blaðið - 30.06.2006, Síða 33
blaöiö FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2006
GOLF I 33
Ágrip af sögu golfsins
Golfíþróttin er talin eiga uppruna
sinn meðai Kínverja, Frakka og
Skota, en almennt fá þó Skotar
heiðurinn af því að vera upphafs-
menn íþróttarinnar. Fyrstu heim-
ildir sem vitað er um koma úr 15.
aldar lagabókum þar sem minnst
var á bann við því að leikurinn
„gowf“ væri leikinn.
Sumir fræðimenn telja þó að
þarna hafi hugsanlega verið átt við
annan leik sem í dag mætti bera
saman við hokkí. Þessir sömu fræði-
menn benda á að leikur sem gekk
út á að koma litlum kúlum í holur í
jörðinni með kjuðum hafi verið leik-
inn á sautjándu öld í Hollandi. Orðið
„golf“ er svo talið eiga uppruna sinn í
þýsku orði yfir klúbb.
Öflugri sláttuvélar - betri vellir
Elsti golfvöllur í heimi er Old Links
völlurinn í Musselburgh í Skotlandi
og þar mun María Skotadrottning
hafa sveiflað kylfunni sinni árið
1567.
Augljóslega hafa miklar framfarir
átt sér stað í golfheiminum frá því
að þessi skemmtilega íþrótt leit fyrst
dagsins ljós. Til dæmis eru sláttu-
vélar öflugri í dag og gera flatirnar
betri. Golfkúlurnar eru betur hann-
aðar þar sem ónáttúrleg efni hafa
verið notuð við gerð þeirra síðan um
99...................
Leikir þar sem kúlur
og kjuðar eða kylfur
koma við sögu hafa
verið leiknirí gegnum
aldirnar út um allan
heim, en golfeins og við
þekkjum það í dag, þar
sem leiknar eru 18 holur
eða fleiri, erklárlega
frá Skotum komið."
næstsíðustu aldamót. Járnskaftið
kom svo til sögunnar um 1930 og
það hafði miklar jákvæðar breyt-
ingar í för með sér. Upp úr 1970 var
farið að nota járn í hausana á golf-
kylfum og sköft úr granítblöndum
komu á markaðinn upp úr 1980.
Klárlega frá Skotum komið
1 janúar á þessu ári fundu kínverskir
fræðimenn gögn sem hugsanlega
koma til með að afsanna að Skotar
eigi heiðurinn af því að hafa fundið
upp golfið. Mjög svipaður leikur var
nefnilega leikinn í Kína um fimm-
hundruð árum áður en minnst var á
það í skoskum heimildum. Þessum
kínverska leik er lýst á mjög svip-
Slegið í gegn
á Skaganum
í sunnudagsbíltúrnum er haldið til Akraness
þar semfjölskyldan getur sveiflað kylfunum
saman.
Golfklúbburinn Leynir á Akra-
nesi hefur verið starfandi frá ár-
inu 1965, en upphaflega hét hann
Golfklúbbur Akraness. Félags-
menn eru með fyrirtaks golfvöll
að Görðum, en golfvöllur Skaga-
manna fékk snemma nafnið
Garðavöllur - enda hafði landið
áður heyrt undir Garðaprestakall.
Völlurinn hefur reglulega farið
í gegnum endurbætur og sjá félags-
menn aðallega um þær. ldag er þar
að finna 18 holu golfvöll, 250 metra
æfingasvæði með yfirbyggðum og
flóðlýstum æfingateig, boltaleigu,
æfingapúttflöt og veitingasölu í
golfskálanum.
Það færist sífellt 1 aukana að fólk
úr Reykjavík bruni vestur á Skaga
til að eiga góðan dag á golfvellinum.
„Við erum með samninga við
nokkra klúbba í Reykjavík og þeir
eru mjög duglegir að nýta sér það
að koma hingað á völlinn að spila.
Það hefur mjög oft verið talað um
að hér séu einstaklega góðar flatir
og almennt finnst fólki þetta mjög
skemmtilegur völlur. Hann er í
mjög góðu standi eins og er,“ segir
Hildur Magnúsdóttir, starfsmaður
golfklúbbsins Leynis, en tekur það
fram að hún sé kannski ekki alveg
hlutlaus þar sem heimahagarnir séu
henni kærir. „Manni finnst alltaf
allt best heima hjá sér,“ segir hún og
hlær.
Ahugasöm ungmenni
Daggjaldið á Garðavellinum er 3500
kr en ef fólk er mætt fyrir klukkan
tvö, eða er að spila með félagsmanni,
er gjaldið 2500. Krakkar yngri en
99....................
Það færist sífellt í
aukana að fólk úr
Reykjavík bruni vestur á
Skaga til að eiga góðan
dag á golfvellinum.
sextán ára greiða hinsvegar aðeins
1500 krónur fyrir daginn.
Um 110 ungmenni 18 ára og yngri
eru félagar í golfklúbbnum og eru
reglulegar golfæfingar fyrir þennan
hóp 2-3 sinnum í viku yfir sumar-
tímann og 1-2 sinnum yfir vetrartím-
ann. Karl Ómar Karlsson, golf- og
íþróttakennari, sér um golfkennslu
og þjálfun barna og unglinga ásamt
aðstoðarfólki en þessi golfkennsla,
ásamt golfnámskeiðum hverskonar,
hefur virkað mjög hvetjandi á Skaga-
krakka með þeim afleiðingum að
fjölmargir eru skráðir og virkir með-
limir í Golfklúbbnum Leyni.
Golfkennsla fyrir almenning
Karl ómar Karlsson býður einnig
almenningi upp á golfkennslu,
hvort heldur sem viðkomandi er
félagsmaður í golfklúbbnum eða
ekki. Hægt er að kaupa einstaka
golfkennslutíma eða golfnámskeið
hjá Karli Ómari, en hver tími er um
30 mínútur.
Það er því viturlegt að panta að-
eins fram í tímann því það væri
svekkjandi að ætla að hefja glæstan
golfferil sinn á Akranesi með
kennslu hjá Karli en fá svo engan
tíma.
Skoskir aðalsmenn munda hér kylfur sínar á Musselburgh-vellinum fyrir 150 árum.
aðan hátt og golfi og meðal annars klúbbs Skotlands, Royal and Anci- dag,þarsemleiknarerui8holureða
kemur þar fram að kylfurnar hafi ent GolfClub of St. Andrews: „Leikir fleiri, er klárlega frá Skotum komið.1
oftast verið úr gulli sem gefur til þar sem kúlur og kjuðar eða kylfur ...............................
kynna að þetta hafi aðeins verið koma við sögu hafa verið leiknir í margret@bladid.net
heldri manna íþrótt. Um þessa til- gegnum aldirnar út um allan heim,
gátu segir fulltrúi eins virtasta golf- en golf eins og við þekkjum það í
FINNST ÞER ÞU EIGA MEIRA SKILIÐ?
Biaðið óskar eftir duglegum, metnaðarfullum og kraftmiklum sölumönnum
til starfa sem fyrst Við leitum að fólki með frumkvæði, ódrepandi áhuga á
sölumennsku, vilja og getu til að vinna í krefjandi og erilsömu umhverfi og
hressleikann að leiðarljósi.
GÓÐ LAUN í BOÐI FYRIR DUGLEGT FÓLK.
LAUN ÁRANGURSTENGD
UMSÓKNIR SENDIST Á ATVINNA@BLADID.NET
blaðiða