blaðið - 11.08.2006, Page 8
8IFRÉTTÍR
FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006 blaöið
Fíkniefni:
Dóp fannst
í Kópavogi
Fimm manns voru hand-
teknir á miðvikudagskvöldinu
eftir að lögreglan í Kópavogi
stöðvaði þrjá bíla við reglu-
bundið eftirlit og lagði hald á
fíkniefni sem bílstjórar höfðu
ásér.
Um er að ræða smáræði af
kannabis og E-töflum. Lög-
reglan yfirheyrði fólkið og
sleppti þeim að þeim loknum.
Málið telst upplýst og verður
sent til ákæruvaldsins.
Japan:
Sótti látlaust
í upplýsingar
Japanskur karlmaður á
fimmtugsaldri var handtekinn
af lögreglunni í Hírósíma á dög-
unum eftir að hafa hringt 37.760
sinnum í upplýsinganúmer hjá
símafyrirtækinu Nippon.
Maðurinn hringdi símtölin úr
farsíma sínum frá mars til júli
á þessu ári og sagði aldrei eitt
einasta orð í símann. Það að mað-
urinn hringdi allt að 905 sinnum
á dag í upplýsinganúmerið og
sagði aldrei eitt orð olli mikilli
geðshræringu og ónotum hjá
yfir hundrað konum sem starfa
við að svara fyrirspurnum til
fyrirtækisins.
Samkvæmt lögreglu í borginni
sagði maðurinn ástæðuna fyrir
fjölda símtalanna vera hversu
sefandi og hlýjar raddir starfs-
stúlkna fyrirtækisins væru.
Umhverfisstofnun:
Kæra
ráðherra
Umhverfisstofnun mun að
öllum líkindum kæra Einar K.
Guðfinnsson, sjávarútvegsráð-
herra, til lögreglu vegna ólöglegra
lundaveiða.
Einar var á lundaveiðum
ásamt fleirum í Grímsey í Stein-
grímsfirði án þess að vera með
gilt veiðikort. Otvarpið sagðist
hafa upplýsingar um að Umhverf-
isstofnun muni senda ráðherra
bréf á næstunni og óska eftir
skýringum á veiðikortaleysinu. I
framhaldi af því verði hann vænt-
anlega kærður til lögreglu fyrir
brot á reglugerðinni.
Veiðikort þarf við allar veiðar
á fuglum og spendýrum á
íslandi að rottum og músum
undanskildum.
Trýggingafélögin
Framkvæmdastjóri VIS segir vátryggingarekstur erfiðan ■ Verðhækkanir í sumar duga ekki
■ „Engar forsendur fyrif hækkun “ segir framkvæmdastjóri FÍB
Eftir Atla isleifsson
atlii@bladid.net
„Ekki hafa verið teknar neinar
ákvarðanirísambandiviðhækkun
iðgjalda, en ekki er hægt að úti-
loka neitt í þeim efnum,“ segir
Ásgeir Baldurs, framkvæmda-
stjóri VÍS. „Stefna fyrirtækisins
hefur verið að láta iðgjöldin duga
fyrir tjónunum. Við munum taka
púlsinn á þvi reglulega og gera
viðeigandi breytingar ef þörf
þykir. Ef tjónum heldur áfram að
fjölga verðum við að grípa til að-
gerða, en ef þróunin verður önnur
verður ef til vill minni þörf á að
hækka iðgjöldin.“
.Tjónum
hefur fjölgað”
Ásgeir Baldursson,
framkvæmdastjóri
VÍS
í síðustu viku bárust fréttir af
tapi af rekstri Tryggingamiðstöðv-
arinnar (TM) á fyrstu sex mán-
uðum þessa árs. Óskar Magnús-
son, forstjóri fyrirtækisins, sagði
eina ástæðuna vera að íslenskur
hlutabréfamarkaður hafi hríð-
lækkað undanfarið og að hluta-
bréf fyrirtækisins séu skráð þar á
markaðsverði. Óskar rak þó tapið
mest til of lágra iðgjalda og sagði
að ekki væri hægt að útiloka
hækkun iðgjalda á næstunni.
Að sögn Ásgeirs voru gerðar
breytingar á gjaldskrá VÍS í
sumar. „Komið hefur í Ijós að
þær breytingar munu ekki alveg
duga fyrir þeim tjónakostnaði
sem við værum að sjá. Tjónum
hefur fjölgað undanfarið og tjóna-
þunginn orðið meiri. Bæði eru
dýrari bílar í umferðinni og vara-
hlutaverð hefur hækkað. Þá hefur
umferðin verið þannig að tjónum
hefur fjölgað. Ljóst er að vátrygg-
ingarekstur okkar er mjög erfiður
um þessar mundir og iðgjöldin
verði að taka mið af auknum
tjónakostnaði. Við munum taka
stöðuna á því hver þörfin er þegar
líður á árið.“
Ásgeir segist sannfærður um
að forvarnarauglýsingar skili ár-
angri. „Ef ekki væri fyrir allt for-
varnarstarf sem unnið er þá væri
staðan mun verri en hún er í dag.
Maður hefur mestar áhyggjur af
ofsaakstri einstakra ökumanna
sem fregnir berast af á degi
hverjum."
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenska bif-
reiðaeigenda (FIB), segir það lýsa
ákveðnum vanmætti forstjóra
TM ef hann ætlar sér að krukka
í bílatryggingunum sem er aðal-
félind fyrirtækisins. „Ljóst er að
fjárfestingastefna fyrirtækisins
er meginorsök slæmrar fjárhags-
stöðu. Hugsanlega hafa menn
farið fram úr sjálfum sér með
nýjum verkefnum,“ segir Run-
ólfur og bætir við að í eðlilegu
samkeppnisumhverfi eigi fyrir-
tækin ekki að komast upp með að
hækka iðgjöldin.
Að sögn Runólfs hafa iðgjöldin
hækkað undanfarið og segir það
vera ódýra lausn ef farið verði
strax i enn eina hækkunina ef
maðurinn i brúnni er ekki að
afla. „Ég sé ekki að forsendur séu
fyrir því að hækka iðgjöldin um
þessar mundir. Samkvæmt tölum
frá Umferðarstofu hefur slysum
verið að fækka.“
Annað atriði sem Runólfur
bendir á er að félögin hafa verið
að bjóða eitt iðgjald fyrir alla.
„Tryggingamiðstöðin reið á vaðið
og fylgdu önnur í kjölfarið. Mun
betra væri að verðlauna þá sem
eru til fyrirmyndar í umferðinni
í stað þess að refsa þeim með því
að skella á þá hærri iðgjöldum.“
Samkynhneigð í grunnskólum:
Ráðuneytið vill aukna umfjöllun
Aukin umfjöllun
Sigurjón Mýrdal, deildarstjóri nám-
skrárdeildar Menntamálaráðuneytis-
ins, segir afstöðu ráðuneytisins skýra
í þessum efnum og að stefnt sé að auk-
inni umfjöllun um kynhneigð.
„Akureyrarbær hefur ekki unnið
námsefnið um samkynhneigð í sam-
starfi við námskrárdeild ráðuneytis-
ins en grunnskólarnir hafa svigrúm
til að haga sinni umfjöllun samkvæmt
grunnskólalögunum. Þeir þurfa ekki
að fá samþykki frá okkur til að taka
svona mál til umfjöllunar. í nýrri
aðalnámskrá grunnskólanna verður
hnykkt enn betur á menningarlegum
fjöíbrey tilega og þá sérstaklega hugtak-
inu kynhneigð,“ segir Sigurjón.
„1 nýju aðalnámskránni verður við-
miðunarstundaskrá skólanna breytt
og þar munu þeir fá aukið svigrúm
til að ráðstafa kennslustundum sjálfir.
Með því geta þeir tekið inn umfjöllun-
arefni sem þeir vilja leggja áherslu á
hverju sinni og eru einmitt hvattir til
þess.“
Enqin nýjung
ðlafur Proppé, rektor Kennarahá-
skóla íslands, segir þetta enga nýjung
og að ávallt hafi verið lögð áhersla í
kennaranáminu á umfjöllun um fjöl-
skrúðugt skólasamfélag.
„Þetta er ágætt hjá þeim fyrir norðan.
Ég á ekki von á því að við munum
setja upp einhver sérstök námskeið
með samkynhneigð í huga, við höfum
auðvitað fjallað um hana með ýmsum
hætti. Við leggjum áherslu á ýmislegt
annað en samkynhneigð þannig að
þetta er engin nýjung fyrir okkur,"
segir Ólafur.
„Kennaraefni okkar hafa unnið loka-
verkefni í þessum efnum og unnið
námsefni en ég tel að við komum inn
á þetta mál á ýmsum sviðum.“
f viðbragðsstöðu
Aldís Yngvadóttir, ritstjóri Náms-
gagnastofnunnar, segir að stofnunin
sé reiðubúin undir umfjöllun grunn-
skólanna um kynhneigð.
„Þetta er ágætt
hjá þeim fyrir
norðan."
Ólafur Proppé,
Roktor vifl KHI
„Námsefnið sem til er fjallar þó ekk-
ert sérstaklega um samkynhneigð
heldur hina ýmsu þætti mannlegrar
tilveru. Við teljum ekki þörf á því
að draga þetta efni sérstaklega út og
munum ekki bregðast neitt sérstak-
lega við þessu,“ segir Aldfs.
„Við erum eiginlega á undan aðal-
námskránni varðandi námsefni því
allt efni er tilbúið hjá okkur. Þetta
fellur undir kynfræðsluna og einblínt
á unglingastig grunnskólans.“
„Við teljum ekki
þörf á því að
draga þetta
efni sérstak-
lega út."
Aldis Yngvarsdórrit,
ritstjóri
Námsgagnastofnunar
Pottar
og pönnur
HEIMABÍÓ
Nýtt módel 2006/2007
25-40%
afsláttur.
ÞVOTTAVELAR
ÞURRKARAR
UPPÞVOTTAVÉLAR
KÆLISKÁPAR
OFNAR - VIFTUR
'EFAL
Strjáujárn
20%
afsláttur
Verö áður: 59.900 kr.
TILBOÐSVERÐ: 49.900 kr
15%
AFSLÁTTUR
^JgSSt
ORMSSON
KEFLAVÍK ■ Sím: 421 1535 | SMÁRALIND ■ Simi 530 2900 | SÍÐUMÚLA 9 • Sími 530 2800 | LAGMÚLA 8 • Sími 530 2800