blaðið - 11.08.2006, Blaðsíða 11

blaðið - 11.08.2006, Blaðsíða 11
blaðið FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST2006 FRÉTTIR 11 og Metan gera. Best væri ef við gætum fullnýtt innlent metan til að setja á bíla og nauðsyn- legt er að opinberir aðilar taki sig saman um metanvæðingu eigin bílaflota," segir Sigurður Ingi. Metan er eina innlenda elds- neytið sem er á markaði. Á heimasíðu Orkustofnunar kemur fram að án gróðurhúsa- áhrifa mætti reikna með að meðalhitastig á jörðinni væri um -i8°C í stað 15°C eins og það er nú. Því má segja að gróður- húsaáhrifin séu forsenda fyrir lífi á jörðinni. Mikil aukning þessara áhrifa, vegna losunar gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum, gæti valdið hita- aukningu og hættulegri röskun á veðurfari og vistkerfum jarðar. Yfirborð sjávar hækkaði og flóða- hætta eykst á þéttbýlum og frjó- sömum svæðum. Þá myndu gróð- urbelti færast til og lífsskilyrði i sjó breytast vegna breytinga á straumum og seltu sjávar. Fræðimenn hafa deilt um áhrif mannsins í loftslagsbreytingum. „Flestar aðgerðir til minnkunar á útblæstri skila sér í minni olíu- notkun sem er jákvætt hvernig sem á er litið. Svo má Hka horfa á þetta þannig að þú ert að borða epli og einn vísindamaður segir þér að eplaátið muni drepa þig en annar segir að það geri það alls ekki. Hvort heldur þú áfram að borða eplið eða ekki?“ Öryggisráðið deilir um útfærslu vopnahlés: Israelar fresta hernaðaraðgerðum ísraelsk stjórnvöld ákváðu í gær að fresta víðtækum hernaðarað- gerðum á landi í suðurhluta Líb- anon fram til helgarinnar til þess að veita samningaviðræðum um vopna- hlé frekara svigrúm. Tilkynningin kom degi eftir að stjórnvöld veittu hernum heimild til þess að fara enn lengra inn í Líbanon en áður, til þess að uppræta vígamenn Hizballah i suðurhluta landsins. Þrátt fyrir ákvörðun stjórnvalda um að halda að sér höndum er enn deilt um útfærslu vopnahlés á vettvangi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Þrátt fyrir að samstaða sé innan öryggisráðsins um brýna þörf á vopnahléi á átökum á milli ísraela og vígamanna Hizballah í Líbanon er enn deilt um útfærslu þess og framkvæmd. Deilan felst fyrst og fremst í því hvort að brotthvarf hermanna fsraela frá suðurhlut- anum eigi að hefjast um leið og vopnahlé er lýst yfir eða hvort að ísraelsmenn muni verða á svæðinu þangað til að fjölþjóðlegt herlið verður sent þangað. Frakkar, sem ásamt Bandaríkjamönnum standa að baki ályktun sem liggur á borði öryggisráðsins um vopnahlé, vilja að ísraelar dragi herlið sitt til baka áður að vopnahlé tekur gildi. Banda- ríkjamenn styðja hins vegar kröfu fsraela um að herlið þeirra verði í suðurhlutanum þangað til að fjöl- þjóðlegt herlið getur tekið við gæslu á svæðinu. Slíkt getur tekið margar vikur eða mánuði. Stjórnvöld í Líbanon eru alfarið á móti að vopnahlé taki gildi áður en að ísraelar hverfi á brott með herlið sitt úr landinu. Þau hafa lagt fram tillögu þess efnis að 15 þúsund líb- anskir hermenn gæti suðurhluta Líbanons í samstarfi við fjölþjóðlegt herlið. Daglegt líf á stríðstímum Líbanskur maður talar í farsíma við húsarústir í Beirút AFSÖKUN: Á LITLUM HRADA ÞARF ÉG EKKI Aí> NOTA BÍLBELTI NOTABU ALLTAF BÍLBELTI FIA Foundation for fhe Automobííe arid Soctety Umferðarstofa

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.