blaðið - 11.08.2006, Page 26

blaðið - 11.08.2006, Page 26
26 deiglan deiglan@bladid.net MIÐVIKUDAGOR 10. ÁGÚST 2006 blaðÍA Listamaður deyr Þennan dag, árið 1956, lést bandariski listmálarinn Jackson Pollock í bílslysi í East Hampton. Hann var aðeins 44 ára gamall. Rodger Hodgson á Broadway Þeir sem komnir eru til ára sinna muna vel eftir hljómsveitinni Sup- ertramp sem gerði garðinn fræg- an á áttunda áratugnum. í kvöld mun Roger Hodgson fyrrum söngvari og leiðtogi hljómsveitar- innar halda tónleika á Broadway. Á tónleikunum mun Roger flytja öll helstu lög Supertramp eins og t.d. Give A Little Bit, The Logical Song, Dreamer, It’s Raining Aga- in og Take The Long VVay Home. Hér gefst einstakt tækifæri til þess að rifja um gamla tíma með kappanum Rodger Hodgson og ætti enginn aðdáandi að láta þá fram hjá sér fara. Miðasala fer fram á www.midi.is. Ragnheiður og Haukur Gröndal í Þykkvabæ Búast má við Ijúfri djass stemm- ingu í kartöflubænum í kvöld en í íþróttahúsinu þar munu systkinin Ragnheiður og Haukur Gröndal halda tónleika í kvöld kl. 22. Á undan atriði þeirra systk- ina gefst áhorfendum kostur á að hlýða Maríönnu Másdóttur syngja nokkur lög við undirleik Glódísar M. Guðmundsdóttur. Listamaðurinn Curver Thor- oddsen er landsmönnum að góðu kunnur fyrir uppá- tæki sín á síðustu árum. Mörgum kann að þykja margar hugmyndir hans vera eilítið furðu- legar en hann hefur m.a. framið gjörning sem fól í sér óhóflegt hamborgaraát og leyft internetnot- endum að fylgjast með því hvernig hann heldur jól. í kvöld mun Cur- ver skemmta gestum á Bar n með tónlist frá liðnum tíma. Curver er þó ekki í vafa um að tónlistin og dansinn á fullt erindi við íbúa borg- arinnar Reykjavíkur árið 2006. „Ég byrjaði eftir áramótin að halda þessi kvöld því mér fannst vanta meiri fjölbreytni í skemmtanalífið. Það er verið að spila sömu tónlist- ina á flestum stöðum í miðborginni. Ég sjálfur er mikill áhugamaður um rockabilly tónlist og tónlistin hentar sérstaklega vel til að dansa við. Mér fannst því kjörið að bjóða skemmtanaþyrstum gestum upp á skemmtun í þessum anda,“ segir Curver og hlakkar til kvöldsins. Hann segir að mæting á fyrri kvöld hafi verið mjög góð. „Fólk er greinilega mjög hrifið af þess- ari tegund tónlistar. Ég er aðal- lega að spila tónlist frá tímabilinu 1954-1960. Mestmegnis er þetta rockabilly tónlist og gamalt rokk og ról. Á síðari tímum hefur hug- takið rockabilly farið að ná yfir víðari svið en bara tónlist og táknar í raun heildarlífsstíl. Ég er mjög hrifinn af Johnny Burnett og Bill Hayley og leita mikið í þeirra smiðjur þegar ég vel lög til spil- unar. Þetta er ótrúlega skemmti- leg og kraftmikil tónlist og það er ekki hægt annað en að dansa þegar hún berst manni til eyrna.“ Curver segir gaman hversu mjög ungt fólk virðist njóta þessarar tegundar tón- listar. „Það er mikil stemming og fólk hefur meira að segja verið að klæða sig upp á í anda þessa tíma,“ segir Birgir og lofar miklu fjöri og pilsaþyt í kvöld á Bar 11. Herleg- heitin hefjast upp úr miðnætti og er húsið opið til kl 05:30. VoltarenEmulgel Það er engin ástæða til að láta sér liða illa á besta tíma ársins. Komdu og fáðu ráðgjöfhjá okkur. VLyf&heilsa Við hlustum! Voltaren Emulgel® er notað sem staðbundin útvortis meðferð við vöðva- og liðverkjum. Lyfið má ekki bera á skrámur, opin sár eða á exem, varist snertingu við augu og slímhúðir, notist einungis útvortis og má aldrei taka inn. Á meðgöngu skal ávalt leita ráða læknis eða lyfjafræðings áður en lyfið er notað, þó skal það ekki notað á síðasta þriðjungi meðgöngu. Lítil hætta er á ofskömmtun vegna útvortis notkunar lyfsins. Lesa skal vandlega leiðbeiningará umbúðum og fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Una Sveinbjarnardóttir leikur Bach á Gljúfrasteini Gljúfrasteinn hefur nú í sumar skapað sér sérstakan sess í listalífi landans með glæsilegri tónleikaröð. Nú er farið að síga á seinni hluta rað- arinnar. Viðtökurnar hafa verið prýði- legar og má telja líklegt að áframhald verði á næsta sumar. Tónlist var alla tíð stór þáttur í heimilislífinu á Gljúfrasteini meðan Halldór Laxness og fjölskylda hans bjuggu þar og því er vel við hæfi að halda minningu skáldsins á lofti með þessum hætti. Næstkomandi sunnudag mun fiðlu- leikarinn Una Sveinbjarnardóttir leika verk eftir J.S. Bach og Eugene Ysayee. Una hefur getið sér gott orð fyrir list sína þó ung að árum sé. Hún stundaði fiðlunám i Tónmenntaskóla Reykjavíkur og hjá Mark Reedman í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Hún lauk þaðan einleikaraprófi með ágætiseinkunn 1995. Sama ár hóf hún nám við Tónlistarháskól- ann í Köln hjá prófessor Gorjan Koáuta og í kammertónlist hjá Al- ban Berg-strengjakvartettinum. I Köln hlaut hún m.a. fyrstu verð- laun í keppninni Brahms Kamm- ermusik. Árið 1998 hóf Una nám hjá Thomas Brandis við Universitát der Kiinste. I febrúar árið 2001 lauk hún diplóm-prófi með hæstu ein- kunn og í janúar 2005 einleikara- gráðu, Konzertexamen. Una hefur leikið á tónleikum víða í Evrópu og Bandaríkjunum. Tónleikarnir hefjast kl. 16 að Gljúfrasteini og að- gangseyrir er aðeins 500 krónur.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.