blaðið - 30.06.2006, Blaðsíða 21
blaðið FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2006
SÖLKUFRÉTTIRI 21
Ekki bara Strikið
Undanfarin ár hefur Guðlaugur Arason rithöfundur staðið fyrir vinsælum
gönguferðum fyrir íslendinga um Kaupmannahöfn og er það ekki síst að
áeggjan þeirra sem hann samdi hagnýta bók sem kallast Kaupmannahöfn
- ekki bara Strikið. Hann lýsir 10 skemmtilegum gönguleiðum um borgina,
segir frá sögulegum byggingum og minnist á þekkta einstaklinga sem tengjast
þeim. Hverri gönguleið fylgir kort sem útskýrir leiðina og inn á þau eru merktir
helstu viðkomustaðir.
í fyrra kom út eftir hann bókin Gamla góða Kaupmannahöfn sem hlaut
gífurlegar vinsældir, en
þar fer hann vítt og breitt
og miðlar fróðleik og
skemmtisögum.
Báðar bækurnar
njótamikilla vinsælda,
enda ómissandi fyrir
GUÐIAUGUR ARASON
£ Ú
maríiiahöfn
alla þá sem ferðast um
gömlu höfuðborgina
okkar og reyndar alla
þá sem aðeins ferðast í
huganum um fjarlægar
slóðir.
Guðlaugur Arason
Girnilegar bækur
Nú er önnur prentun á þessari vinsælu bók loksins
komin í búðir. Hildur Hákonardóttir sinnir gróðri
allan ársins hring og hér lýsir hún því hvernig má
nýta algengarjurtir, villtareða ræktaðar, tilmatarog
heilsubótar. Inn á milli eru girnilegar uppskriftir og
frásagnir um lífið og hugmyndafræði ræktunar. Bókin
er gagnlegt uppflettirit en jafnframt skemmtileg
saga höfundar sem
sér viðamikillar
þekkingar á
náttúrunni og þeirri
menningu sem
tengist ræktun -
á íslandi og víða
um heim.
Leyndarmál franskrar salatsósu opinberað
íslendingum eftir Helene Magnússon
Nauðsynlegt með grillinu: Kitlum
bragðlaukana með blöndu af íslensku
hráefni og frönsku hugviti!
Með veislu í farangrinum eftir
Ingibjörgu G. Guðjónsdóttir og
Ragnheiði I. Ágústsdóttur. Hefurðu
farið ÚT að borða nýlega?
Póstkortabækur
Bruce Mcmillan er rithöfundur og Ijósmyndari
og sannur íslandsvinur. Hann hefur nú gefið út
fjölda barnabóka og hlotið ýmls verðlaun fyrir.
í samvinnu við SÖLKU hefur hann geflð út tvær
barnabækur og nú koma út eftir hann tvær
gullfallegar póstkortabækur en í hvorri um sig eru
30 kort. Önnur bókin er með landslagsmyndum
og skondnum athugasemdum um ísland. Hin er
með lundamyndum ásamt fróðleiksmolum um
þennan litríka prófessor sem elur börnin sín upp
í íslenskum heimkynnum.