blaðið - 24.10.2006, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2006
blaöið
INNLENT
Spændu upp flugvöll
Ökumenn torfæruhjóla spóluðu upp og eyðilögðu
gras í jaðri flugbrautar Flugmódelfélags Suðurnesja
sem er skammt frá Seltjörn. Lögreglan fékk tilkynn-
ingu um þetta á sunnudag en talið er að þetta hafi átt
sér stað einhvern síðustu daga.
Fjórar líkamsárásir kærðar
Alls voru fjórar líkamsárásir kærðar í
miðbæ Reykjavíkur um helgina en þar
af voru tvær þar sem notast var við glös.
Þeir aðilar slösuðust nokkuð við að fá
glösin í höfuðin.
Húsasmiðjan - Byko - Fjaróarkaup - Brimnes - Nesbakki - Skipavík -
Litabúöin - SR bygingavörur - Byggt og búið - Litaver - Rými - Núpur -
Áfangar Kefiavík - Pottar og prik (Daggir) Akureyri - Takk hreiniæti
Heilsöludreifing: Ræstivörur ehf - Stangarhyl 4 -
110 Reykjavík - Sími 567 4142 - www.raestivorur.is
ivorur
311
tír
iIlTí
IIITU
heilsa
MGGA
OMGGA-3
1300 ing
80 liylki
heilsa
-haföu þaö gott
Sjálfstæðisflokkurinn:
Deilt um of
góða skrá
Frambjóðendur í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík komu saman til fundar í
gær vegna ásakana um að einn
frambjóðandi, Guðlaugur Þór
Þórðarson, hefði haft rangt
við í prófkjörsbaráttunni.
Framámenn í Sjálfstæðisflokkn-
um fengu bréf fyrir helgi þar
sem sagt var að Guðlaugur Þór
og stuðningsmenn notuðust við
uppfærða símaskrá sem önnur
framboð hefðu ekki aðgang
að og brytu þannig gegn próf-
kjörsreglum. Andri Ottarsson,
framkvæmdastjóri flokksins,
kynnti frambjóðendum niður-
stöðu skoðunar sem hreinsaði
Guðlaug Þór af ásökunum.
■ Fráleitt, segir varalögreglustjóri ■ Símtöl raöamanna sögö hljóðrituð
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
Lögreglumenn fullyrða að þeir hafi
heyrt símtöl fólks á spólum sem þeir
fengu við rannsóknir sakamála, að-
allega vegna fíkniefnarannsókna.
Eftir að hafa hlustað á upptökur
vegna rannsókna sem þeir unnu
að hafi á spólunum iðulega reynst
vera upptökur sakamálunum óvið-
komandi. „Ég hef ekki verið meðvit-
undarlaus í mínu starfi. Útlendinga-
eftirlitið sá um þann þátt að stunda
hleranir án dómsúrskurða og á
sínum tíma var nánast allt hlerað,“
segir fyrrverandi lögreglumaður
sem til margra ára starfaði við hler-
anir í fíkniefnamálum.
Viðmælendur fullyrða að víð-
tækar hleranir hafi verið gerðar án
dómsúrskurða og að þær hafi verið
gerðar í leynilegu herbergi. Örfáir
höfðu aðgang að herberginu. Einn
þeirra sem þar starfaði er Jóhann G.
Jóhans son, sérfræðingur hjá dóms-
málaráðuneytinu, en áður starfs-
maður Útlendingaeftirlitsins.
Hann sagðist ekki kannast við
þessar frásagnir og sagði þær vera
misskilning. Hann staðfesti tilurð
leyniherbergisins og að hafa haft að-
gang að því. Hann vísar á lögreglu-
stjóra til svara um sín störf. Ekki náð-
ist í Böðvar Bragason lögreglustjóra
við vinnslu fréttarinnar. Jóhann
sagði þetta vera alvarlegar ásakanir
og vera komið af stað af einhverjum
óvildarmönnum. Jóhann sagði að
alls staðar þar sem leynd á sér stað
komi upp óvild.
Fullyrðingar Jóhanns stangast á
við heimildarmenn Blaðsins. „Ég
vann i mörg ár við að hlera í fíkni-
efnamálum. Við fengum afhentar
spólur með samtölum í þeim málurn
sem við vorum að vinna í. Að samtöl-
unum loknum leyndust alls konar
samtöl þar fyrir aftan. Samtöl sem
við áttum alls ekki að heyra,” segir
einn heimildarmanna Blaðsins.
Heimildamenn segja hleranirnar
unnar í skjóli fíkniefnarannsókna,
en þeir hafi heyrt upptökur af ráða-
mönnum og margra þjóðþekktra
manna. Samkvæmt heimildar-
mönnum Blaðsins voru ólöglegar
hleranir aðallega stundaðar í skjóli
Útlendingaeftirlitsins á síðustu ára-
tugum síðustu aldar.
„Við fengum aldrei að komast í
tækin. Stundum komumst við í
spólur sem við áttum ekki að fá
en á þeim voru ekki þeir sem við
áttum að hlera. Ég er með mjög
gott heyrnarminni og þess vegna
vann ég í þessari deild,” sagði einn
viðmælendanna.
„Það er alveg út úr myndinni að
eitthvað hafi leynst á spólum sem
ekki var leyfi fyrir. Það var hreinsað
út af þeim spólum sem við notuðum.
Þetta er einfaldlega útilokað. Að við
höfum stundað viðbótarhleranir,
umfram fíkniefnarannsóknir, á
ekki við nein rök að styðjast,” sagði
Gísli Garðarsson, þáverandi starfs-
maður Útlendingaeftirlits. „Sem lög-
reglumaður hef ég trúnað og hef því
ekki skoðun á þessum málum. Þetta
er ekki svaravert að mínu mati.”
„Þetta er hreinasta kjaftæði og ég
tek ekki þátt í þessari umræðu. Ég
vil benda á, ef rétt reynist, að þetta
eru afbrot og slíkt er ekki stundað
hjá lögreglunni," segir Ingimundur
Einarsson varalögreglustjóri og ít-
rekar að hér séu helber ósannindi á
ferðinni. „Ég fullyrði að þetta á ekki
við nein rök að styðjast."
gerðar án dómsúrskurða.
Fullyrðingar um víðtækar hleranir í lögreglustöðinni í Reykjavík:
Lögreglustöðin í Reykjavík
Heimildarmenn Blaðsins segja
að víðtækar hleranir hafi verið
Stigahúsateppi
Suðurlandsbraut 10
Simi 533 5800
VSTRÖND
’ EHF.
www.simnet.is/strond
Hlerað í skjóli
fíkniefnamála
HEREFQRD
S T E I K H Ú S
Laugavegur 5 3b • 101 Rcykjavík
5 11 3350 • www.hereforci.is
Magnað tilboð á Hereford — alla vikuna
Glæsilegur 3ja rétta matseðill á aðeins 5.200,-/B^ao.uuanu'
r
r
:J
fi I
Hereford nautasteikurnar eru rómaðar, þú velur stærð, steikingu og meðlæti. Magnað!