blaðið - 11.08.2006, Blaðsíða 12

blaðið - 11.08.2006, Blaðsíða 12
12 I FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST2006 blaöiö Ódýrast í Mumbai Ósló og London eru dýrustu borgir heims á meðan að engir njóta hærri kaupmáttar en íbúar í Zúrich og Genf. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri út- tekt svissneska bankans UBS á kaupi og kjörum í sjötíu og einni borg víðsvegar um heim. Evrópskar borgir eru i efstu sætunum þegar kemur að dýr- ustu borgunum en í úttektinni er miðað við verð 122 tveggja vara. Einna ódýrast er að búa í Kúala Lúmpúr, í Malasíu, og Mumbai, á Indlandi. Ósló vermdi einnig efsta sætið í úttektinni í fyrra en verðbólga hefur fleytt London í annað sætið úr því fimmta. í kjölfar þessara borga koma svo Kaupmannahöfn, Zúrich og Tókýó. New York er í því sjöunda. London og New York er dýrustu borgir heims þegar búið er að taka tillit til húsnæðisverðs. Samkvæmt úttektinni þéna íbúar Norður-Ameríku og Vestur-Evrópu mest íbúa heims- ins en töluvert minna stendur eftir í vösum Evrópumanna en Bandaríkjamanna þegar ríkið hefur tekið sitt. Hæstu launin eru borguð til íbúa Kaupmannahafnar, Óslóar og Zúrich en þegar búið er að taka frá skatta og önnur gjöld hafa íbúar svissneskra borga, Dyfl- innar og Los Angeles mest á milli handanna. Verkamenn í borgum Asíu vinna hvað mest en vinnu- vika þeirra er á meðaltali um 41 stundir sem þýðir að þeir vinna á hverju ári um fimmtíu fleiri daga en bræður þeirra og systur í París og Berlín. Hvalfjarðargöng: Umferð eykst Umferð í Hvalfjarðargöngum var fimmtán prósent meiri um verslunarmannahelgina nú en á sama tíma í fyrra. „Það kemur tæplega á óvart þegar hafður er í huga straum- urinn að sunnan norður yflr heiðar; til Akureyrar, Siglu- fjarðar og fleiri staða sem höfðu áberandi aðdráttarafl,“ segir í fréttatilkynningu frá Speli. 391 ökumaður var mældur á of miklum hraða í Hvalfjarðargöng- unum um þessa sömu helgi. Fjármagnstekjur einstaklinga: Spákaupmenn í miklum minnihluta Mest sala eigna Ekki áhyggjuefni, segir sérfræðingur VSB fjárfestingarbanka Hætta á brottflutningi spákaupmanna Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net Um 2.200 einstaklingar töldu eingöngu fram fjármagnstekjur á síðasta tímabili í stað launa- tekna og hefur ríkisskattstjóri lýst áhyggjum sínum yfir því að sá hópur fari ört vaxandi. Jón Þórisson, hjá VSB fjárfest- ingarbanka, segir aukið frjáls- ræði í íslensku efnahagslífi vera ástæðuna fyrir því að losnað hefur um eignir fólks og það nýtur fjármagnstekna af þeim. „Ég er undrandi á þeirri um- ræðu að einhver mismunun sé að eiga sér stað. Þessir fjármunir sem losna eru þannig að oftast er búið að greiða aðra skatta af þeim þannig að mismunurinn er lítill sem enginn. Þó svo að vaxandi hópur einstaklinga telji aðeins fram fjármagnstekjur er ekki þar með sagt að þeir hafi endilega meiri tekjur en aðrir. Auðvitað fer bilið vaxandi á milli tekjuhópa landsins og við því er fátt að gera,“ segir Jón. „Sáralítið brot af þessum hópi eru spákaupmenn sem selja og kaupa bréf að atvinnu. Hins vegar tel ég þetta réttlætanlegt gagnvart þeim því þeir taka mikla áhættu í starfi sínu og geta jafnauðveldlega tapað háum fjárhæðum sem og unnið þær. Ef að umhverfi þeirra yrði skert að einhverju leyti og gert síðra en í nágrannalöndunum tel ég enga fyrirstöðu fyrir spákaup- menn að flytja starfsemi sína úr landi. Þannig myndum við missa af skattatekjum þessara einstaklinga.“ Jón telur niðurstöðu fjárlaga- nefndarinnar fyrir nokkrum árum að skattleggja fjármagns- tekjur um tíu prósent mjög farsæla. „Mín tilfinning er að vel innan við fjórðungur þeirra sem gefa aðeins upp fjármagnstekjur stundi spákaupmennsku og því eru þetta ekki bara hákarlar sem sitja við tölvuna heima hjá sér,“ bætir Jón við. hlNOMANNA FEGRÆÐOI :V.0R.€DG1 ****** HLEKKJAR LAUNÞEGA V.KK.1AR LáUNÞEGA nur hlut Mayon-eldfjallið í Albay-héraði: Eldgos yfirvofandi á Filippseyjum . Stjórnvöld á Filippseyjum hafa hafið flutning á um fjörtíu þúsund fbúum sem búa í nágrenni við Mayon- eldfjallið í Albay-héraði á eyjunum. Töluverð skjálftavirkni hefur verið við Qallið frá því í febrúar á þessu ári og hraun byrjaði renna úr eldsprungum í síðasta mánuði. Á mánudag hófust svo sprengingar í fjallinu og óttast er að eldgos hefjist á hverri stundu. Yfir- völd hafa fyrirskipað flutning á öllum þeim sem búa í átta kílómetra fjar- íægð við fjallið. Fjallið er hulið svörtu öskuskýi sem lýsist upp við eldglæringarnar. Þrátt fyrir yfirvofandi gos og ógnvekjandi sjón eru íbúar í nágrenni þess ófúsir að hverfa á brott frá heimilum sínum þar sem þeir óttast um eigur sínar. 1 gær hafði stjórnvöldum aðeins tek- ist að fjarlægja um sextíu prósent af íbúum svæðisins en ekki hafði enn tek- íst að sannfæra um fimmtán þúsund manns um að yfirgefa búfénað sinn og jarðir. Gloria Arroyo, forseti lands- ins, hvatti íbúa svæðisins að fyigja til- skipun stjórnvalda og yfirgefa heimili sín. Hún sagði ennfremur að neyðar- aðstoð væri vel undirbúin og að stjórn- völd einsettu sér að enginn myndi farast í gosinu. Eldfjallafræðingar óttast að gjósi fjallið skyndilega með krafti muni þeir sem eru í nágrenni þess ekki ná að komast lífs af undan hraunhlaupinu. Mayon-eldfjallið er eitt það virkasta á Filippseyjum og hefur gosið fimm- tíu sinnum á síðustu fjórum öldum. Fjallið hefur verið mjög virkt og gaus bæði árið 2000 og 2001. Mannskæð- asta gosið í fjallinu var árið 1814 en þá flæddi hraun yfir bæinn Cagsawa með þeim afleiðingum að um tólf hundruð manns fórust. ól Joy DeHHMB* áSoftÍ&mðf'stúlka, biöunmíf vatni í hafa verið settarupp fyrirþá sem hafa þurft að flýja heimili t yfirvofandi gos..

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.