blaðið - 11.08.2006, Blaðsíða 7
blaðið FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006
FRÉTTIR I 7
Lögreglan: i
Hótar að klippa
númerin af
Oddur Árnason rannsóknar-
lögreglumaður á Selfossi segir
að geri bílaleigur ekki bragabót
á síauknu númeraleysi bíla-
leigubíla muni lögreglan klippa
númerin af bílunum.
Oddur segir lögregluna á
Selfossi vera orðna þreytta á að
sekta ferðamenn sem í sakleysi
sínu keyra um á ófullbúnum
bílaleigubílum.
„Ein bílaleigan keyrði á móti
ferðamanni með númeraplöt-
una þegar við sektuðum hann,
þannig að plöturnar virðast
ekki vera týndari en það,“ segir
Oddur og svarar þannig orðum
forsvarsmanna bílaleiganna,
sem segja númerin detta
af þegar ferðamenn fari
fjallvegina. Hann vill beina
þeim tilmælum til forsvars-
manna bílaleigna að hafa betra
eftirlit með númerunum.
Fjármagnstekiur:
Villandi
umræður
Umræður um fjármagnstekju-
skatt eru villandi og það er hvorki
almenningi né atvinnulífinu til
framdráttar að breyta honum
að svo stöddu að mati Samtaka
atvinnulífsins. Samtökin benda
á að síðan ío prósenta íjármagns-
tekjuskattur var tekinn upp hafi
fjármagnstekjur landsmanna
aukist gríðarlega. Á síðasta ári
voru þær um 120 milljarðar en
rétt innan við 10 milljarða árið
1990. Þá kemur fram að allur sam-
anburður milli skattlagningar á
mismunandi tekjum sé villandi
ef verðbólguáhrif séu ekki tekin
með i reikninginn. Skattur af
fjármagnstekjum sé mun hærri
en ætla mætti veða um 34 til 35
prósent miðað við 2,5 prósenta
verðbólgu.
Forstjóri Húsasmiðjunnar um uppseldar vörur þegar auglýsing birtist:
Vara getur alltaf selst upp
„Það er auðvitað óheppilegt að
ekki voru til fleiri grill á höfuð-
borgarsvæðinu en raun bar vitni.
Frá því að auglýsingabæklingur
fyrirtækisins kom út rokseldust
grillin og umrædd blaðaauglýs-
ing var nokkurs konar úrval sem
tekið er úr bæklingnum okkar,“
segir Steinn Logi Björnsson, for-
stjóri Húsasmiðjunnar. „Betra
hefði verið að velja aðra vöru
en þessa umrædda vöru. Það er
erfitt að eiga við svona lagað því
ferlið frá vinnslu bæklinganna og
auglýsinga er langur og það getur
alltaf komið fyrir að vara rokselj-
ist á því tímabili.“
Fyrir verslunamannahelgina
birtist auglýsing frá fyrirtækinu
þar sem auglýst voru ferðagrill en
viðskiptavinir þurftu víða frá að
hverfa þar sem varan var ekki til
í flestum verslunum á höfuðborg-
arsvæðinu. Forstjórinn ítrekar að
grillin hafi verið til þegar auglýs-
ingin birtist.
„Það liggur í hlutarins eðli að
svona lagað getur komið fyrir
þegar vinnslutími auglýsingaefn-
„Það liggur
í hlutarins
eðli að svona
lagað getur
komið fyrir"
Steinn Logi
Björnsson
isins er svona langur og verslanir
okkar margar. Síðan getur það
einnig gerst að vara sé til á miðla-
ger en ekki hafi náðst að afgreiða
hana til verslana áður en auglýs-
ing birtist. Slík tilfelli geta alltaf
komið upp og ekkert óeðlilegt
við það að vara seljist upp,“ bætir
Steinn Logi við.
UTSALA
20 - 50% AFSLÁTTUR
AF VOLDUM VORUM
Eldavélar Háfar
Bakaraofnar Kæliskápar
Uppþvottavélar Örbylgjuofnar
Þvottavélar
Frystiskápar
Þurrkarar
• •
Gildir til 21. ágúst.
RONNING
Borgartúni 24 i Reykjavík i Sími: 562 4011