blaðið - 11.08.2006, Blaðsíða 4
4IFRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006 blaðiö
Hryðjuverkaógn í Bretlandi tefur flug á íslandi:
Biðu flugheimilda
■ Segja hryðjuverkamenn hafi ætlað að sprengja upp allt að tíu þotur
■ Ætluðu að smygla fljótandi sprengjuefni í drykkjarílátum
Bresk yfirvöld lýstu því yfir í
gærmorgun að þau hafi komið í
veg fyrir meiriháttar hryðjuverka-
samsæri en að sögn þeirra ætluðu
hryðjuverkamenn að sprengja í
loftu upp farþegaflugvélar á leið
frá Bretlandi til Bandaríkjanna.
Ekki var sagt hvenær árásin átti
að fara fram. Talsmenn stjórn-
valda sögðu að tilræðismennirnir
hafi lagt á ráðin um „fjöldamorð
af óhugsandi stærðargráðu.“ Lög-
regluyfirvöld sögðu í gær vera
viss um að þeim hafi tekist að
koma í veg fyrir hryðjuverkin og
eru fullviss um að j)au hafi hand-
tekið höfuðpauranna. Þrátt fyrir
það boðuðu bæði stjórnvöld í
London og Washington að örygg-
isstig vegna mögulegrar hryðju-
verkaárása á farþegaflugvélar
hefði verið hækkað i efsta stig.
Tafir og frestanir urðu á farþega-
flugi til og frá Bretlandi i gær og
gripið var tii þeirra ráðstafana að
takmarka handfarangur farþega
og þeir skikkaðir til þess að taka
leyfilega hluti með sér í glærum
pokum í vélarnar.
John Reid, innanríkisráðherra
Bretlands, tilkynnti í gær að lög-
reglan hefði handtekið tuttugu
og einn mann sem grunaðir eru
um að hafa ætlað að smygla fljót-
andi sprengjuefni í handfarangri
um borð í flugvélar á leið til
New York og Washington D.C á
austurströndinni og Kaliforníu á
vesturströndinni. Reuters-frétta-
stofan heldur því fram að árásin
hafi verið beint að sex til tiu flug-
vélum og áttu sprengingarnar
eiga sér stað samtímis. Menn-
irnir voru handteknir aðfararnótt
fimmtudags en ekki er vitað hve-
nær þeir hafi ætlað að reyna að
fremja tilræðið. Að sögn heimild-
armanna Associated Press-frétta-
stofunar (AP) var árásin yfirvof-
andi og þess vegna létu yfirvöld
til skarar skríða. Michael Chert-
off, heimavarnaráðherra Banda-
ríkjanna, sagði í gær að tilræðis-
mannirnir hafi ætlað að smygla
sprengiefninu í drykkjarílátum
og komið fyrir hvellhettunum í
algengum rafmagnstækjum.
Rannsóknin hefur staðið yfir í
mánuði. Fréttastofan Associated
Press hefur eftir ónafngreindum
embættismönnum í bandarísku
leyniþjónustunni að hryðjuverkin
hefðu verið beint gegn flugvélum
American, Continental og Un-
ited flugfélaganna. Flestir menn-
irnir voru handteknir í London
en einnig fóru fram handtökur í
Birmingham. Lögregluyfirvöld
eru enn að rannsaka aðild ann-
arra að samsærinu. Haft er eftir
heimildamönnum innan bresku
lögreglunar að flestir mannanna
séu búsettir í Bretlandi en þó
er ekki vitað hvort að þeir hafi
breskt ríkisfang. Rannsóknin
hefur leitt í ljós að sprengjurnar
hafi verið komið i fljótandi
form á Bretlandseyjum og að
tilræðismennirnir hafi ætlað að
fljúga til Bandaríkjanna gegnum
breska flugvelli. Lögreglan
hefur haft náið samráð við ýmsa
framámenn meðal samfélaga
Suðaustur-Asíubúa á Bretlandi
var haft eftir sömu heimilda-
mönnum. Chertoff heimavarna-
ráðherra Bandaríkjanna sagði
að skipulagning tilræðisins hafi
náð til margra landa og útfærsla
þess væri í anda Al-Qaeda,
hins vegar bætti hann við að
of snemmt væri að draga álykt-
anir um hvaða öfl stæðu að baki
tilræðismönnunum.
Bresk stjórnvöld hafa ýjað að
því að undanförnu að töluverð
hætta væri á hryðjuverkaárás
í landinu. Síðastliðin miðviku-
dag lýsti John Reid því yfir að
ekki meiri ógn hafi steðjað
að Bretum frá tímum seinni
heimsstyrjaldarinnar.
Vélin sem átti að fara í loftið
i gærmorgun til Lundúna fékk
ekki heimild til brottfarar og
því urðu miklar tafir á þeirri
brottför,“ segir Guðjón Arn-
grímsson, kynningarfulltrúi
Icelandair,
Atburðirnir sem áttu sér
stað á Heathrow-flugvelli í
Lundúnum í gær urðu til þess
að millilandasamgöngur Ice-
landair riðluðust yfir daginn.
Morgunvél félagsins til Lund-
úna átti að fara í loftið átta í
gærmorgun en fór ekki fyrr en
sex tímum síðar. Unnið er eftir
skipuriti frá flugmálastjórn
og sérstök áhersla var lögð á
eftirlit með handfarangri.
„Einhverjar tafir verða
einnig á flugum til Bandaríkj-
anna en það er aðallega vegna
herts öryggiseftirlits við brott-
farir. Handfarangur er skoð-
aður sérstaklega og má ekki
,Höfum ekki
þurft að auka
mannaflann til
að mæta þessu"
Guöjón Arngrimsson,
kynningarfulltrui
Icelandair.
innihalda vökva af einhverju
tagi. Flugþjónusta okkar
heldur úti óbreyttri þjónustu
og við höfum ekki þurft að
auka mannaflann til að mæta
þessu,“ bætir Guðjón við.
Starfsmaður IGS flugþjón-
ustunnar á Keflavíkurflug-
velli staðfesti í samtali við
blaðið að tafir væru á um-
ræddum flugum til Lundúna
og Bandaríkjanna. Hann
sagði að ekki hefði verið bætt
við miklum mannskap við ör-
yggiseftirlitið en yfirmenn
flugþjónustunnar hafi staðið
vaktina með þeim.
Hryöjuverkaógn á Vesturlöndum:
Stjórnvöld segjast hafa
afstýrt stórfelldri árás
Breyttar reglur Farþegum á Heathrow i London
þurfa að ferðast með þá muni sem leyfilegt er að
bera á sér í giærum þokum
SJONARHOLL
“Hvcr og f/'/7/7
þcssuru c/ropa
er linsa ”
Siónarhóll hyóur lianskai
hágiuóa gleraugnalinsur
SUPER S laga glampavörn
eðávNLVA hágltui] pavörn
E i ng 1 e rj a
565-5170
Reykavíkurvegi 22 .
220 Hafnarfírói j
ii wu .sjgiuirhn
. W
Allar gæludýravörur
30 % - 50 % AFSLÁTTUR
Full búð af nýjum vörum
TOKYO
gæludýravörur
Hjallahraun 4 • Hafnarfirði s.565-8444
Opnunartími:
Mán-fös 10-18
Lau 10-16 • Sun 12-16
Sumarsmellur
Þvottavél
5 kg. - 1000 sn.
Vero áður 59.900
Tilboð
Þvottavél
6 kg. - 1200 sn.
Verð áður 74.900
“GSHJ
Þvottavél
7,5 kg - 1400 sn.
Verð áður 89.800
™“CEjD
Þvottavél með þurkara
6 + 4 kg.
Verð áður 89.900
'““fEEa
Eldavél + uppþvottavél
í sama tækinu
Frábært í
sumarbústaðinn
Stálútllt
“Œ0
kæliskápar
á tilboði
Hvltur 163x60
Hvítur 185X60
Stál 190x60
fZSHD
PFAFF BORGÁRLjOS
Grensásvegi B3 • 108 Reykjavík • Sími 414 0400 • www.pfaff.is