blaðið - 24.10.2006, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2006
blaöiö
UTAN ÚR HEIMI
KÍNA
Margir handteknir
Rúmlega fimmtíu manns hafa verið handteknir í
tengslum við lífeyrishneykslismál í Shanghai í Kína.
Talið er að fjöldi kaupsýslumanna og háttsettir
embættismenn hafi misnotað sjóðinn og að fjárhæð-
irnar nemi rúmlega sjötíu milljörðum króna.
Ford tapar miklu
Bandaríski bílaframleiðandinn Ford Motors tapaði andvirði
400 milljarða íslenskra króna á þriðja ársfjórðungi. Alan
Mulally, framkvæmdastjóri Ford, segir afkomuna með öllu
óásættanlega og að sjónum verði nú beint að framleiðslu
sparneytinna bíla í anda japanskrar bílaframleiðslu.
Piltur féll í árás
Tólf ára drengur lést þegar bandarískir hermenn
gerðu áhlaup á hús í Mosul í (rak í gær. Banda-
ríkjamenn sögðu hryðjverkamenn hafast við í hús-
inu og handtóku mann sem þeir segja háttsettan
foringja í þeirra röðum.
íslensk erfðagreining sætir gagnrýni:
Rannsóknir dregnar í efa
■ Erfitt að sannreyna niðurstöðurnar ■ Gagnrýnendur réðu ekki við rannsóknina
Umferðarbrot:
Vélhjólamaður
á ofsahraða
Lögreglan í Keflavík veitti
mótorhjóli á Reykjanesbrautinni
eftirför frá Vogavegi síðdegis á
sunnudag. Hjólið mældist á 156
kílómetra hraða en ökumaður
sinnti ekki stöðvunarmerkjum
lögreglu.
Eftirförin gekk alla leið inn í
Hafnarfjörð og tók lögreglan þar
á móti honum við álverið. Ekki
tókst þó að stöðva för hans. Það
var ekki fyrr en ökumaður lenti
í mikilli umferð við Haukahúsið
að hann nam staðar. Kom þá í
ljós að ökumaðurinn var nítján
ára gamall og hafði aldrei verið
með réttindi á hjólið.
hafi verið mun viðameiri en þær
erlendu. „Það er erfitt að endur-
taka svona rannsókn enda var hún
mjög stór hjá okkur. Þeir sem voru
að reyna endurtaka voru ekki með
nægilegan fjölda sjúklinga til þess
hægt væri að fá nógu góðar niður-
stöður. Stundum kjósa menn að
stytta sér leið.“
Að sögn Kára er þetta eðlilegt
ferli í vísindaheiminum þegar
kemur að nýjum uppgötvunum.
Hann segir þó ekkert hafa komið
fram sem ímekkir niðurstöðum
rannsóknarinnar og að mörgum
hafi tekist að endurtaka þær. „Það
er fullt af rannsóknum sem hafa
verið gerðar sem staðfesta okkar
niðurstöður og ég von á því að
greinar þess efnis birtist fljótlega í
vísindatímaritum"
Eftir Höskuld Kára Sohram
hoskuldur@bladid.net
„Þegar menn vita hver niðurstaðan
er þá hafa þeir tilhneigingu til þess
að svindlasegir Kári Stefánsson,
forstjóri íslenskrar erfðagreiningar.
1 grein í októberútgáfu vísinda-
tímaritsins Nature Genetics kemur
fram að erfiðlega hafi gengið fyrir
erlenda vísindamenn að endur-
taka rannsóknir Islenskrar erfða-
greiningar um þátt erfðavísisins
PDE4D í heilaáföllum. Þar kemur
ennfremur fram að þrátt fyrir fjöl-
margar tilraunir eru niðurstöður
ekki einhlítar.
Kári segir margar af þessum
endurteknu tilraunum alls ekki
sambærilegar við rannsóknir ís-
lenskrar erfðagreiningar. Hann
bendir á að íslenska rannsóknin
Menn hafa til-
hneigingu til að
stytta sér leið í
rannsóknum.
Kári Stefánsson
forstjóri (slenskrar
erfðagreiningar
--»
1!
/ M t
11 Islensk erfðagreining
Rannsóknir fyrirtækisins á
4 þætti erfðavísisins PDE4D
hafa verið dregnar 1 efna. \
Flex-T skrifstofuhúsgögn
á tilboðsverði!
Flex-T skrifstofuhúsgögn fást í
ýmsum stærðum og útfærslum.
Pau eru hönnuð af Guðrúnu Margréti
Úlafsdóttur og Oddgeiri Þórðarsyni
húsgagna- og innanhússarkitektum FHI.
ipa
Flex-T vinnustöð (180x200 cm)
Verð áður 71.369 kr.
Tiiboð 49.958 kr.
Flex-T með rafmagnsstillingu (180x80 cm)
Verð áður 110.531 kr.
Tiiboð 88.425 kr.
mnmaemm
’*fWÍs,i01
A. GUÐAAUNDSSON
Bæjarlind 8-10- Kópavogi ■ Sími 510 7300 ■ www.ag.is
HÚSCðON
Jíá
Bandarískir körfuboltamenn:
Máttu ekki spila í íran
Embættismenn hjá bandaríska
fjármálaráðuneytinu hafa tekið
hóp atvinnumanna í körfubolta til
rannsóknar og telja þá hafa brotið
f;egn viðskiptabanni stjórnvalda á
ran.
Um tuttugu Bandaríkjamenn
þáðu greiðslur fyrir að leika með ír-
önskum körfuboltaliðum á síðasta
ári. Þar sem bandarísk lög kveða á
um að sérstakt leyfi þurfi frá banda-
rískum stjórnvöldum til að eiga í
viðskiptum við frana geta þeir átt
yfir höfði sér fjársekt sem nemur
um þremur milljónum. Málsvörn
íþróttamannanna felst í að þeir
höfðu ekki hugmynd um að þeir
væru að brjóta lög og grafa undan
utanríkisstefnu Bandaríkjanna
gagnvart írönum.
Málþing Heilaheilla um slag:
Nauðsynlegt
að fá sérdeildir
Marktækur árangur hefur
orðið af starfsemi sérstakra heila-
blóðfallseininga eða slageininga á
erlendum sjúkrahúsum. fslenskir
sérfræðingar eru sammála um
nauðsyn slíkra deilda á sjúkra-
húsum hér á landi, að því er fram
kom á málþingi Heilaheilla um síð-
ustu helgi. Á hverjum degi fá tveir
íslendingar slag. Sjúkdómurinn er
mun algengari en flestir telja og
færist stöðugt niður í aldri.
„f séreiningum á sjúkrahúsum
er lögð meiri áhersía á einstak-
lingsmeðferðina. Sérhæft hjúkr-
unarfólk þarf að taka við end-
urhæfingu frá fyrsta degi. Það
getur verið vandasamt að komast
í samband við heila sem orðið
hefur fyrir áfalli. Ef ekki er brugð-
ist rétt við strax getur það haft
neikvæð áhrif á bataferlið. Við
teljum mjög brýnt að slíkar ein-
ingar verði stofnaðar,” segir Þórir
Steingrímsson, formaður samtak-
anna Heilaheilla, sem stuðla að
fræðslu um sjúkdóminn og afleið-
ingar hans.