blaðið - 24.10.2006, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2006
blaðið
INNLENT
HVALVEIÐAR
Onnur langreyður veidd
Áhöfn Hvals 9 veiddi aðra langreyði vertíðar-
innar þegar hún skaut hval í gær. Langreyðurin
sem veiddist í gær er nokkru minni en sú sem
veiddist um helgina og var fyrsta langreyðurin
til að vera skotin við íslandsstrendur í 20 ár.
EFNAHAGSMAL
Svipuð verðbólga áfram
Verðbólga verður áfram yfir sjö prósentum í
næstu mælingu Hagstofunnar gangi spá Grein-
ingardeildar Glitnis eftir. Greiningardeildin spáir
0,1 prósents hækkun neysluverðsvísitölu en sam-
kvæmt því er tólf mánaða verðbólga 7,4 prósent.
Okufantur í kappakstri
Sautján ára piltur mældist á tæplega 160 kílómetra hraða
um helgina í austurbæ Reykjavíkur en talið er að hann
hafi verið í kappakstri. Pilturinn missti hinsvegar stjórn á
bílnum og endaði utanvegar án þess þó að meiða aðra eða
sig sjálfan. i Ijós kom að hann var þar að auki próflaus.
Egyptaland:
Grafir tann-
lækna fundnar
Grafarræningjar hjálpuðu
fornleifafræðingum að komast
á snoðir um grafhvelfingar
þriggja tannlækna við Saqqara
skammt frá Kairó, höfuðborg Eg-
yptalands. Talið er að þetta séu
tannlæknar sem voru starfandi
hjá egypsku faraóunum fyrir um
4.200 árum. f grafhvelfingunum
voru múmíur tannlæknanna og
á veggjunum mátti lesa um ævi
og störf mannanna.
Zahi Hawass, yfirmaður forn-
minjamála í landinu, segir að
staðsetning grafhvelfinganna
sýni fram á þá virðingu sem
tannlæknar nutu á þessum tíma.
Reykjavík:
Fimm þúsund
í Grafarholti
Uppbygging í Grafarholts-
hverfi í Reykjavík hefur gengið
vel og voru íbúar hverfisins
orðnir tæplega 4.800 talsins í lok
ágústmánaðar síðastliðins.
Á vef framkvæmdasviðs
Reykjavíkurborgar segir að vest-
ari hluti hverfisins sé að mestu
fullgerður og kominn í notkun
og einungis átta íbúðir enn í
byggingu. f austari hluta Grafar-
holts er hlutfall fullgerðra íbúða
72 prósent. Nú eru um sex ár
síðan farið var að selja byggingar-
rétt í hverfinu.
Sala sveitarfélaga á Landsvirkjun:
Engin niðurstaða í sjónmáli
■ Borgarstjóri vill klára máliö um næstu mánaðamót ■ Bæjarstjóri Akureyrar svartsýnn
Eftir Höskuld Kára Schram
hoskuldur@bladid.net
Engin niðurstaða liggur fyrir í við-
ræðum ríkisins við Reykjavíkur-
borg og Akureyrarbæ vegna mögu-
legrar sölu á hlut sveitarfélaganna
í Landsvirkjun. Viðræður hafa
staðið yfir frá því í september en
ekki hefur náðst samstaða um verð-
mæti eignarhluta sveitarfélaganna.
Borgarstjórinn í Reykjavík segir
mikilvægt að niðurstaða liggi fyrir
um næstu mánaðamót.
Fullur vilji
„Viðræður hafa gengið ágætlega
í haust en við erum ekki algerlega
sammála um forsendur verðs,“
segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
borgarstjóri Reykjavíkur. „Ég legg
áherslu á að það verði komnar nið-
urstöður í þessar viðræður innan
tíu daga.“
Viðræður milli annars vegar
fulltrúa ríkisvaldsins og hins
vegar Reykjavíkurborgar og Ak-
ureyrarbæjar um mögulega sölu
á hlut sveitarfélaganna tveggja í
Landsvirkjun hófust síðasta vetur.
Síðasta vor var tekin ákvörðun um
að fresta þeim viðræðum fram yfir
bæjar- og sveitarstjórnarkosningar
og hófust viðræður að nýju í byrjun
septembermánaðar.
Þurfum að
ná lendíngu
i málinu
Kristján Þór Júlíusson,
bæjarstjóri Akureyrar
Wllaðniður-
stöðurliggi
fyrir um næstu
mánaðamót
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, borgar-
stjóri Reykjavíkur
Nokkur ágreiningur hefur
staðið um verðmat Lands-
virkjunar en Reykjavíkur-
borg á nú 45 prósenta
eignarhlut í Lands-
virkjun, Akureyrar-
bær 5 prósent og
ríkið 50 prósent.
Vilhjálmur
segir að fullur
vilji sé hjá
öllum aðilum
að ganga
frá málinu
eins fljótt og
kostur er og
að ágreining-
urinn sé ekki
djúpur. „Það
koma líka fleiri
þættir inn í þetta
eins og úfærsla
og hvernig verður
gengið endanlega frá
samningi. En það er
fullu vilji af hálfu beggja
aðila til að ganga frá þessu.
Risavaxið mál
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Akureyri, tekur undir orð
Vilhjálms og segir ágreininginn
snúast fyrst og fremst um útfærslu.
Hann er þó ekki vongóður um að
niðurstaða liggi fyrir á næstunni.
,Við klárum þetta ekki núna. Þetta
er risavaxið mál og það er snúið.
Ég ber þó þá von í brjósti að
samningar náist á næstu
mánuðum."
Kristján hefur óskað
eftir fundi með borgar-
stjóra til að þeir geti
stillt saman strengi
sína. „Það ermesta
furða hvað við
höfum verið sam-
stíga hingað til
en við þurfum
engu að síður
að stilla okkur
betur saman.“
Kristján vill
ekki tjá sig um
hvaða verðmiða
bærinn leggur á
sinn hlut í Lands-
virkjun en leggur
áherslu á að fullur vilji
sé til að ljúka málinu.
„Við þurfum bara að ná ein-
hverri lendingu. Það er vilji
alls staðar til að ljúka þessu.“
„ÞOR TULINIUS VINNUR
ÞARNA MIKINN SIGUR.
ANNTAFL
EFTIR STEFAN ZWEIG
AÐEINS 4 SYNINGAR!
ÞRÁINN BERTELSSON
TILNEFNr TIL
GRÍMUNNAR 2006
BORGARLEIKHUSIÐ
Ólán bankastarfsmanna:
Gátu ekki stafsett banka
Orðið „banki“ var vit-
laust stafsett á kasöksku
á nýútgefnum seðlum frá
seðlabanka Kasakstan.
Mistökin er svo umfangs-
mikil að stjórn seðlabankans
hefur ákveðið að kalla ekki seðl-
ana inn og hefur lýst því yfir að
þeir gildi í viðskiptum þrátt
fyrir hina meinlegu villu. Ka-
sakstan er fyrrum Sovétlýð-
veldi og er rússneska algeng-
asta tungumál íbúa landsins
og margir þeirra kunna ekki
kasöksku þrátt fyrir að það sé hin
opinbera tunga landsins.
Hreint ehf. var stofnað áriö 1983 og er eitt elsta
og staersta ræstingarfyrirtæki landsins.
Er HREINT hjá þínu fyrirtæki
Auðbrekku 8, 200 Kópavogi, simi 554 6088, hreint@hreint.is, www.hreint.is