blaðið - 30.06.2006, Side 26
26 I TÍSKA
FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2006 blaðiö
Karlmenn og snyrting
Sumir karlmenn hræðast allt
sem viðkemur snyrtingu eða
snyrtivörum. Sérstaklega eru þeir
hræddir við að það sé ekki nógu
karlmannlegt að huga of mikið
að útlitinu. £n staðreyndin er sú
að karlmenn þurfa, eins og konur,
að huga vel að húð sinni og það er
ekkert skemmtilegra en að sjá vel
snyrtan karlmann sem augljós-
lega hugsar vel um húðina. Þeir
eldastvist
eins og við
konurnar.
Ekki eru þó
allir feimnir
við að nota
snyrtivörur
og koma
karlmanna á
snyrtistofur
hefur aukist
gríðarlega
undanfarin
ár. Ástæðan fyrir þessari aukningu
gæti verið sú að menn eru farnir að
hugsa betur um útlitið en áður.
Fyrst voru það fötin, svo hárið
og nú loks er það að komast í tísku
hjá körlum að hugsa vel um húðina
sína. Snyrtimennska þykir sjálfsögð
í samfélagi okkar í dag og karlmenn
taka þátt í þessu líkt og konur, en
ganga þó mislangt.
Sumir karlmenn hafa komið á
snyrtistofu og viljað dekkja auga-
brúnirnar til þess að fá skarpari
augnsvip. Jafnvel láta þeir plokka
þær aðeins líka. Þetta er eitthvað
sem eflaust á eftir að aukast á
næstu árum þar sem íslenskir karl-
menn eru oft fölir og sviplausir til
augnanna.
Mættu slaka á í andlitsbaði
Karlmenn nota yfirleitt einfaldar
snyrtivörur. Helst ilmlausar eða
með rakspírailm.
Á hverju ári bætast við fyrirtæki
sem bjóða upp á snyrtivörur sem
eru lagaðar að þörfum karlmanna.
Einnig er stóraukin sala á húð-
kremum og vörum sem sérhann-
aðar eru fyrir karlmenn og viðhalda
heilbrigðu útliti húðarinnar.
Á snyrtistofum er algengast að
karlmenn komi í fótsnyrtingu. Það
þykir ekki eins kvenlegt að fara í
þá meðferð eins og t.d andlitsbað.
Karlmenn mættu þó alveg vera dug-
legri að láta slíkan munað eftir sér.
Þeim veitir oft ekki af slökuninni
sem fylgir þvi að láta dekra við sig.
Vax er næst á listanum yfir algenga
meðferð sem karlmenn koma í. Þá
eru það oft eiginkonur eða kærustur
sem hafa gefist upp á óæskilegum
hárvexti hér og þar á mönnum
sínum og panta
tíma fyrir þá
í vaxmeðferð
í kjölfarið. Svo
koma þeir af
sjálfsdáðum
næstu skipti á
eftir því þetta
er oft ný upp-
götvun fyrir
þá. Þeim líður
nefnilega oft
mun betur eftir
meðferðina.
Með gjafabréf í vasanum
Oftast er það þó þannig að þeir
karlmenn sem koma á snyrtistofur
eru með gjafabréf í vasanum sem
konan hefur gefið þeim. Gjafabréfið
felst þá í meðferð, handsnyrtingu,
fótsnyrtingu eða andlitsbaði. Vitan-
lega njóta þeir þess til fulls og koma
nánast undantekningarlaust aftur á
stofuna síðar. Eru jafnvel duglegri
en konurnar eftir að þeir hafa kom-
ist á bragðið.
Sérstök karlameðferð
Það er gaman að segja frá því að nú
bjóða sumar stofur uppá sérmeð-
ferð fyrir karlmenn. Meðferð sem
tekur sérstakt tillit til þarfa þeirra
og smekks. Við húðhreinsun og and-
litsböð karla eru notaðar vörur sem
eru lyktarlausar eða með mildum
ilmi. Einnig eru þær vörur sem
notaðar eru fyrir karlpeninginn oft
öflugri þar sem þeir hafa þykkari
húð en konur. Þannig notum við t.d.
sterkari ávaxtasýrur sem fara dýpra
í húðina. Ég er alveg á þeirri skoðun
að karlmenn ættu upp til hópa að
vera ófeimnari við að mæta á snyrti-
stofur. Ekki hafa þeir aðeins bæði
gott og gaman af því, heldur gleður
það konurnar svo sannarlega líka.
SNYRTI-
FRÆÐINGURINN
MARÍA BJÖRGTAMIMl
Hann ilmar svo vel og er
einstaklega aðlaðandi
Fátt heillar konur meira en vellyktandi og vel gefinn karlmaður.
ÉBl
íslenskir karlmenn hafa undanfarin ár verið að breyt-
ast svolítið. Þeir eru minna hræddir við að vera snyrti-
legir eða viðurkenna að þeir hafi áhuga á að hirða sig
vel og ilma vel. Þetta eru einstaklega góðar fréttir
fyrir bæði kynin. Körlum, engu síður en konum,
líður betur þegar þeir eru
vel tilhafðir og svo kunna
konurnar einnig að meta
snyrtimenni. Fáir komust
jafn vel að orði um
þessi mál og
Jakob Frímann í
myndinni Með allt
á hreinu þegar hann
sagði: „Það má vera
svolítið villt, en þó skal
snyrtimennskan ávallt
höfð í fyrirrúmi."
margret@bladid.net
P Jk
JEAN PAUL GAULTIER
- Le Male & Le Male
Body Spray
Jean Paul
Gaultier
kann að
gera ilmi
fyrir karl-
menn. Ilm-
urinn hans,
Le Male, er
með alvinsæl-
ustu karlmanns-
ilmum sem
settir hafa verið
á markað. Stærri
flaskan, Le Male
BODY SPRAY, kom
út sl. vor og er ætluð
sem alhliða ilmur á
líkamann enda öl-
ítið léttari og mild-
ari en upprunalegi
Le Male ilmurinn.
r Þetta er svolítið
djarfur ilmur, seið-
andi og sumar-
legur og óskaplega
heillandi.
Karlatískan
kynnt á tísku-
viku í Mílanó
DSquared2's fer sigurför um heiminn.
Sumarið 2007 verður
svolítið sixtís...
hjá DSquared2’s
bræðrum. Bleikir
skór, grænt belti
og fjólublá
skyrta.
Allskostar
ófeimnir við
að blanda
saman
litum.
Kanadísku tvíburabræðurnir Dean og Dan Caten 1
eftir að hafa kynnt vor- og sumarlínu sína fyrir ári
Fróðustu tískusérfræðingar
halda því fram að samkyn-
hneigðu tvíburabræðurnir Dean
og Dan, hönnuðir merkisins
DSquared2’s, séu hinir „nýju“
Dolce og Gabbana. Þetta eru víst
engar ýkjur því skv. San Frans-
isco Magazine eru þessir strákar
orðnir hálfgerðar „tískurokk-
J
Voru þeir að horfa á Pocahontas?
Höfuðskraut í anda indíána
Norður-Ameríku er það sem koma
skal frá Dolce og Gabbana. Takið
eftir leðurhulstrinu utan um
iPod-tækið.