blaðið - 11.08.2006, Side 1
g£' Bakhús viö Hverfisgötu
Lögreglumenrt gera húsleit í
afdrepi Fáfnismanna.
Lögreglan handtók þekktan ofbeldismann eftir árás í miðborginni:
FRJALST, OHAÐ & OKEYPIS!
Ferðamenn sektaðir:
Númerslausir bílaleigubílar
„Ef það verður ekki bragarbót
á þessu þá þurfum við að klippa
númerin af bílunum," segir Oddur
Árnason rannsóknarlögreglumaður
á Selfossi um síaukið númeraleysi
bílaleigubíla. Hann segir lögregl-
una á Selfossi vera orðna þreytta
á að sekta ferðamenn sem í sak-
■ ÚTIVIST
Göngur við Reykjavík
Víða í nágrenni Reykjavikur eru fjölbreyttar
og skemmtilegar gönguleiðir sem eru flestum
færar.
I SlÐA 27
leysi sínu keyra um á ófullbúnum
bílaleigubílum.
„Ein bílaleigan keyrði á móti ferða-
manni með númeraplötuna þegar
við sektuðum hann, þannig að plöt-
urnar virðast ekki vera týndari en
það,“ segir Oddur.
I SlÐA 6
ísraelar lýsa vopnahléi Israelskir skriðdrekahermenn við landamæri Líban-
ons og nota tækifærið til þess að hringja heim. | síÐA 11
■ VEÐUR
Úrkomulítið
Léttirtil sunnanlands, hálfskýjað
vestantil en annars skýjað eða úrkomu-
lítið. Hiti 10 til 18 stig.
| SÍÐA2
Kona slapp naumlega:
Hnífsmaður
reyndi nauðgun
Rúmlega tvítug kona komst
undan vopnuðum manni sem
reyndi að nauðga henni aðfara-
nótt fimmtudags. Konan var á
leið til vinnu um fjögurleytið
um nóttina þegar maðurinn
réðist á hana í austurborginni
vopnaður hnífi. Hann reyndi
að þvinga hana til samræðis en
hún barðist um á hæl og hnakka.
Eftir áflogin tilkynnti hún lög-
reglunni um árásina. Hún var
færð á neyðarmóttöku nauðg-
unarfórnalamba. Konan var
talsvert skrámuð eftir átökin og í
verulegu uppnámi.
Samkvæmt Sigurbirni Víði
Eggertssyni, yfirlögregluþjóns
lögreglunnar í Reykjavík, var
mannsins leitað í gær. Hann
hafði ekki fundist og virtust
engar vísbendingar liggja fyrir.
■ Þrír menn handteknir eftir árás ■ Ástæða árásarinnar ókunn
■ Húseigandi ósáttur við lögreglu
Eftir Val Grettisson valur@bladid.net
Fáfnismaðurinn Jón Trausti Lúthersson, sem
þekktur er af ofbeldisbrotum, var í haldi lög-
reglunnar í gær grunaður um líkamsárás við
verslunina 10-11 við Barónsstíg. Jón Trausti er,
ásamt tveimur öðrum mönnum, sakaður um
að hafa ráðist að manni, sem þeir þekktu, með
járnstöng og trékylfu. Manninn sakaði ekki al-
varlega og hann hefur ekki kært árásina.
Lögreglan kom fljótt að versluninni en árás-
armennirnir þrír voru á bak og burt. Þeir náð-
ust síðar um kvöldið og voru færðir á lögreglu-
stöðina til yfirheyrslu.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu er óljóst
hver kveikjan að árásinni var, en Jón Trausti
er þekktur í undirheimum Reykjavíkur fyrir
handrukkanir.
Vopnin fundust þegar lögreglan gerði húsleit
í húsi sem er afdrep félaga í Fáfni. Húsið er í
eigu Sverris Einarssonar, sem er betur þekktur
sem Sverrir tattú. Hann er félagi í Fáfni og
segir leit lögreglu hafa verið ólöglega með
öllu. Hann segir lögreglu ekki hafa sýnt húsleit-
arheimild eins og skylt er að gera.
„Þeir brutu tösku og ollu nokkrum
skemmdum," segir Sverrir, ósáttur við aðfarir
lögreglunnar.
Um síðustu áramót létust tveir sprautufíklar
í húsinu eftir að hafa tekið of stóra skammta.
Þegar rætt var við lögregluna í gær stóðu yfir-
heyrslur enn yfir og málsatvik voru ekki kunn
að fullu.
178. tölublað 2. árgangur
föstudagur
11. ágúst 2006
■ PJOÐHATIÐ
Kominn timi á vaktaskipti segir
nýi kynnirinn
I SÍÐA 20
■ TONLIST
Idolstjörnurnar standa ekki
undir væntingum plötusala
I SlÐA 30
Mengunarvaldar:
Stóriðjan
mengar mest
Stóriðja er mesti mengunar-
valdur íslands. Sigurður Ingi
Friðleifsson, framkvæmdastjóri
Orkuseturs, segir að að losun
gróðurhúsalofttegunda hafi auk-
ist mikið á íslandi undanfarin ár.
„Með gangsetningu Fjarðaáls og
stækkun álvera má reikna með
að stóriðja muni valda útblæstri
um 2.300 þúsund tonna af gróður-
húsalofttegundum á ári hverju.“
Sigurður segir að ef stór-
iðjuframleiðslan fengi orku
úr kolaorkuverum væri losun
koltvísýrings í andrúmsloftið um
fimmtán milljón tonnum meiri
en nú er. „Þetta er sá alþjóðlegi
umhverfisgróði sem fæst með því
að keyra stóriðju á endurnýjan-
legum orkugjöfum. Ef Fjarðaál
fengi orku frá kolaorkuveri þá
yrði útblásturinn við slíka raf-
orkuframleiðslu um 4,5 milljón
tonn á ári. Til samanburðar var
heildarlosun gróðurhúsaloftteg-
unda á íslandi árið 2003 um þrjár
milljónir tonna."
I SÍÐUR10 OG11
Beittu trékylfu og járnstöng