blaðið - 11.08.2006, Blaðsíða 27

blaðið - 11.08.2006, Blaðsíða 27
blaöiö FÖSTUDAGUR ll.ÁGÚST. 2006 27 Jón Gauti Jónsson, ritstjóri ferða- tímaritsins Útiveru, er alvanur útivist- armaður og mikill unnandi göngu- ferða um náttúru landsins. Til að byrja með beindist hugur hans mest að bröttum fjöllum og torkleifum en á síðustu árum eða eftir að yngsta barnið varð fjögurra ára hefur göngu- ferðum með fjölskyldunni fjölgað jafnt og þétt. Yfir verslunarmanna- helgina tekur Jón Gauti því alla jafna rólega eða fer í stuttar göngur og þegar blaðamaður Blaðsins náði sam- bandi við hann var hann nýkominn úr einni slíkri ásamt fjölskyldunni, Huldu Steingrímsdóttur konu sinni og börnunum Sólveigu Láru (12 ára), Heru (7 ára) og Kolbeini Tuma (5 ára) eftir vel heppnaða ferð á Arnarfell við norðaustanvert Þingvallavatn, en daginn áður gengu þau öll á Þverfells- horn Esju. Fjallgöngur góð fjölskyldusamvera Jón Gauti segir fjallgöngur án nokkurs vafa einhverja albestu fjöl- skyldusamveru sem hægt er að hugsa sér. Hann segir að þetta sé vegna þess að í fjallgöngum skapist tóm fyrir fjölskylduna til að ræða saman um allt rnilli himins og jarðar um leið og stefnt er að sameiginlegu markmiði. .Ánægjan endurspeglast síðan í líðan barnana sem áður en maður veit af eru farin að glugga í kort og bækur til að velja næsta tind.“ En hvert á aðfara nœst? „Nú er enginn jeppi á heimilinu, sem takmarkar aðeins þær leiðir sem hægt er að fara svo að við settum okkur það markmið að ganga á fjöll í nágrenni höfuðborgarinnar með sér- stakri áherslu á fjöll sem við sjáum frá heimilinu, svo það er af nógu að taka,” segir Jón Gauti. “Ætli Skeggi í Henglinum sé ekki næsta takmark okkar en svo fara berin og haustlit- irnir á láglendinu að toga meira í okkur og þá er líklegt að okkur skoli inn í Hvalfjörð eða til Þingvalla en þar höfum við alltaf átt auðvelt með að finna fallegar leiðir. I fyrrasumar gengum við suður Laugaveginn með börnin en í lok mánaðarins ætlurn við að ganga með þeim yfir Fimm- vörðuháls og enda í Þórsmörk sem togar alltaf jafnmikið í okkur.“ Nokkrar göngulciðir Jón Gauti segir margar gönguleiðir í nágrenni höfuðborgarinnar sem eru á allra færi. Búrfell í Heiðmörk (5 km fram og til baka) - Virkilega falleg og þægileg kvöldganga um sögulegt og sérkennilegt landslag. Lítið á fótinn og hentar algerum byrjendum. Gálgahraun á Álftanesi Fyrir þá sem ekki hafa fengið nóg af hinum fallega fugli sílamáfinum. Kaldársel - Helgafell - Vala- hnúkar Stutt og þægileg ganga á nokkuð áberandi fjall sunnan Reykja- víkur. Þeir sem ekki hafa fengið nóg ættu að ganga umhverfis Valahnúka. Bílum lagt við Kaldársel. Hraunin suðvestan Straumsvíkur (12 km hringur en hægt að stytta að vild) Staður sem flestir þjóta fram- hjá á öðru hundraðinu en er vel virði meiri athygli. Mikil náttúra og saga um byggð frá 12 öld. Best er að leggja bílumhjá Straumi. Keilir frá Höskuldarvöllum (7-8 km) Fjallganga á fallega lagað fjall með miklu og góðu útsýni yfir Reykjanesið Skeggi í Hcnglinum frá Nesja- vallavegi í Dyrafjöllum (6-8 km) Hengill er megineldstöð svo jarðhiti er víða áberandi. Af Skegga er fallegt útsýni yfir Þingvallavatn til norðurs og Reykjavikur til vesturs. Móskarðshnúkar (7 km fram og til baka og um 700 metra hækkun) Ríkulega launuð fjallganga með góðu útsýni af fallegum tindi. Brennisteinsfjöll um Grindar- skörð (15 km hringur - góð dags- ganga) Áhugavert svæði sem tillögur eru uppi um að virkja og því e.t.v. ekki seinna vænna að skoða það. Jón Gauti Jónsson skrifaði bókina Gengið um óbyggðir sem Almenna bókafélagið gaf út árið 2004 en er nú ritstjóri tímaritsins. einar.jonsson@bladid.net Ferðasögusamkeppni Tímaritiö Útivera leitar nú að áhugaverðum feröasögum. Lumar þú á ferðasögu? Ferða- og útivistartímaritið Útivera efnir um þessar mundir til ferðasögusamkeppni og eru veglegir vinningar í boði. Þær sögur sem lenda í þremur efstu sætunum munu jafnframt birtast í tímaritinu í samráði við höfunda þeirra. Síðasti skiladagur er 1. október en föstudaginn 3. nóvember verður öllum sem sendu inn ferðasögu í samkeppnina boðið til samsætis þar sem verðlaun verða veitt fyrir bestu söguna að mati dómnefndar. (dómnefnd sitja Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur sem jafnframt er formaður dómnefnd- ar, Andri Snær Magnason rithöf- undur og Jón Gauti Jónsson ritstjóri Utiveru Skilyrði sögunnar Rammi ferðasögunnar getur verið á íslandi eða hvar sem er í heiminum. Lengd texta má vera allt að 18.000 slög (um það bil fimm A4 bls. með 12 punkta letri og ein- földu línubili) en einnig styttri. Ferðasögunni skal skila á tölvu- tæku formi sem word- eða texta- skjali (án mynda). Aftast í skjalinu skulu vera nöfn höfundar/höf- unda og Ijósmyndara ásamt heimilisfangi, síma og netfangi. Myndir (allt að 10) á jpg-formi og í lágri upplausn (hver mynd < 300 KB). Verði af birtingu er nauðsynlegt að fá myndirnar í hærri upplausn. Skjal (word) með nöfnum Ijós- myndara, myndatextum og tilvís- unum í meðfylgjandi myndir. Ferðasöguna ásamt myndum og myndatexta skal senda á utivera@utivera.is eða Útiveruút- gáfan ehf. Bæjarhrauni 22, 220 Hafnarfjörður, merkt „Ferðasögu- samkeppni" fyrir 1. október 2006. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir þrjár bestu sögurnar. Sá sem á sigursöguna fær (slands Atlas Eddu, Polar AXN 700 útivistarúr og fleira. Að auki fá allir höfundar og Ijósmyndarar ferðasagna sem valdar verða til birtingar í Útiveru að launum áskrift að Útiveru Ferðin undirbúin á vefnum Maður nýtur ferðalagsins mun betur ef maður gefur sér tíma til að kynna sér áfangastaðinn, menningu hans og sögu áður en lagt er í hann. Þá veit maður hvað maður vill sjá, nýtir tíma sinn betur og verður síður fyrir vonbrigðum með ferðina. Auk hefðbundinna ferðamannahandbóka er til ógrynni af vefsíðum þar sem nálgast má upplýsingar um erlendar borgir og framandi staði. Þó að flestar vefsíðurnar séu á erlendum málum eru einnig til nokkrar upplýsandi og gagnlegar síður á íslensku sem óhætt er að mæla með við ferðalanga. Romarvefurinn.is Rómarvefurinn er yfirgripsmik- ill ferða-, menningar- og söguvefur um allt sem tengist Ítalíu, landi og þjóð. Þar er ekki aðeins að finna hefð- bundnar upplýsingar fýrir ferðamenn um áhugaverða staði, gistimöguleika og samgöngur heldur er þar einnig heilmikill fróðleikur um ítalska sögu og menningu. Gildir einu hvort maður vilji fræðast um mafíósa, páfa, pitsur, pasta eða eitthvað annað. Ef það er ítalskt er það örugglega á Rómarvefnum. Parisardaman.com Hver ferð til Parísar ætti að hefjast með innliti á www.parisardaman. comenda er þar að finna hafsjó af upp- lýsingum um borgina við Signu og ná- Hringleikahúsið í Róm Romarvefurinn.is er hafsjór upplýs- inga um Róm og allt sem italskt er. grenni hennar. Kristín Jónsdóttir sem starfað hefur sem leiðsögumaður í París um árabil og þekkir hvern krók og kima i borginni heldur síðunni úti og eys þar af brunni þekkingar sinnar. Hjá Parísardömunni má nálgast alls kyns hagnýtar upplýsingar um veit- ingastaði, söfn og verslanir og fréttir af lífinu í borginni. Ferdaiangur.net Ef maður hyggst eyða fríinu á meginlandi Evrópu finnur maður örugglega gagnlegar upplýsingar á Ferðalangi og gildir þá einu hvert för- inni er heitið. Margrét Gunnarsdóttir fararstjóri hjá Bændaferðum á heiður- inn af vefnum en hún heldur einnig úti sérstökum hótelvef (hotelvefurinn. net) og sumarhúsavef (sumarhusavef- urinn.net). Á síðunni kemur fram að tilgangur hennar sé „að miðla fróðleik til sjálfstæðra ferðalanga; þeirra sem hafa gaman af að ferðast um meginland Evrópu, ekki sist á Borg Ijósanha*' Á Parisardaman.com erhægt að finna ýmsar hagnýtar upplýsingar um borgina viö Signu. eigin vegum (ódýrt!) og hafa gaman af að lesa sér til áður en haldið er af stað.“ Handhægt flokkunarkerfi gerir notendum auðvelt að leita upplýsinga um það sem þeir hafa mestan áhuga á og enn fremur geta þeir skráð sig í fréttabréf síðunnar og fengið ýmsar hagnýtar ábendingar, upplýsingar og auglýsingar sem ekki birtast á sjálfri vefsíðunni. Ferðir við allra hæfi Ferðafélg Islands og Útvist standa fyrir margs konar ferð- um allan ársins hring jafnt fyrir óvana sem þaulreynda ferða- langa. Félögin bjóða jafnt upp á styttri sem lengri ferðir og er óhætt að mæla með þeim við þá sem hafa áhuga á að bregða sér út fyrir bæjarmörkin einhverja helgina og stunda úti- vist í fallegu umhverfi, í góðum félagsskap og undir traustri leiðsögn. Á sunnudag býður til dæmis Útivist upp á ferð um fjallið Klakk sem er einn af út- vörðum Langjökuls. Ferðafélag (slands verður aftur á móti með dagsferð um Þjórsárver sama dag og er tilgangur ferðarinnar að kynna fólki verin án þess að leggja í margra daga erfiða ferð yfir jökulvötn. Ferðaáætlanir og nánari upplýsingar um einstaka ferðir má nálgast á heimasíðum félaganna fi.is og utivist.is.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.