blaðið - 11.08.2006, Blaðsíða 29

blaðið - 11.08.2006, Blaðsíða 29
29 Saha og Silvestre hafa trú á liðsfélaga sínum: Ronaldo mun þola mótlætið Umdeildur Cristiano Ronaido er ekki vinsælasti knattspyrnu- maðurinn á Engiandi um þessar mundir. Louis Saha, sóknarmaður Manc- hester United, segir að liðsfélagi sinn Cristiano Ronaldo muni ekki eiga í nokkrum vanda með að takast á við mótlæti frá stuðningsmönnum annarra liða í vetur. Ronaldo er afar óvinsæll á Englandi eftir framgöngu sína á HM í sumar en þar varð hann oftar en einu sinni uppvís að óíþrótta- mannslegri framkomu. „Það má búast við því að leikmönn- um eins og Cristiano verði gert erfitt fyrir en það eina sem hann getur gert við því er að standa sig eins vel og hann mögulega getur á knattspyrnu- vellinum,“ sagði Saha. „Ronaldo er orðinn nógu sterkur leikmaður til þess að gera það og takast á við svona hluti.“ Varnarmaðurinn Mikael Sil- vestre tók í sama streng. „Ég veit að stuðningsmenn okkar munu halda áfram að styðja við bakið á honum og það skiptir öllu máli. Þeir hafa allt- af gert það fyrir leikmenn sem hafa lent í mótbyr,“ sagði Silvestre. Manchester United lék æfingaleik við Oxford á þriðjudag og var það fyrsti leikur Ronaldos á Englandi frá því á HM. Mikið var baulað á Portú- galann unga en hann svaraði fyrir sig með glæsilegri frammistöðu og tveimur góðum mörkum. Körfuknattleikur: Dregið í riðla í Evrópukeppninni Dregið var i riðla í Evrópukeppni félagsliða í körfuknattleik í gær. Þrjú íslensk félög taka þátt í keppnunum að þessusinnienþaðerulslandsmeistarar Njarðvíkur og Keflavík í karlaflokki og Islandsmeistarar Hauka í kvennaflokki. Njarðvík og Keflavík taka þátt í áskorendabikarkeppninni, EuroCup Challange, en alls taka 16 lið þátt í þeirri keppni. Njarðvík dróst í C-riðil með Cherkasy frá Úkraínu, Samara Webber í Formúluökumaðurinn Mark Web- ber mætir í Smáralind í dag, hvar hann mun m.a. keppa við íslenska Formúluáhugamenn í Formúluleik í Play Station og gefa gestum eigin- handaráritanir. A hádegi fer svo fram keppni í dekkjaskiptingum milli sex íslenskra liða og hlýtur sigurliðið ferð fyrir tólf á kappakst- urinn í Tyrklandi í lok ágúst. Webber flaug til Islands i gær frá Heathrow-flugvelli á Englandi en lenti í nokkrum vandræðum vegna hryðjuverkaógnarinnar sem stóð yfir í gær. Um tima leit út fyrir að ekki yrði flogið en allt fór þó vel og Webber komst að lokum. frá Rússlandi og Tartu Rock frá Eistlandi. Keflavík dróst í D-riðil ásamt Dnipro frá Úkraínu, Mlekarna Kunin frá Tékklandi og Norrköping frá Svíþjóð. Haukarstúlkur, sem eru að taka þátt í Evrópukeppninni í annað sinn, lentu aftur á móti félögum frá Frakklandi, Spáni og Italíu eins og í fyrra. Mótherjar þeirra í F-riðli verða Montpellier, Gran Canaria og Lavezzini Parma. Smáralind Eyjólfur Sverrisson hefur gert eina breytingu á landsliðshópnum fyrir vináttuleikinn gegn Spáni á þriðjudaginn kemur. Hjálmar Jónsson, leikmaöur IFK Gautaborg, kemur inn í hópinn í staö Brynjars Björns Gunnarssonar sem er meiddur á nára. Skeytin inn Svíinn Zlatan Ibrahimov- ic gekk í gær til liðs við Inter Milan frá Juventus. Ibrahimovic, sem er 24 ára, fylgir þar með í fótspor Patrick Vieira sem yfirgaf Juventus fyrir ítölsku meistarana eftir að Tórín- óliðið var dæmt niður um deild. Inter greiðir rúmar 11 milljón- ir punda fyrir kappann sem skoraði 23 mörk í 70 leikjum fyrir Juventus. Ibrahimovic er sjötta stórstjarnan sem yfirgefur Juventus í kjölfar hneykslismáls- ins en hinar eru Fabio Cannavaro, Gianluca Zamb- _ rotta, Lilian Thuram og áðurnefndur Vieira. avid James, varamarkvörð- ur enska landsliðsins, vill fara frá Manchester City. Kærasta James býr á suðurhluta Englands og vill hann fara til liðs sem er staðsett nær henni. Hefur Portsmouth verið nefnt sem lík- legur áfangastaður. „David hefur greint okkur frá því að hann vilji fara frá félaginu,“ sagði Stuart Pe- arce, stjóri City, á blaðamanna- fundi í gær. „Ég er undirbúinn fyrir það að hann muni fara en Portsmouth verður þá að greiða það verð sem við viljum fá fyrir hann.“ Sænski landsliðsmarkvörð- urinn Andreas Isaksson og Jerzy Dudek hjá Liverpool eru sagðir efstir á óskalista Pearce yfir mögulega staðgengla James. Andy van der Meyde hefur verið sektaður af Everton fyrir að fara út að skemmta sér og drekka áfengi á sunnudagskvöld í tráss við reglur sem David Moyes, stjóri liðsins, hafði sett. Van der Meyde var fluttur á sjúkrahús á mánudag vegna önd- unarerfiðleika og hélt hann því fram að ólyfjan hefði verið bland- að í drykk hans. „Ég er búinn að ræða við Andy og honum þykir fyrir því sem átti sér stað. Hann fær sekt fyrir að brjóta reglurnar en við látum þar við sitja,“ sagði Moyes. Van der Meyde, sem er 26 ára, hefur verið mikið frá vegna meiðsla og aðeins leikið 11 leiki fyrir Everton frá því hann kom _ til liðsins fyrir ári síSkJ&í&s. síðan. SANNKÖLLUÐ UPPSKERUHÁTÍÐ FYRIR SKYNSAMT FÓLK BJÓÐUM STÓRKOSTLEGT ÚRVAL HEIMILISTÆKJA, VEGGSJÓNVARPA, HLJÓMTÆKJA O.M.FL. MEÐ 15-40% AFSLÆTTI MEÐAN BIRGÐIR ENDAST! NOKKUR PÆMIi PfO/lí DVD skrifari Verð áður: 29.900 kr. TILBOÐSVERÐ: 21.900 kr. Þú sparar: 8.000 kr Falleg, frönsk hágæöa leirvara. 30% vafsláttu 1700W Turbo ryksuga Verð áður: 10.990 kr. TILBOÐSVERÐ: 7.990 kr. Þú sparar: 3.000.- kr Pottar og pönnur 25-40% afsláttur Strjáujárn 20% afsláttur miRRi 32” LCD Sjónvarp Verð áður: 1 79.900 kr. TILBOÐSVERÐ: 1 49.900 kr. Þú sparar: 30.000.- kr Ébrabantia ielfd compéity Strauborð, ruslafötur og margt fleira. Hönnun á heims- mælikvarða. 20%' • afslátturj Frábært úrval af DVD hljómleikadiskum 20% afsláttur tölvuleikir frá 590 kr. stk. UMBOÐSMENN UM LAND ALLT WWW.ORMSSON.IS ÞU GERIR EKKI BETRI NÉ VANDAÐRI KAUP AEG þvottavél 1600 snúninga, 6 kg., Islenskt stjómborð. AEG þurrkari mjög hljóðlátur, fjöldi prógramma, Islenskt stjórnborð. i’ASTA SINS lavamat 76820 Lavatherm 57820 TILBOÐ: KR. 175.000 PARIÐ (Fullt verð: KR. 213.900) KOMDU OG GERÐU GOÐ KAUP! ORMSSON i' AKUREYRI • Sími 461 5000 | KEFLAVÍK • Slmi 421 1535 I SMÁRAUND • Simi 530 2900 I SÍÐUMÚLA 9 ■ Simi 530 2800 I LÁGMÚLA 8 • Sími 530 2800

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.