur Hermóðsdóttir er eigandi og
framkvæmdastjóri en með henni vinna Kristín Birgisdóttir ritstjóri og Sigrún Böðvarsdóttir sölu-
og markaðsfulltrúi.
Forlagið leggur áherslu á áhugaverðar handbækur af ýmsum toga svo sem ferðabækur,
matreiðslubækur og sitthvað sem tengist sjálfsrækt, heilsu og andlegum málefnum. SALKA gefur
einnig út skáldsögur fyrir fólk á öllum aldri.
Salka