blaðið - 30.06.2006, Page 38
38 IFÓLK
FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2006 blaöiö
ÖDRUVÍSI EW
SAMT EINS
Smáborgarinn hefur lengi furðað sig á
klæðaburði fólks sem telur sig vera „öðru-
vísi". Þetta eru oftaren ekki nemar í Lista-
háskóla (slands, eða einstaklingar sem
komust ekki þar inn en láta sig dreyma
um það. Þess á milli dvelja þelr langtlm-
um saman á kaffihúsum, reykja sígarett-
ur og raeða listir og tilfinningar.
Þegar smáborgarinn var barn að
aldri var móðir hans að vinna á gamla
Kópavogshaelinu. Þroskahefta fólkið var
fátækt eins og von er, en góðhjartaðir
Kópavogsbúar sáu aumur á því og sendu
þess vegna reglulega kassa af notuðum
fötum á hælið.
Fötin voru af öllum stærðum og gerð-
um og þegar flíkurnar voru valdar úr á
einstaklingana sem bjuggu á hælinu, var
einfaldlega bara miðað við að hver og
einn myndi passa í þær. Semsagt, það
var flokkað í stærðir en ekki eftir stíl og
svo fékk sá eða sú sem passaði í flíkina að
eiga hana. Þegar allir voru komnir með
sinn skammt af nýjum fötum, dressaði
mannskapurinn sig upp og útkoman varð
oft æði skrautleg. Til dæmis brúnar bux-
ur, bleikt pils yfir buxurnar, gúmmístíg-
vél, rauð blómaskyrta, grátt lopavesti þar
yfir, kannski blá dúnúlpa (þrengra lagi og
gríðarlega stór, skærgræn lopahúfa sem
tróndi á toppnum eins og punkturinn yfir
i-ið. Svo þrömmuðu þau um, brosandi út
að eyrum, ofsaglöð með nýju fötin.
Þegar smáborgarinn hittir fyrir hópa
af listaspírum verður honum oftar en
ekki hugsað til þessara æskuvina sinna.
Samsetning fatanna virðist handahófs-
kennd og fremur valin af því fötin passa,
en ekki af því að þau séu samstæð eða
myndi einhverja smekklega heild. Það
sem honum þykir öllu verra er að þessi
þjóðfélagshópur leggur sig fram um
að vera spes en tekst það ekki þar sem
fólkið virðist kaupa fötin sín meira eða
minna á sama stað og endar því sem ein-
sleitur hópur. Auk þess er það jafn mikið
undiráhrifumeinhverrarlistrænnartísku-
stefnu og aðrir hópar í þjóðfélaginu. Því
virðist vera svo mikið í mun að vera spes
að það „spesar hreinlega á sig". Hverfur
líkt og gæsaveiðimenn hverfa dulbúnir í
grasið þegar það stendur saman í hópum
fyrir utan skemmtistaði og keppist við að
vera öðruvísi.
Það sem gefur smáborgaranum von er
að flestir virðast vaxa upp úr þessu. Læra
meðaldri og tíma að klæða sig í samstæð-
arflíkur í stað þess að vaða um í listrænni,
abstrakt fegurðarskynsvillu með þaðeina
markmið að vera öðruvísi. Smáborgarinn
spyr líka: Til hvers að rembast svona? Við
erum hvort sem er öll „öðruvísi". Eins og
snjókornin. Öðruvísi en samt eins.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Helgi Vilhjálmsson, eigandi
sœlgœtisverksmiðjunnar Góu
Er bjart framundan í sælgætis-
framleiðslunni?
„Það er stórskemmtilegt ef þessi nýja uppfinning virkar. Maður
bíður bara eftir annarri eins uppfinnmgu sem virkar á hárið.“
Búið er að finna upp ofurlítið hljóðbylgjutæki sem örvar vöxt tanna frá rótum. Mun þetta vera byltingarkennd uppfinning í
tanniðnaðinum.
Ævintýraveröld ófétanna
Þegar gengið er inn í
Deigluna í Listagilinu
á Akureyri opnast heill
undraheimur. Gestir
stíga beint inn í ævin-
týraveröld ófétanna
en í Deiglunni stend-
ur nú yfir sýning
á hinum stóru og
litskrúðugu frummynd-
um Rúnu K.Tetzschner
við ævintýri hennar
um Ófétabörnin.
SU DOKU talnaþraut
4 7 2 6 9 3 8 1 5
6 3 8 4 5 1 9 7 2
9 1 5 8 2 7 3 4 6
1 2 3 9 7 4 6 5 8
5 8 4 1 3 6 2 9 7
7 6 9 5 8 2 1 3 4
3 5 i 7 6 8 4 2 9
8 4 7 2 1 9 5 6 3
2 9 6 3 4 5 7 8 1
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá t-9 lárétt og lóðrétt (reitina, þannig
að hvertala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri linu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
2 8 1 7 4
5 1
5 2 9
9 4 6
8 3 9
9 2 8 7
1 3 6
4 7 5 3 2 8
4 1 5
eftir Jim Unger
Ég hringdi í vinnuna og sagði að þú yrðir lasinn í tíu ár.
O Jim Unger/dist. by United Media, 2001
HEYRST HEFUR...
Ymsum sögum fer af síðustu
dögum innan fjárfestingar-
bankans Straums-Burðaráss áð-
ur en að Þórður Már Jóhannes-
sonvarleysturfrá
störfum. Þegar
boðað var til hlut-
hafafundarins
örlagaríka kom
brátt í ljós að þar
kynni að draga til tíðinda. Þórð-
ur Már var hins vegar staddur á
erlendri grundu en lá á að kom-
ast heim. Brá hann á það ráð að
leigja einkaþotu til þess að kom-
ast heim til Fróns, fremur en að
bíða eftir næstu vél Icelandair.
Með þessum hætti mun hann
hafa komist heilum 48 mínút-
um fyrr til landsins...
Pað er eins og menn megi
varla gera sér glaðan dag
lengur án þess að það verði
fréttaefni. Þannig greinir Reyn-
irTraustason, ritstjóri Mannhfs,
frá því á vef sínum (www.mann-
fíT ’ 1 lif.is) að fótbolta-
|| guðinn Eiður
■ Smári Guðjohn-
sen hafi brugðið
undir sig betri
. J- fetinum um síð-
astliðna helgi og það íklæddur
gervi Kalla á þakinu, sem vinur
hans Sverrir Þór Sverrisson -
betur þekfctur sem Sveppi - léði
honum íftilefni dagsins. Mun
uppátækinu hafa verið vel tekið
af næturhröfnum Reykjavíkur...
Hins vegar er ekki jafnvel lát-
ið af gleðimanninum Jóni
Kristni Snæhólm, nýráðnum
aðstoðarmanni borgarstjóra, á
hinu velheyrandi slúðurbloggi
Orðinu á götunni (ordid.blog.
is). Jón Kristinn er sagður hafa
tekið að sér veislustjórn í brúð-
kaupi og verið í miklu stuði. Er
á leið hafi mönnum þó þótt fyr-
irferðin litlu minni en á Hrafna-
þingi Ingva Hrafns Jónssonar á
NFS, þar sem hann er fastagest-
ur. Er hermt að loks hafi verið
gerð hallarbylting við háborðið
og meiri værð færð yfir veislu-
stjórnina...
Minna hefur borið á hinum
gáskafúlla formanni borg-
arráðs Reykjavíkur í fjölmiðlum
síðastliðna daga en menn hafa
átt að venjast um langa hríð.
Ástæðan er þó ekki sú að Björn
Ingi Hrafnsson sé uppiskroppa
með mál til þess að deila með
fjöldanum, heldur hefur hann
lagst í langþráð frí eftir lang-
hlaup á spretthlaupshraða und-
anfarin misseri, þar sem hvað
hefur rekið annað: Aðstoð við
ráðherra, prófkjör, kosninga-
barátta, meirihlutamyndun og
skrifborðsburður í Ráðhúsinu.
Hermt er að úrsérbræddur far-
sími Binga verði ekki með í för...
Götulistamaðurinn og Aust-
urstrætisskáldið Jojo fer
mikinn í góða veðrinu þessa
dagana, en hann spilar í Austur-
stræti á góðviðrisdögum og fögr-
um sumarnóttum eftir því sem
andinn býður. Hann er þó ekki
einn á ferð alla daga því heyrst
hefur (um allan miðbæ) að snill-
ingar eins og Páll Rósinkranz,
Björn Jörundur Friðbjörnsson
og Fjölnir Þorgeirsson, svo
nokkrir séu nefndir, hafi tekið
lagið með honum á götunni.
Samkvæmt
heimildum
mun Páll Rós-
inkranz þykja
ótvíræður sigur-
vegari þessarar
söngvakeppni strætisins...
andres.magnusson@bladid.
net