blaðið - 24.10.2006, Síða 1
232. tölublaó 2. árgangur
þriðjudagur
24. október 2006
FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÓKE
■ FOLK
Guðrún Helga skipulagði ásamt
fleirum Pressukvöld um stöðu
kvenna sem starfa í fjölmiðlum
I SÍÐA32
■ IPROTTIR
Brátt skýrist hvort Hafþór Ægir
hjá ÍA semur við sænska fyrstu
deildar liðið Norrköpping
I SlÐA 40
Lögreglumenn segjast hafa heyrt ólöglegar símahleranir:
Hlerað í skjóli sakamála
■ Yfirmenn þverneita ásökunum ■ Óvildarmenn að kveikja sögur
Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net
,Þetta er hreinasta kjaftæði og ég tek ekki þátt í
þessari umræðu. Ég vil benda á, ef rétt reynist,
að þetta eru afbrot og slíkt er ekki stundað hjá
lögreglunni," segir Ingimundur Einarsson vara-
lögreglustjóri og ítrekar að hér séu helber ósann-
indi á ferðinni. „Ég fullyrði að þetta á ekki við
nein rök að styðjast."
Þetta sagði Ingimundur þegar bornar voru
undir hann fullyrðingar heimildarmanna Blaðs-
ins um víðtækar simahleranir á lögreglustöð-
inni við Hverfisgötu í Reykjavík, jafnvel hler-
anir sem ekki voru dómsúrskurðir fyrir eins og
lög kveða á um.
Heimildarmenn segjast hafa heyrt fleiri upp-
tökur en lutu að þeim sakamálum sem þeir
unnu að. Segjast meðal annars hafa heyrt sam-
töl ráðamanna.
„Ég hef ekki verið meðvitundarlaus í mínu
starfi,“ segir fyrrverandi lögreglumaður sem
til margra ára starfaði við hleranir í fíkniefna-
málum. „Ég vann í mörg ár við að hlera i fíkni-
efnamálum. Við fengum afhentar spólur með
samtölum í þeim málum sem við vorum að
vinna í. Að samtölunum loknum leyndust alls
konar samtöl þar fyrir aftan. Samtöl sem við
áttum alls ekki að heyra.”
Gísli Garðarsson, þáverandi starfsmaður Út-
lendingaeftirlitsins, segir út úr myndinni að
eitthvað hafi leynst á spólum sem ekki var leyfi
fyrir. „Það var hreinsað út af spólunum. Þetta er
útilokað. Að við höfum stundað viðbótarhleranir,
umfram fíkniefnarannsóknir, á ekki við nein
rök að styðjast,” sagði Gísli. „Sem lögreglumaður
hef ég trúnað og hef því ekki skoðun á þessum
málum. Þetta er ekki svaravert að mínu mati.”
Sjá einnig síðu 4
[REUTEBS!
ÍWffl >’t'1 v '
te'.í * . * V* ‘ rfj rr v.'j' j í 1 s
Átök brutust út á hálfrar aldar uppreisnarafmæli Hátíðarhugurinn vék fyrir óeirðum á götum Búdapest, höfuðborgar Ungverjalands, í gær þegar þess var minnst að hálf öld er
liðin frá uppreisninni í Ungverjalandi. Fjöldi fólks mótmælti lygum sem forsætisráðherra landsins viðurkennir að hafa beitt í kosningabaráttunni til að tryggja sér endurkjör. Lögregla
beitti háþrýstidælum og gúmmíkúlum til að halda aftur af mótmælendum. Sjá síðu 10
MENNING
» síða 37
VEÐUR
» síða 2
MATUR
» siður 19-30
Sérblaö um
mat fylgir
Blaöinu
í dag
Kólnandi
Norðaustan og austan 5-
10 og skýjað með köflum
sunnanlands á morgun og
stöku él. Kólnandi veður
og frost 0 til 5 stig.
í píramída ástarinnar
Snorri Ásmundsson myndlistar-
maður hefur smíðað píramída
úr plexigleri sem hann kallar
„Pyramid of Love“ eða
píramída ástarinnar.
ORÐLAUS » síða 42
Sinn er siðurinn
„í sveitinni er til siðs að vera afskap-
lega kurteis og klára matinn sinn. Þá
ber að borða saltfisk á laugardögum
og stunda dans að
minnsta kosti
einu sinni í viku
hverri, helst
skottís," segir
sveitarstjór-
inn og gefur
út handbók
um heimili
sitt.
FRÉTTIR » síða 10
Landsvirkjun óseld
Engin niðurstaða liggur fyrir í við-
ræðum ríkisins við Fteykjavíkurborg og
Akureyrarbæ vegna mögulegrar sölu á
hlut sveitarfélaganna í Landsvirkjun. Við-
ræður hafa staðið yfir frá því í septem-
ber en ekki hefur náðst samstaða um
verðmæti eignarhluta sveitarfélaganna.
Borgarstjórinn í Reykjavík segir mikil-
vægt að niðurstaða liggi fyrir um næstu
mánaðamót.
„Ég legg áherslu á að það verði komnar
niðurstöður í þessar viðræður innan tíu
daga,“ segir Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson,
borgarstjóri Reykjavíkur.
FRÉTTIR » síða 2
Nauðgað í miðbænum
Tveir menn réðust á átján ára stúlku við
Þjóðleikhúsið aðfaranótt laugardags,
drógu hana afsíðis og nauðguöu henni.
Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn
í Reykjavík, segir árásina óhugnanlega
líka nauðgun við IVIenntaskólann í
Reykjavík fyrir tveimur vikum. Þá réðust
tveir menn á tvítuga stúlku og annar
hélt henni niðri meðan hinn nauðgaði
henni. Þeir menn eru ófundnir en ekki er
vitað hvort þeir voru að verki aðfaranótt
laugardags.
Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur
segir ekki ólíklegt að um sömu menn sé
að ræða í báðum árásum en einnig geti
verið um eftirhermuárás að ræða.
Úr mínus í Plús
Námskeið fyrir þá sem vilja
gera meira úr peningunum
Á námskeiðinu lærir þú að:
•greiða niður skuldir á skömmum tlma
•hafa gaman af því að eyða peningum
•spara og byggja upp sjóði og eignir
Næstu námskeið
7. & 14. nóvember
Takmarkað sætaframboð ____•
Verð: 9.000- SparS.IS
Þú átt nóg af peningum og Ingólfur H.
Ingólfsson ætlar aö hjálpa þér að finna þá.
Skráning á spara.is & s: 587-2580
FASTEIGNALÁN ;::A/PVTIÖ. ÉPÁ v la S m rnri i a >{r i h0*1 1 i\S r\ ÍJp C B1 « Ot
jjr g 1 MYNTKORFU Nánari upplýsingar veita lánafuiltrúar Frjálsa og á www.frjalsi.is 3,4% '