blaðið - 11.08.2006, Blaðsíða 30

blaðið - 11.08.2006, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006 blaðið t«»PP 10 XFM - • r\ Damage The Cooper Tem... 4 II?1 Hands The Raconteurs 6 1W If Your Poison... Frank Black 8 2 The One Trabani < 11 3 3 If the Morning Razorlight ^ * VI. V' 1 ’ A % 'y Æ Portishead Sveitin hefur engan áhuga á vinna með Danger Mouse ef marka má ummæli forsprakka sveitarinnar Geoff Barrow. 2 mWPurple Skin 4 Q Heart In Line Toggi ífr 6 That's The... Marie Serneholt ttfZZDTonight the Night.. Gína G 10 Q Crystall Ball Keane „My best friend’s a butcher, he has 16 knives He carries them all over the town, at least he tries. Oh look, it stopped snowing. My best friend’s from Poland and, um, he has a beard But they caught him with his case in that public place That is what we had feared" Úr laginu Roland með hliómsveitinnl Interool Músin kemur ekki nálægt okkur Geoff Barrow, forsprakki hljómsveitarinnar Portishead hefur tekið til baka ummæli sín um Gnarls Barkley-meðliminn Danger Mouse. Barrow sagði á Myspace-heimasíðu sinni í vikunni að hann myndi frekar skíta á helgarsteik móður sinnar en að vinna nýjustu plötu Portishead með Danger Mouse. í næstu færslu sinni á síðunni tek- ur hann orð sín til baka. „Ég vil bara segja að ég lít ekkert hátíðlega á sjálfan mig þrátt fyrir orð mín um vissan tónlistarmann í gær. Þetta var aðeins svar við vangaveltum fólks sem bjóst við að hann myndi vinna með okkur að plöt- unni. Ef ég á að vera fullkomnlega hreinskilinn þá hata ég allt. Skál.“ Portishead leggur þessa dagana lokahönd á sína fyrstu plötu frá árinu 1997. Gnarls Barkley hefur gert allt vitlaust í sumar með lögum á borð við Crazy og Smiley Fac- es. Danger Mouse, sem er heilinn á bakvið sveitina, hefur ekkert sagt opinberlega um Danger Mouse ummæli Barrow. 11. ágúst í rokksögunni... 1973 Umboðsmaðurinn Bill Aucoin býður hljóm- sveitinni Kiss þjónustu sína og reddar þeim útgáfu- samningi. 1966 John Lennon biðst afsökunar á því að hafa sagt Bítlana stærri en Jesúm. a handfrjóls búnaður í bílinn Car kit CK-7W HENDURNAR á stýrinu AUGUN á veginum... * Bluetooth búnaður í bílinn * Svarhnappur, hátalari og hljóðnemi * Lækkar sjálfkrafa í hljómtækjum * Sjálfvirk tenging við síma Þú færð handfrjálsan búnað f bflinn f Hátækni og hjá söluaðilum NOKIA. NOKIA Idolið rekið með tapi Þegar Kalli Bjarni sigraði fyrstu íslensku Idol-keppnina var honum tjáð í, beinni útsendingu, að frægð og frami biði hans. Tónleikar um land allt, fram fyrir í röðum og eig- inhandaráritanir voru aðeins hluti af því sem hans beið en í fyrstu verð- laun hlaut hann einnig samning við stærsta útgáfufyrirtæki landsins, Senu. Fokdýr framleiðsla Það leið ekki langur tími þar til Kalli hafði gefið út breiðskífu. Salan gekk ekki vel og stendur nú í 2200 til 2300 eintökum sem er töluvert fyrir neðan væntingar útgáfunnar. Að sögn Eiðs Arnarssonar, útgáfustjóra íslenskrar tónlistar hjá Senu, eru hinar svokölluðu „Idol-plötur“ oft dýrari í framleiðslu en aðrar plötur vegna ýmissa réttindagreiðsla út til eigenda idol-vörumerkisins. Þá þarf að kaupa allan hljóðfæraleik og ofan á það leggst hönnunar-, framleiðslu- og markaðssetningarkostnaður. Id- ol-plötur eru sem sagt fokdýrar. Margir halda að miklir fjármunir streymi ofan í vasa idolstjarnanna sem komast svo langt að gefa út plötu. Sannleikurinn er langt því frá þar sem aðeins tvær af sjö idol- plötum sem komið hafa út hjá Senu stóðu undir kostnaði. „Reynslan hef- ur sýnt að um 5000 eintök þurfi að seljast til að svara kostnaði," segir Eiður hjá Senu. „Það er mjög hátt á íslenskan mælikvarða." Plata Hildar Völu og fyrsta plata Jóns Sigurðsson- ar seldust í rúmlega 7000 og 5000 eintökum og skiluðu stjörnunum smá aur í vasa. Sena tapaði hins vegar að sögn Eiðs á plötum Heiðu (kringum 3000 eintök seld), Dav- íðs Smára (Um 1500 eintök seld) og Kalla Bjarna (Um 2300 eintök seld). Þá stefnir plata nýjustu Idolstjörn- unnar, Snorra, í 3000 eintök sem hlýtur að teljast vonbrigði. Minni spámenn græða Minni útgáfufyrirtæki eins og 12 Tónar og Smekkleysa hafa augljós- lega ekki úr jafnmiklum fjármun- um að spila og Sena. Það gerir að verkum að plötur sem koma út á þeirra vegum eru töluvert ódýrari í framleiðslu. Plöturnar kosta þó yfirleitt svipað mikið út úr búð og eru því mun fljótari að seljast upp í kostnað - ef þær seljast eitthvað á annað borð. Samkvæmt heimildum Blaðsins hefur fyrsta plata tónlist- armannsins Þóris, sem 12 Tónar gefa út, selst í vel yfir 1000 ein- tökum. Það er töluvert minna en meðal Idol-plata en á móti kem- ur að framleiðslukostnaður og kynning plötunnar var mun minni. Það hlýtur að telj- ast furðulegt að söngvarar sem koma fram í einum vin- sælasta sjón varpsþætti landsins og fá þúsundir atkvæða í símkosn- i n g u m skuli ekki ná að selja plötur upp í kostn- að. „Þetta tengist einföldustu reglu tónlistarbransans og hans mestu þrekraun sem er að yfirfæra áhuga í sölu,“ segir Eiður hjá Senu og bæt- ir við að eðli útgáfubransans sé spá- mennska út í eitt. Tilgangur idolsins Þetta vekur óneitanlega spurning- ar um tilgang idolsins. Reynsl- an hefur sýnt okkur að fæstar virðast idolstjörnurnar ætla að vera langlífar í tónlistarbrans- anum. Þá fóru vinsældir þátt- anna lækkandi með hverri þáttaröðinni og nú hefur framleiðslu þeirra verið hætt en nýr og breyttur þáttur tekur við í haust. Idolið var fyrst og fremst skemmtilegt sjónvarpsefni. Þrátt fyrir að áhorfið hafi mælst mest yfir 60% voru ekki nema um 5% af þeim sem létu sig hafa það að hlaupa út í búð og versla sér plötu með uppá- halds idolstjörnunni sinni. atli@bladid.net . Dyrar stjornur Hildur Vala ber höfuð og herðar yfir aðra keppendur idolsins þegar kemur að plötusölu. Davið Smári og nýja stjar- nan Snorri eiga ekki séns i hana.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.