blaðið - 30.06.2006, Qupperneq 24
24 I HEILSA
FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2006 blaöiö
meina bót
Bjarni E. Guðleifsson, náttúrufræðingur á Möðruvöllum í Hörgárdal.
Allra
Bókaútgáfan Hólar hefur gefið út
bókina Úr útiverunni - gengið og
skokkað eftir Bjarna E. Guðleifsson,
náttúrufræðing á Möðruvöllum í
Hörgárdal. I bókinni segir Bjarni
í einföldu máli frá langri reynslu
sinni af gönguferðum um fjöll og
dali og skokki eftir þjóðvegum,
borgarstrætum og óbyggðum.
Blaðið hafði samband við Bjarna
og spurði hann út í tilurð bókar-
innar sem og bókina sjálfa. „Þetta
eru svona hugleiðingar og pistlar
sem ég hef bæði skrifað og hugsað á
löngum ferli mínum. Þetta er ekki
svona leiðbeiningabók með beinum
tilvísunum í hvernig fólk eigi að
búa sig eða hvaða leið menn eigi að
fara. Þetta eru frekar mínar reynslu-
sögur, reynsla mín af því að ganga
á ýmis fjöll við ýmsar aðstæður.
Þetta átti aldrei að verða bók en
þegar ég fór að taka efnið saman
þá fannst mér þetta fyllilega vera
eitthvað sem fólk gæti haft gaman
af. Ég reyni síðan að bæta við þetta
ýmsum spaugilegum atvikum sem
ég hef lent í. Textinn er afar auðles-
anlegur og tilgangurinn er sá að
laða almenning til fjalla eða út að
skokka. Ég gef þá í skyn að þessar
tvær greinar séu fyrir „venjulegt“
fólk, ekki fyrir neitt keppnisfólk."
Allt bragðast vel á Qöllum
1 bókinni er meðal annars gerð
grein fyrir göngugörpum, fjalla-
sýki, íslenskukennslu náttúrunnar,
Reykjavíkurmaraþoni og bilunar-
einkennum skokkarans. „Allur
matur sem maður borðar í svona
fjallgöngum er óskaplega góður.
Maður er svo svangur og því nýtur
maður ekki einungis fegurðar fjall-
anna heldur einnig þess að vera
þreyttur og svangur. Venjulega
borða ég góðan mat sem er kallaður
„Mountain House“ og er í pokum.
Síðan er vatn hitað og innihaldinu
sturtað út í. Úr þessu verður alveg
dýrindis máltíð og þetta eru bestu
máltíðir sem ég smakka, jafnvel
betri en jólamáltiðirnar sem maður
borðar heima. Einu sinni ákvað ég
að halda svona „Mountain House“
veislu heima, tók tvo til þrjá svona
pakka og fékk fjölskylduna í mat.
Þannig útbjó ég þessa dýrindis-
veislu en það verður að segjast eins
og er að þetta bragðaðist engan veg-
inn jafn vel. Það kláraðist ekki og
engum fannst neitt varið í þetta,
ekki einu sinni mér sjálfum. Það
sýnir að manni þykir allur matur
góður á fjöllum," segir Bjarni.
Þjáist afflallasýki
Bjarni fjallar sérstaklega um matar-
æði tengt fjallgöngum og skokki en
hann hefur reyndar farið stundum
flatt á því sjálfur. „Ég hef alltaf
reynt að taka vítamín- og lýsistöflur
á morgnana og ég hafði önnur tvö,
þrjú glös af vítamínum á borðinu
hjá mér, kalktöflur, lið-aktín og ein-
hverjar hvítlaukstöflur. Síðan þegar
ég var að verða búinn úr glösunum
þá leit ég utan á eitt glasið og fór að
lesa. Þá kom í ljós að ég hafði ekki
verið að taka það sem ég hélt heldur
stóð utan á glasinu: Kvennablómi
- fyrir konur á breytingaskeiði. Þá
hafði ég tekið þetta inn í þónokk-
urn tíma. Varð þó ekki var við
neinar kvenlegar kenndir hjá mér.
í bókinni talar Bjarni um fjalla-
sýki en hann vill gera sterkan grein-
armun á öræfasýki og fjallasýki.
,Ég heyrði einu sinni mann tala um
það að hann þjáðist af öræfasýki og
ég geri þann greinarmun á öræfum
og fjöllum að öræfin eru miðhá-
lendið með mikla sanda, auðnir og
víðáttu. Fjallasýkin lýsir sér þannig
að maður laðast að bröttum og
háum fjöllum og ég er einmitt með
þá sýki. Það er þvi sýki sem ég vil
gjarnan sýkja aðra af og það er ein-
mitt einn tilgangur bókarinnar.
Varast skal rúsínur
Þegar staðarheiti, örnefni og nátt-
úrulýsingar eru lesnar má ímynda
sér sem svo að ákveðna skynjun
skorti. „Þegar maður gengur þá eru
mörg örnefni sem vitna um atburði
fortíðarinnar. Þannig upplýsist ým-
islegt sem manni var áður hulið
þegar maður ferðast um náttúruna.
Eins og til dæmis orðtækið „að berj-
ast í bökkum“ þegar maður þarf að
vaða árnar og „að hafa vaðið fyrir
neðan sig“. Einu sinni þegar ég var
að smala þá vissi ég að kindanna
væri ekki að vænta á hólum og
hæðum þar sem væru auðir melar.
Þeirra væri frekar að vænta í lægð-
unum þar sem grasið vex, það er
að segja „á næstu grösum“,“ segir
Bjarni.
1 bók Bjarna er að finna varnað-
arorð um að ofgera sér ekki og sagt
frá ýmislegu sem ber að forðast. „1
upphafi ferils míns þá ofbauð ég
mér stundum. Þegar ég fór í fyrsta
Reykjavíkurmaraþonið þá var ég
bæði illa búinn og hafði ekki borðað
rétta fæðu. Ég var í flatbotnaskóm
og þar fyrir utan borðaði ég mikið
af rúsínum áður en ég fór, sem var
afleitt. Það veldur miklum vind-
gangi,“ segir Bjarni.
Úr útiverunni - gengið og
skokkað - er 136 blaðsíður að lengd.
Hún er í kiljuformi og prýdd svart-
hvítum teikningum eftir Ragnar
Kristjánsson og vísum eftir hag-
yrðinginn og skokkarann Davíð
Hjálmar Haraldsson.
Er ég með kynsjúkdóm?■
Hvert get ég leitað?
Greining og meðferð kynsjúk-
dóma er ókeypis. Ef þig grunar
að þú sért með kynsjúkdóm skalt
þú láta athuga þig. Hér að neðan
eru upplýsingar um það hvert þú
getur leitað.
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík
• Göngudeild húð- og kynsjúkdóma,
Þverholti 18. Panta þarf tíma I sima
5436050 milli 8.15 og 9.00
• Heimilislæknar
• Húð- og kynsjúkdómalæknar
• Kvennadeild Landspítalans, sími
5431000
• Kvensjúkdómalæknar
• Heilsugæslustöðvar
Hafnarfjörður
Móttaka er fyrir unglinga 14-20 ára, Heilsu-
gæslustöðinni Sólvangi, Sólvangsvegi 3.
Opið á mánudögum kl. 16:30-17:30. Sími
550 2670. Ekki þarf að panta tíma og ekkert
gjald er tekið.
Kópavogur
• Móttaka fyrir unglinga 14-20 ára,
Heilsugæslustöðinni Fannborg 7-9.
Opin á mánudögum kl 15:30 til 16:30.
Sími 594 0500. Hægt er að velja á milli
þess að hitta hjúkrunarfræðing eða
lækni. Ekki þarf að panta tíma og ekk-
ert gjald er tekið.
Landsbyggðin
Akureyri
• Móttaka fyrir unglinga 13-20 ára,
Heilsugæslustöðinni Hafnarstræti 99,
4. hæð. Opin á þriðjudögum kl. 16-17.
Sími 460 4645. Ekki þarf að panta tíma
og ekkert gjald er tekið.
Er þér heitt?
Skrifstofu-
og tölvukœlar
Ishúsið ehf Sc 566 6QQol
Vestmannaeyjar
• Heilsugæslustöðin, sími 481 1955
• Skólahjúkrunarfræðingar
Selfoss
• Læknir frá heilsugæslunni er til staðar
í framhaldsskólanum milli 11:20 og
12:00 á miðvikudögum. Ekki þarf að
panta tíma og ekkert gjald er tekið.
• Heilbrigðisstofnunin Selfossi, Árvegi,
sími 4821300
• Skólahjúkrunarfræðingar
Annars staðar á landsbyggðinni er ein-
staklingum bent á að leita til:
• Heilsugæslustöðva
• Skólahjúkrunarfræðinga
• Kvensjúkdómalækna
Hægt er að hringja á eftirtalda staði
til aðfá upplýsingar um kynsjúk-
dóma:
• Göngudeild húð- og kynsjúkdóma,
Þverholti 18. Sími 543-6050. Opið kl.
8-16 alla virka daga.
• Heilsugæslustöðvar - heimilislæknar
• Skólahjúkrunarfræðingar - skólalæknar
• Hjálparsími Rauða krossins, sími 1717
Hægt er að senda inn fyrirspurnir á: www.
doktor.is
Jórunn Frímannsdóttir hjúkrunarfræðing-
ur :www.doktor.is
Piila gegn otfítu
Komin er á markað á Bretlandi pilla
gegn offitu, að sögn fréttavefjar
BBC. Er henni ætlað að draga úr
matarlyst. Heilbrigðisyfirvöld á
Bretlandseyjum hafa þó sett spurn-
ingarmerki við að hún komist í al-
menna dreifingu vegna kostnaðar.
Samkvæmt BBC er lyfið hið fyrsta
sinnar tegundar sem ræðst á þætti
sem tengjast hungri, efnaskiptum
og orkunotkun líkamans.
Dýr meðferð
Sérfræðingar segja þó að pillan geti
alls ekki komið í stað reglubund-
innar hreyfingar og holls matar-
æðis. 1 Bretlandi er talið að einn af
hverjum fimm karlmönnum þjáist
af offitu og ein af hverjum fjórum
konum.
Mánaðarskammtur kostar í
kringum 55 pund (um 7.700 krónur)
og hafa heilbrigðisyfirvöld áhyggjur
af því að standa ekki undir kostnaði.
Enn á Lyfjaeftirlitið þó eftir að sam-
þykkja lyfið og er ekki búist við að
það verði fyrr en að tveimur árum
liðnum.
Gæti virkað á reykingar
1 stórri tilraun var lyfið reynt á 6
þúsund manns sem áttu við offitu
að stríða. Fjórðungur léttist um
10% og um helmingur léttist um 5%.
Aukaverkanir voru óverulegar en
margir fengu snert af ógleði, svima
og kvíða.
Þar sem lyfið dregur úr löngun
eru einnig uppi hugmyndir um að
það geti dregið úr reykingum sem
hlýtur að vera þess virði að skoða.