blaðið - 11.08.2006, Síða 36

blaðið - 11.08.2006, Síða 36
36 fólk folk@bladid.net HVAÐ FINNST ÞER? Voru þetta sjóræningjaveiðar? „Nei. Þetta voru veidar án veiðikorts. Ég stóð í þcirri tni að veiðin kallaði ekki á það. Égmun nti sækja um veiðikort því ég hef mikinn áhuga lundaveiðum og þá löglegum, eins og ég taldi miggera." FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2006 blaðið i, Einar K. Guðfinnsson lundaveiðimaður Einar var á lundaveiðum en hann hefur ekki gilt veiðikort sem nauðsynlegt er að hafa til að mega veiða villt dýr og fugla. ^^Smáborgarinn HVERGI ÓHULT Smáborgarinn hefur fengiö sig fullsaddan á því auglýsingafargani sem tröllríður öllu í samfélaginu nú um stundir. Auglýsingar eru ekki aðeins meira áberandi í fjölmiðlum þar sem jafnvel veðurfréttirnar eru í boði banka eða tryggingafélags heldur hefur aldrei jafnmikið af auglýsingabæklingum og öðrum ruslpósti borist inn um lúguna. Það sama má segja um tölvupóst og hefur Smáborgarinn neyðst til að koma sér upp sterkum ruslpóstsvörnum til að pósthólfið hans fyllist ekki af auglýsingum um ódýrar viagratöflur, brjósta- stækkanir og annað sem hann telur sig ekki þurfa á að halda. Auglýsingar ásækja Smáborgarann Ekki fer Smáborgarinn varhluta af auglýsingaflóðinu þegar hann á leið um bæinn. Auglýsingaskiltum í vegaköntum hefur snarfjölgað á örfáum árum og virðast þau öðru fremur til þess fallin að draga athygli manns frá umferðinni og auka hættuna á að maður aki aftan á bílinn fyrir framan mann eða á nálægan Ijósastaur. Þá hefur Smáborgarinn jafnvel orðið var við sérstaka bíla alsetta aug- lýsingum sem virðast ekki þjóna neinum tilgangi öðrum en að vekja athygli á margvíslegri þjón- ustu og vörum. Smaborgaranum finnst þó auglýsingamennskan fyrst keyra um þverbak þegar hann fylgist með útsendingum frá innlendum íþróttakappleikjum. Áður fyrr mátti stundum sjá fáein smekk- leg auglýsingaskilti á hliðarlínum leikvallanna og vörumerki aðal- styrktaraðila á treyjum íþrótta- mannanna. Nú eru auglýsingarnar farnar að breiða úr sér út á leikvellina sjálfa þannig að það verður vart þverfótað fyrir þeim og ekki er að finna lófastóran flöt á flíkum leikmannanna að hann sé ekki þakinn vörumerki eða öðrum skilaboðum. Auglýsingar ásækja Smáborgar- ann í raun allan liðlangan daginn og hann fær hvergi frið fyrir þeim. Það er ekki fyrr en hann leggst til hvílu á kvöldin örþreyttur eftir að hafa meðtekið öll þessi skilaþoð að hann losnar við þessa óáran. Svo verður þó að öllum líkindum ekki lengi. Fyrr en síðarfinnur einhver snillingurinn upp leið til að koma auglýsingum í drauma fólks. Þá verðum við hvergi óhult. í nógu að snúast Hrafnkell Tjörvi Stefánsson framkvæmdastjóri Samtakanna 78 hefur í nógu að snúast þessa dagana enda standa Hinsegin dagar sem hæst. Gangan Hrafnkell Tjörvi Stefánsson fram- kvæmdastjóri Samtakanna 78 stend- ur í ströngu um helgina enda verða þá Hinsegin dagar, árleg gleðihátíð samkynhneigðra og tvíkynhneigðra, í algleymingi. Hrafnkell segir að hann sé titlaður sölustjóri þessa dagana þar sem hann hefur veg og vanda af sölu hvers kyns varnings í tengslum við hátíðahöldin. „Við erum með um 60 götusölumenn sem eru að selja fána, boli, vinabönd og annan varning fyrir Gay Pride. Það er náttúrlega of- boðslega mikill undirbúningur sem fylgir þessu og mest allt unnið í sjálf- boðavinnu, meðal annars fáum við aðstoð frá sjáfboðaliðum frá Höfuð- borgarstofu,“ segir Hrafnkell Tjörvi og bætir við að helgin leggist vel í fer fram hann þrátt fyrir annir. „Þetta er nátt- úrlega ekki alveg í fyrsta skipti sem við erum að skipuleggja þetta og við erum komin í góða æfingu.“ Hátíðin stærri og fjölbreyttari Gay Pride hátíðahöldin hafa vaxið á hverju ári og teygja sig nú yfir nokkra daga og er dagskráin fjölbreyttari en nokkru sinni fyrr. „Eg kemst nú ekki mikið á þessa viðburði nema á lokaballið á laug- ardaginn vegna þess að þessi skipu- lagning og allt umstangið tekur bara allan minn tíma. Á meðan gangan fer fram verð ég hérna uppi í Sam- tökum þannig að gangan sem slík fer að miklu leyti fram hjá mér,“ segir Hrafnkell Tjörvi. „Ég verð örugglega alveg ofboðslega glaður þegar þessu hjá mér verður öllu lokið og ætla að skemmta mér vel á laugardagskvöldið." Hinsegin dögum lýkur formlega með Regnbogamessu á sunnudag en í framhaldinu verður boðið upp á sérstaka dagskrá á mánudögum í Samtökunum 78 þar sem ýmis trú- og lífsskoðanafélög kynna afstöðu sína til samkynhneigðar. „Við verð- um með dagskrá í Samtökunum á mánudag þar sem friðarsamtök búddista ætla að kynna trú sína út frá spurningunni um kynhneigð. I næstu viku verða ástatrúarmenn með svipaða kynningu o.s.fr v.. Regn- bogamessan er náttúrlega kristin messa þannig að okkur fannst við hæfi að skoða einnig önnur trúar- brögð og lífsskoðanir,“ segir Hrafn- kell Tjörvi að lokum. SU DOKU talnaþraut Lausn síðustu gátu: Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Gáta dagsins: 1 8 6 7 4 3 9 7 6 3 4 8 9 6 3 9 8 8 7 9 6 5 7 6 2 4 8 4 7 5 9 6 1 1 8 7 9 5 3 6 2 4 9 5 2 4 1 6 8 3 7 6 3 4 2 7 8 9 1 5 3 4 9 5 8 2 7 6 1 2 7 1 6 9 4 5 8 3 8 6 5 1 3 7 2 4 9 4 2 3 7 6 9 i 5 8 5 9 8 3 2 1 4 7 6 7 1 6 8 4 5 3 9 2 by Jim Unger © Jlm Unger/dlst. by Unlted Medla, 2001 Ég er ekki viss um að hann sé nógu gamall fyrir sex ára bekkinn. HEYRST HEFUR... Framboðsmálin eru mönn- um einkar hugleikin þessa dagana. Eins og fyrr hefur verið minnst á hér hafa margir sjálfstæðismenn í Reykjavík áhyggjur af því að ekki muni nægilega margar frambæri- legar konur gefa kost á sér í prófkjöri þeirra. Vissulega væri fengur í Ingibjörgu R. Guð- mundsdóttur, varaforseta ASl, eins og sumir telja að væri raun- in, en svo er farið að hvískra um að von kunni að vera á fleir- um. Þannig mun nokkur áhugi veraáþvíaðfá fjölmiðlakonuna kunnu, Jóhönnu Vilhjálmsdóttur, til þess að gefa kost á sér. Víst má telja að karl faðir hennar, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri, getur gefið henni góð ráð um prófkjörsbaráttu... Skipting kynjanna kann að koma víðar við sögu í aðdrag- anda þingkosninga næsta vor. Þannig tala Samfylkingarmenn í Reykjavík að nánast megi tala um tvær orrustur í prófkjöri þeirra, þar sem strákar kljást við stráka og stelpur við stelpur. Taliðervístað heilög þrenning í fylkingar- brjósti listans - Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir, Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir - fái sín sæti hljóðalaust en síðan taki að vandast málin. Þau Stef- án Jón Hafstein og Steinunn V. Óskarsdóttir munu að lík- indum sækjast eftir næsta sæti þar á eftir og telja menn líklegt að þeim verði verulega ágengt, enda margir Samfylkingar- menn þeirrar skoðunar að þau eigi inni hjá flokknum eftir að hafa verið sett til hliðar fýrir Dag B. Eggertsson, sem síðan fiskaði ekki eins og til var róið... Hvernig sem þeim Stefáni Jóni Hafstein og Stein- unni V. Óskarsdóttur gengur má víst telja að þau munu riðla listanum talsvert. Reyndir menn innan Samfylkingarinn- ar telja næsta öruggt að Stein- unn muni geta ýtt þeim Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur og Guðrúnu Ögmundsdóttur niður listann. Eins muni Stef- án Jón geta gert þeim Helga Hjörvari og Merði Árnasyni erfiðara fyrir, að ekki sé minnst á Ágúst Ólaf Ágústs- son, varaformann flokksins... yrir skömmu sáust prófess- orarnir og fjandvinirnir Helga Kress og dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson að fræðistörfum, hvort við sitt borð á þjóðdeild Þjóðarbók- hlöðunnar. Þá varð öldruðum skjalaverði á orði og hvíslaði að Hannesi Hólmsteini, um leið og hann benti á Helgu: Þú skalt ekki hafa hátt, hér ergœs að vappa. Sumir hafa allt sitt átt innan gæsalappa. andres.magnusson@bladid.net

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.