blaðið - 30.06.2006, Blaðsíða 37
blaðið FðSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2006
DAGSKRÁ I 37
Axl Rose beit í fót
Mikið brölt og bras er áforsprakka hljómsveitarinnar Guns N’Roses
en hann sat tfangelsi í Svíþjóð fyrir að bíta mann ífótinn.
Guns N’ Roses töffarinn Axl Rose var
í byrjun vikunnar settur í fangelsi í
Stokkhólmi eftir að hafa bitið örygg-
isvörð sem vann á hóteli þar sem
hann gisti í fótinn. Axl, sem skemmti
Svíum með tónlist sinni, var handtek-
inn og settur í fangelsi á þriðjudag
þar sem hann eyddi lunganum úr
deginum. Rokkarinn á að hafa ráðist
á öryggisvörðinn, hótað honum, bitið,
og síðan valdið skemmdum á Berns
Hótelinu þar sem hann dvaldi.
Towe Hagg, talskona sænsku lög-
reglunnar, sagði að Axl hefði fallist
á að greiða alls 520.000 íslenskar
krónur í skaðabætur og að hann
hefði fúslega viðurkennt að hafa
misst stjórn á sér. Hljómsveitin
Guns N’ Roses, sem er í tónleika-
ferð þessa dagana, hefur orðið fyrir
miklum töfum og óþægindum
vengaþessaatviks.
„Til þess að láta drauma þína rœtast, próf-
aðu þá aðfara að sofa.“
Joan Klempner
Þennan dag...
... árið 1966 fæddist Michael Gerard Tyson í Brooklyn í New York.
Mike Tyson, eins og hann er oftast kallaður, er einn af umtöluðustu box-
urum heims og af mörgum álitinn einn besti boxari allra tíma. Hann er
ákaflega skapbráður, sem stundum hefur komið niður á ferli hans.
EITTHVAÐ FYRIR.
<1 ...stelpur
Skár 1,20.30 One Tree Hill
Ungstirnið Chad Michael Murray
fer með aðalhlutverk í þessum
dramatisku unglinga- og fjölskyldu-
þáttum. Þættirnir gefa trúverðuga
mynd af lífi og samskiptum nokk-
urra ungmenna í bænum One Tree
Hill, þar sem stormasamt samband
hálfbræðranna og fjandvinanna Nat-
hans og Lucasar er rauður þráður.
Þættirnir hafa vakið mikla eftirtekt
og njóta verðskuldaðra vinsælda.
...símasjúka
Stöð 2, 23.55 Phone Booth
Símaklefinn er spennutryllir af
bestu gerð. Á hverjum degi fer Stuart
í sama símaklefann í New York og
hringir í kærustuna. Hann vill ekki
hringja í hana úr vinnunni eða að
heiman frá sér því þá gæti eiginkona
hans komist að öllu saman! Og nú er
Stuart aftur mættur í símaklefann.
Að þessu sinni verður einhver fyrri
til og hringir í hann. Hann svarar og
á sama andartaki verður líf hans að
þeirri verstu martröð sem hægt er
að hugsa sér. Með aðalhlutverk fara
Colin Farrell, Kiefer Sutherland og
Forest Whitaker. Leikstjóri myndar-
innar er Joel Schumacher og er hún
stranglega bönnuð börnum.
^ ...hjálparhellur
f>
Stöð 2 Bíó, 04.00 Road House
Hjálparhellan fjallar um Dalton
sem er besti útkastarinn í bransan-
um. Kvöldin hjá honum einkennast
af hasar, brjálaðri tónlist og falleg-
um konum. Dalton kemur til starfa
á klúbbi þar sem gestirnir ganga
iðulega of langt. Einn þeirra er Brad
Wesley en hann heldur að allt sé falt
fyrir peninga. Aðalhlutverk leika
Patrick Swayze, Kelly Lynch, Ben
Gazzara og Sam Elliott. Leikstjóri
er Rowdy Herrington og myndin er
stranglega bönnuð börnum.
*
41
m 9
Ætkt
■ m
%
m
m
I
SSi
m
''70$
fu-3'
, * • « mm* 'JT' iVVlt.'
m V . •
m
\ \ \ f
M 4 A
Ljóslifandi myndir /X daga og nætur
Með Olympus/^700 getur þú myndað það sem
þer sýnist jafnvel þo lysingin se dræm. Bright Capture
tæknin gerir skjámn fjorum sinnum bjartari en i öðrum
myndavélum og léttir myndir svo þær verði rétt lýstar
án þess að nota flassið. Olympus ,0/700 velin
þin er með 7 1 milljón punkta upplausn og 3 x
linsu aðdrætti og þú getur þu hiklaust tekið hana
með út a lífið jafnvel eftir að myrkur skellur á ...
/X 700
- meiriháttar góð i myrkri
TILBOÐ 022.990
FULLT VERÐ kr. 29.990
OLYMPUS
Siúnvarpsmiðstöðin
RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SlMI 568 9090 • www.sm.is
UMBOflSMENN UM LANO ALLT ► REYKJAVÍKURSVÆÐIÐ: Hagkaup, Smáralind. VESTURLAND: Hljómsýn, Akranesi. Samkaup, Borgamesi. Blómsturvellir, Hellissandi. VESTFIR0IR: Kaupfélag Steingrímsfjarðar, Drsngsnesi.
Þrístur, (safirði. NOR0URLAND: KF Steingrímsfjarðar, Hólmavík. KF V-Húnvetninga, Hvammstanga. Krákur, Blönduósi. Skagfirðingabúð, Sauðárkróki. Ljósgjafinn, Akureyrí. öryggi, Húsavík. AUSTURLAND: KF Héraðsbúa, Egilsstöðum.
Verslunin Vík, Neskaupsstað. Kauptún, Vopnafirði. KF Héraðsbúa, Seyðisfirði. Tumbræður, Seyðisfirði. Sparkaup, Fáskrúðsfirði. Verslunin Vík, Reyöarfirði. Martölvan, Höfn Homafirði. SU0URLAND: Mosfell, Hellu. Fossraf, Selfossi.
Rás, Þorlákshöfn. Geisli, Vestmannaeyjum. Brimnes, Vestmannaeyjum. REYKJANES: Tölvuspítalinn, Grindavík. Rafeindatækni, Keflavík. Raflagnavinnustofa Sigurðar Ingvarssonar, Garði. Rafmætti, Hafnarfirði.