blaðið - 30.06.2006, Qupperneq 35
blaðið FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2006
AFÞREYING I 35
U? /í
KRAUMARI KELDUNNI
Atli Fannar Bjarkason skrifar frá Hróaskeldu-hátíðinni í Danmörku
Þaðþýðirvístekki
að mæta seint
á Hróarskeldu-
hátíðina. Égmætti
ásamt félögum mínum síðdegis á
miðvikudag og hófst þá leit að tjald-
svæði. Eftir að hafa ráfað um svæðið
í um hálftíma fundum við smá skika
á ysta svæðinu, K-svæði.
Við hófum að troða hælum niður
fyrir rúmlega 1.800 fermetra íbúð-
artjaldið okkar en eftir að hafa sett
niður 10 til 20 stykki var gæslan
mætt á svæðið. Við vorum víst fyrir
utan hvítu línuna sem alls ekki má
fara út fyrir með tjald og gæslan
sætti sig ekki við það. Eftir mikið
riflildi þóttist gæslan vera búin
að finna voðalega fínan stað fyrir
okkur aðeins hundrað metrum ofar.
Þegar á hólminn var komið reyndist
svæðið aðeins rúma tæplega þriggja
manna kúlutjald. Við hlupum með
risavaxið tjald okkar til baka og
tjölduðum því fyrir utan hvítu lín-
una og sváfum þar í nótt.
í morgun var gæslan aftur mætt
á svæðið og ætlaði sko ekki að sætta
sig við mótþróann í Islendingunum.
Okkur var sagt að „drullá' okkur
inn fyrir línuna ella yrði tjaldið
okkar tekið með valdi og okkur hent
af svæðinu. Við dóum að sjálfsögðu
ekki ráðalausir og færðum örugg-
lega 10 tjöld svo við gætum komið
okkur fyrir með hjálp Jörgens, káta
Danans í næsta tjaldi. Við erum ekki
frekir Islendingar fyrir ekki neitt.
Það dugði ekki minna en tónleika-
ferð til að koma okkur í góðan gír
eftir baráttuna við gæsluna. Við
skelltum okkur á opnunartónleika
hátíðarinnar með hljómsveitinni
Editors og skemmtum okkur vel. Edi-
tors spiluðu lög af plötunni The Back
Room sem kom út í fyrra, í bland við
ný lög sem ég kannaðist ekki við. Há-
punktur tónleikanna var þegar þeir
tóku lagið Camera við góðar undir-
tektir viðstaddra og undirritaður
var ekki undanskilinn. Veðrið á
hátíðinni mætti vera betra. Sólin er
aðeins búin að gægjast fram en ekki
mikið. Við félagarnir treystum áveð-
urspána en samkvæmt henni er ekki
langt í sól og sumaryl. Við sjáum til.
Jörgen, Daninn káti, hjálpaði til við að færa tjöld.
Sœmilegur diskur með persónulegum lögum
IlI Tónlist
Svanhvít Ljósbjörg Guömundsdóttir
Guðmundur Jónsson - Jaml
Jaml er nýjasti diskur Guð-
mundar Jónssonar, sem er
þekktastur fyrir að vera í Sálinni
hans Jóns míns. Jaml er önnur
platan í þríleik Guðmundar sem
hófst með disknum Japl sem kom
út árið 2004. Jaml er líka önnur
sólóplata Guðmundar. Á Jaml
eru 10 lög eftir Guðmund auk
þess sem hann semur alla texta.
Guðmundur sér líka um allan
hljóðfæraslátt, söng og upptökur.
í laginu „Ég trúi“ er Magnús Þór
Sigmundsson gestasöngvari og
syngur dúett með Guðmundi.
Ég verð að viðurkenna að eftir
fyrstu hlustun á Jaml var ég síður
en svo upprifin enda fannst mér
diskurinn hreinlega leiðinlegur.
Hið jákvæða er hins vegar að hann
venst vel og eftir að ég hafði hlustað
á hann nokkrum sinnum þá vand-
ist ég lögunum. Að endingu var ég
jafnvel komin með uppáhaldslag á
disknum sem ég nánast söng með.
Hitt er annað mál að ég efast um að
þessi diskur eigi eftir að vera lang-
lífurþarsem lögin eru ekki nægilega
eftirtektarverð. Lagið „Fyrirgefðu"
hefur hlotið nokkra spilun á út-
varpsstöðvum landsins og kannski
ekki að furða. Lagið er grípandi og
sennilega það lag á plötunni sem er
líklegast til að gera góða hluti. Bestu
lögin á plötunni eru „Fyrirgefðu“ og
„I orðastað vinar“. „Ég trúi..." hefði
mögulega getað heppnast vel en það
pirraði mig hvernig það var sungið.
Hins vegar var þáttur Magnúsar
prýðilegur.
Persónulegur texti
Ef vikið er að textunum á disknum
þá eru þeir mjög einlægir og segja
má að það sé jafnvel það skemmti-
legasta við diskinn. Fyrir forvitið
fólk eins og mig er áhugavert að fá
smá innsýn inn í hugarheim Guð-
mundar auk þess sem diskurinn
verður miklu persónulegri fyrir
vikið. Það gerir það líka að verkum
að hlustandinn hlakkar til að heyra
meira. Þó eru textarnir augsýnilega
misjafnlega persónulegir, en fyrir
mitt leyti helst það í hendur að ef
textarnir eru persónulegir þá eru
lögin góð. Umslagið er einfalt en
snyrtilegt. Rauði liturinn er flottur
og sérstaklega finnst mér framhlið
og bakhlið umslagsins áberandi.
Verst fannst mér þó að textarnir
hafa greinilega ekki verið prófarka-
lesnir en það er fátt sem pirrar mig
meira. Yfirleitt er frekar einfalt að
láta lesa yfir þessa stuttu texta og
því synd þegar það er ekki gert. Að
endingu verð ég að minnast á hve
fráhrindandi nafn disksins er; ef-
laust er þetta einhver einkahúmor
Guðmundar. Ég kann yfirleitt vel
að meta einkahúmor, sérstaklega
minn eigin, en ég fatta ekki húmor-
inn á bak við nöfnin í þríleik þessa
geðþekka söngvara. Kannski næ ég
einhvern tíma að skilja hann, en
þangað til ætla ég að halda mig við
þá skoðun að hægt hefði verið að
finna betra nafn.
Lögin renna auðveldlega í gegn
Það sem stendur upp úr eftir
hlustun á Jaml er hve auðvelt er að
hlusta á diskinn og hann á án efa eftir
að vera daglangt í mörgum geisla-
spilurum landans. Lögin renna auð-
veldlega í gegn enda er þetta mjög
melódísk og persónuleg tónlist. Þó
skín í gegn að áheyrendahópur Guð-
XFM-Dominoslistinn 2i.júní-28.júní
Sætí Siðast Lag Hytjandi
1. 19. Chasing Cars Snow Patrol
2. 4. Woman Wolfmother
3. 1. The Zookeepers Boy Mew
4. 6. ArmyoftheSun Tony the Pony
5. 2. Supermassive Black Hole Muse
6. 3. OhYeah The Subways
7. 75. Dead Man's Hand Shadow Parade
8. 16. TellmeBaby Red Hot Chlli Peppers
9. 10. Llfe Wasted Pearl Jam
10. NÝTT. The One Trabant
11. 27. Valerie The Zutons
12. NÝTT. Country Glrl Primal Scream
13. 5. Infra-Red Placebo
14. NÝTT LastSong Telepathetics
15. 22. Eternal Bliss Ampop
16. 21. Blood The Editors
17. 18. Llfe&Hablts Wulfgang
18. NÝTT. NYC (There's no need to..l The Charlatans
19. 23. Game Boy Hello Norbert
20. 12. Code Clvil Future Future
mundar er
allt annar
og eldri
en áheyr-
enda ihópur
Sáli i n n a r
þar sem
ég ímynda
mér að fólk
á miðjum
aldri geti
haft ánægju
af þessum
diski. Þetta er
því sæmilegur
diskur með
þægilegum
lögum oghelsti
kostur hans er
hve persónuleg
tónlistin er. Ég
get ekki bein-
línis sagt að
ég bíði spennt
eftir að hlusta á
síðasta diskinn
í þríleiknum en
ég er óneitanlega
forvitin að heyra
hvað Gummi
býður okkur upp á næst,
svanhvit@bladid.net
Skemmtu
þér í sumar
í dag kemur út diskurinn
Ég skemmti mér í sumar
með Guðrúnu Gunnars-
dóttur og Friðrik Ómari
Hjörleifssyni.
Þau Guðrún og Friðrik Ómar
eru nú að senda frá sér sína aðra
plötu, Ég skemmti mér í sumar.
Platan er eins konar framhald af
plötunni Ég skemmti mér, sem
sló í gegn fyrir síðustu jól og varð
ein af söluhæstu plötunum árið
2005. Nú er áherslan aftur á móti
lögð á sumarlög frá árunum 1950-
1975 og eru endurvaktar tólf af
vinsælustu dægurperlum sem ís-
lendingar hafa sungið og trallað
síðan þá. Má þar nefna Öbyggða-
ferð, Eg vil fara upp í sveit og Því
ekki (að taka lífið létt?).
Hinn fjölhæfi tónlistarmaður
Ólafur Gaukur útsetti lögin líkt
og á fyrri plötunni og jafnframt
stjórnar hann upptökum. Hljóð-
færaleikarar á Eg skemmti mér
í sumar eru með þeim fremstu
í sinni röð. Kjartan Valdimars-
son spilar á píanó og hljómborð,
Jóhann Ásmundsson á bassa,
Jóhann Hjörleifsson á trommur
og Ólafur Gaukur á gítar. Einnig
leika þeir Stefán S. Stefánsson,
Snorri Sigurðarson, Stefán Ómar
Jakobsson og Þorleifur Gíslason á
blásturshljóðfæri.
blaóió
CPDDIBfí
MiiHDLnii
VINNUVÉLAR
Föstudaginn 7. júlí
Auglýsendur, upplýsingar veita;
Kolbton Ragnaisdottir * Simi 510 o/.L'. * Gsnr ■-*.02 ' l * koiLatrr hlut
Magtíús Gauti Hauksson * Simi 510 37:23 * Gsm 691.2209 • macfqifa