blaðið - 11.08.2006, Qupperneq 28
FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006 blaðið
■ „Stoltur og hrærður”
■ Gerrard verður varafyrirliði
Á góðri stundu Englandsmeistarar{
Chelsea fagna einu af fjöltnörgum
mörkum sínum i fyrra. Eins og við i
var að búast er þeim spáð titlinum '
aftur í ár.
Breskir veðbankar spá í spilin
Táknræn mynd David Beckham lætur John Terry fá
fyrirliðabandið í leik gegn Ekvador á HM. Terry mun
bera bandið um ókominn tíma.
Breskir veðbankar eru fyrir löngu
byrjaðir að spá og spekúlera í komandi
tímabil í ensku knattspyrnunni.
Eins og við var að búast eru
Englandsmeistarar Chelsea
taldir sigurstranglegast-
ir og er veðbankinn JK&mh
William Hill enginn f
eftirbátur þar. Hjá . ...
William Hill koma J _
Manchester Unit- ■ >■ , \ J
ed, Arsenal og Li-
verpoolsvoínæstu
sætum. Nýliðum Wk
Watford cr hins veg
ar spáð botnsætinu Æ
og þá er Charlton,
liði Hermanns mt/J
Hreiðarssonar, 'Mm
einnig U1
s p á ð
falli. /. I
William Hill hefur einnig gefið út
stuðla á þá sem eru líklegastir til að
verða markahæstir í ensku úrvals-
deildinni. Thierry Henry, marka-
kóngurinn frá síðustu leiktíð, er
talinn líklegastur og Úkraínumað-
urinn Andriy Shevchenko, sem
) gekk til liðs við Chelsea í sumar,
er í öðru sæti. Hér gefur að líta
spá William Hill.
John Terry, leikmaður Chelsea,
hefur verið valinn nýr fyrirliði en-
ska landsliðsins en Steve McClar-
en landsliðsþjálfari tilkynnti um
ákvörðun sina í gær. David Beck-
ham ákvað eftir HM í sumar að
afsala sér fyrirliðabandinu, sem
hann hefur borið undanfarin sex
ár, og var talið víst að annaðhvort
Terry eða Steven Gerrard, fyrirliði
Liverpool, yrði arftaki hans.
„Það er einn mesti heiður sem
knattspyrnumanni getur hlotn-
ast að vera fyrirliði landsliðsins.
Ég er afar stoltur og hrærður yfir
því að fá þetta tækifæri," sagði
Terry í gær. „Þetta er stórt verk-
efni sem ég get ekki beðið eftir að
takast á við.“ Gerrard ræddi einn-
ig við blaðamenn og færði Terry
hamingjuóskir. „Mig langar að
óska John innilega til hamingju
með að vera skipaður fyrirliði
Englands. Ég er viss um að hann
mun standa sig með prýði,“ sagði
Gerrard.
enskrar knattspyrnu. Hann hefur
alla burði til að gegna hlutverkinu
vel. Hann er gæddur miklum leið-
togahæfileikum, valdi, hugrekki
og sættir sig aldrei við að vera
númer tvö,“ sagði McClaren um
nýja fyrirliðann. Hann greindi
frá því að Gerrard hefði einnig
komið vel til greina en hann yrði
varafyrirliði.
Terry hefur leikið 29
leiki fyrir enska landsliðið en eld-
skírn sína hlaut hann gegn Serb-
íu og Svartfjallalandi í júní 2003.
Næsti landsleikur Englendinga er
gegn Grikkjum 16. ágúst og verð-
ur það í senn fyrsti leikur Terrys
sem fyrirliði og fyrsti leikur lands-
liðsins undir stjórn McClarens.
Enska þjóðin sátt
Iþróttafréttastofa BBC gerði á
miðvikudag könnun á meðal svo-
nefndra „Englandfans“ en það er
opinber stuðningshópur enska
landsliðsins sem ferðast með lið-
inu hvert sem það fer og hvetur
með ráði og dáð. 371 meðlimur
hópsins tókþátt í könnuninni
og skiptust atkvæði
, . nokkuðjafntmilli
fKUÍk' Terry og Gerrards.
Sá fyrrnefndi hlaut
51% atkvæði en sá
C síðarnefndi 46%
og þá nefndu
/ einhverjir Gary
* ’áÉi Neville og Frank
' Lampard. Talið
•jfc 90 eraðkönnunin
endurspegli álit
ensku þjóðarinnar.
Sjóðheitur Thierry Henry hefur
verið iðinn við kolann íframlínu
Arsenal undanfarin ár.
Nýtur virðingar allra
McClaren jós Terry hrósi á blaða-
mannafundi í gær og sagði að
stór ástæða fyrir ákvörðun-
væri að hann nyti m
ínm '
virðingar allra. „Ég er
sannfærður um að
John verður einn
bestilandsliðs-
fyrirliði jj
í sögu Æ'
■ Real Madrid einnig áhugasamir ■ Lyon tregir til að selja
Manchester United hefur ekki
gefið upp alla von um að fá Maham-
adou Diarra, miðjumann Lyon, til
sín. Alex Ferguson, stjóri United,
hefur lengi haft augastað á Diarra
en frönsku meistararnir eru ekki
á því að láta hann fara nema fyrir
gott verð. Diarra, sem kemur frá
Malí, er 25 ára og verðlagður á 13,5
milljónir punda.
Brasilíumanninn Marcos Senna
hjá Villarreal hefur einnig verið
orðaður við United að undanförnu
og er talið að áhuginn á Diarra sé
ástæðan fyrir því að Rauðu djöfl-
arnir hafa ekki enn gert tilboð í
hann. „Við erum að skoða nokkra
leikmenn og ég á von á því að það
gerist eitthvað í næstu viku,“ sagði
Ferguson fyrir viku síðan, áður en
æfingamótið í Amsterdam hófst.
,Við höfum áhuga á Senna, en við
höfum líka áhuga á fleiri leikmönn-
um.“
Þungt hugsi Mahamadou Diarra
lútir ígras, bugaður afþeim mikla
áhuga sem honum er sýndur af stór-
liðum Evrópu.
Diarra hefur vakið áhuga fleiri ir. Vitað er að Fabio Capello, stjóri
liða en United. Real Madrid er eitt Madridarliðsins, er mikill aðdá-
þeirra og er raunar af flestum talið andi Malímannsins og vill bæta
líklegra til að fá hann í sínar rað- honum í stjörnum prýtt lið sitt
Terry fagnar John Terry verður
fyrirliöi ensku meistaranna og
enska landsliðsins samtímis.
,Arið 1969 hætti ég að drekka og
stunda kynlíf. Það voru verstu 20
mínútur ævi minnar.“
- JGeorge Best var alltaf samur við sig,
ithrottir@bladid.net
MSUUf fflp
ENGLANDSMEISTARAR 2006/2007
1. Chelsea 4/9
2. Man Utd 6/1
3. Arsenal 7/1
4. Liverpool 8/1
5. Tottenham 50/1
6. Newcastle 125/1
7. Blackburn 150/1
8. Middlesbro 250/1
9. Bolton 250/1
10 .Man City 400/1
11. Everton 400/1
12. West Ham 500/1
13. Portsmouth 500/1
14. Wigan 750/1
15. Aston Villa 750/1
16. Reading 1000/1
17. Fulham 1000/1
18. Charlton 1000/1
19. Sheffield Utd 1500/1
20. Watford 2000/1
MARKAKÓNGUR 2006/2007
1. Thierry Henry Arsenal 5/2
2. Andriy Shevchenko Chelsea 5/1
3. Wayne Rooney Man Utd 14/1
4. Craig Bellamy Liverpool 20/1
5. Louis Saha Man Utd 25/1
6. Frank Lampard Chelsea 25/1
7. DidierDrogba Chelsea 25/1
8. Dimitar Berbatov Tottenham 25/1
9. Andy Johnson Everton 28/1
10-Jermain Defoe Tottenham 33/1