blaðið - 11.08.2006, Page 6
6IFRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST2006 blaðiö
Álverið á Gmndartanga:
s
Ottuðust sprengingu
Lögreglan í Borgarnesi og
Slökkvilið Akranesbæjar var
kallað að álveri Norðuráls á
Grundartanga síðdegis í gær.
Fyrstu fréttir af atvikinu
hermdu að um sprengingu hefði
verið að ræða en Ragnar Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
fjármála- og stjórnunarsviðs
hjá Norðuráli, segir að ekki hafi
verið um sprengingu að ræða.
„Það bilaði ker hjá okkur. Við
erum með um 400 ker í rekstri
og það þarf að endurfóðra
þau á rúmlega fimm ára fresti.
Stundum kemur fyrir að kerin
byrja að leka áður en þau eru
tekin úr rekstri og það gerðist í
þessu tilfelli.“
Ragnar segir að fljótandi málm-
urinn hafi lekið úr kerinu. „Við
það myndast reykur og í þessu
tilfelli er kerið tiltölulega nálægt
svæði sem er varið af reykskynj-
urum. Það leiddi til að slökkvi-
liðið var kallað til. Það var því
aldrei eldur laus og þetta gekk
yfir á um það bil klukkutíma.“
Ragnar segir að þetta gerist af
og til i álverinu, eða um það
bil tvisvar til þrisvar á ári, án
þess að slökkvilið sé kallað til.
Engir starfsmenn voru í hættu
vegna lekans en rafmagni sló
út í öðrum kerskálanum eins og
ávallt gerist í slíkum tilvikum.
GÁP
Tyax Comp 26
Alvöru fjallahjól á
frábæru verði!
30% afsláttur
FJALLAHJOLABUÐIN FAXAFENI 7
S: 5200 200 www.ffap.is MÁN- FÖS. KL. 9-18. LAÖ. KL. 10-14. WWW.gap.Í$
/ V1 I 3 : *• V
Alvöru fjallahjól
Úttsalan í fullum ganyi
Ferðamenn þurfa að borga sektir vegna bílaleigubíla:
Aka um án
bílnúmera
■ Lögreglan langþreytt á bílaleigum
■ Hertz sektuö tvisvar í síðustu viku
Ferðamenn sektaðir
Á einni viku hafa
fimm ferðamenn
verið sektaðir vegna
ófullnægjandi núm-
eramerkinga á bíla-
ieigubíium.
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
Á einni viku hafa fimm ferða-
menn verið teknir af lögreglunni
á Selfossi vegna þess að númera-
plötur vantaði framan á bílana.
Sekt við númeraleysinu varðar
allt að tiu þúsund krónum og
segir lögreglan á Selfossi vera
orðinn langþreytt á þessum sí-
endurteknu brotum. Lögreglan
segir að þeir hafi tekið ferða-
menn á bílum frá að minnsta
kosti þremur bílaleigum.
Sigurður Skagfjörð, fram-
kvæmdarstjóri bílaleigunnar
Hertz , segir leiguna hafa fengið
tvær sektir í síðustu viku vegna
númeraleysis.“ Hann segir að
skýringin sé ofureinföld en hún
sé hreinlega að númerin eru að
detta af bílunum þegar farið er
eftir fjallavegum og ofan í ár.
Númerin eru fest á bilana með
smellum að hans sögn og kemur
það allt of oft fyrir að plöturnar
losni með þessum afleiðingum.
í sama streng tekur Bergþór
Karlsson framkvæmdarstjóri
bílaleigu Akureyrar og áréttar
hann að þetta sé afar slæmt mál
en þeir séu meðvitaðir um það.
„Auðvitað eiga ferðamenn ekki
að borga krónu af þessu,“ segir
Bergþór og bendir jafnframt á
að þeir fylgi ströngum stöðlum
og eftir þeim sé farið i einu og
öllu.
Allir njóta sín i fallegu umhverfi
HðlílKiHfl HtllHllH)
Ljós
Veggborðar
Veggskraut
Borð og stólar
Dótakassar
Mottur
Fossaleynir 6 - 112 Reykjavík - Sími: 586 1000 - Fax: 586 1034 | www.husgogn.is