blaðið - 24.10.2006, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2006
blaöiö
UTAN ÚR HEIMI
KÍNA
Margir handteknir
Rúmlega fimmtíu manns hafa verið handteknir í
tengslum við iífeyrishneykslismál í Shanghai í Kína.
Talið er að fjöldi kaupsýslumanna og háttsettir
embættismenn hafi misnotað sjóðinn og að fjár-
hæðirnar nemi rúmlega sjötíu milljörðum króna.
Ford tapar miklu
Bandaríski bílaframleiðandinn Ford Motors tapaði
andvirði 400 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi.
Framkvæmdastjóri Ford, segir afkomuna með öllu óá-
sættanlega og að sjónum verði nú beint að framleiðslu
sparneytinna bíla í anda japanskrar bílaframleiðslu.
AFGANISTAN
Talibanar hóta
Mullah Omar, leiðtogi talibana í Afganistan, hefur hótað nýrri sókn og
átökum þegar föstumánuðinum Ramadan lýkur. Hann hvetur stuðn-
ingsmenn sína til samstöðu gegn Bandaríkjamönnum og hermönnum
NATO. I yfirlýsingunni segir Mullah Omar að með guðs vilja muni
bardagar harðna á komandi mánuðum.
Árásarmaður slapp við refsingu:
Kýldi lögreglumann
Manni á þrítugsaldri var ekki
gerð sérstök refsing íy rir að kýla lög-
reglumann þegar sá ætlaði að hand-
taka hann og fyrir að hafa smáræði
af amfetamíni undir höndum.
Maðurinn flúði undan lögreglu í
Reykjavík þegar hún hafði afskipti
af honum og endaði eftirförin á
malarplani. Maðurinn faldi sig
undir bíl en lögreglumenn urðu
hans varir. Þegar þeir handsöm-
uðu hann sló hann lögreglumann
í andlitið en sjálfur hlaut hann
heilahristing þegar hann rak sig
upp undir bílinn þegar hann
Kýldi lögreglu og ekki gerð nein
refsing Maður á þrítugsaldri kýldi
lögregluþjón og fékk sjálfur heila-
hristing.
kom undan honum. Við það högg
hlaut hann heilahristing og ældi
ítrekað. Maðurinn hafði áður verið
dæmdur í sex mánaða fangelsi.
20% afsláttur
af öllum bætiefnum Heilsu
með gula miðanum
i oktober. frf
^ÖAVÖ^
BARNA VÍT
fíheilsa
LIÐ-AKTIN
6XTRA
\xumq
MEGA
OMGGA-3 MÚLTÍ-VÍT
1 nwl —. ■ - -
^Apótekið
lægro verð
heilsa
Hólagarði, Hverafold,
Hagkaupum Skeifunni og Akureyri.
4® fjtéjm Fimmtíu ára afmæli uppreisnar-
p innar Átök brutust út igærþegar
lögregla reyndi að koma mótmæl-
lá lL_ endum frá þinghúsinu
Enn ólga i Ungverjalairdi
Lögregla skaut gúmmíkúlum á mótmælendur
Osáttir við lygar forsætisráðherra
Ungverjar minntust þess í gær að
hálf öld er liðin frá því að þeir risu
upp gegn Sovétmönnum. Fjöldi er-
lendra þjóðhöfðingja, þar á meðal
Ólafur Ragnar Grímsson, voru
viðstaddir athöfn við þinghúsið í
Búdapest þar sem atburðarins var
minnst.
Andstæðingar Ferenc Gyurcsany
forsætisráðherra hafa haldið uppi
mótmælum við þinghúsið í fleiri
vikur. Áður en athöfnin hófst í gær
lentu hundruð manna í útistöðum
við lögreglu þegar hún reyndi að
koma mótmælendunum frá þing-
húsinu. Þegar leið á daginn mögn-
uðust átökin og skaut lögregla
gúmmíkúlum á mótmælendur og
sprautaði á þá táragasi í þeim til-
gangi að dreifa þeim.
Mótmælendurnir hafa efnt til
mótmæla gegn forsætisráðherr-
anum siðan í síðasta mánuði þegar
hann viðurkenndi að hafa logið að
þjóðinni um efnahag þjóðarinnar
og horfur til að ná fram sigri í þing-
kosningunum í apríl síðastliðnum.
Forseti landsins, Laszlo Solyom,
flutti ávarp á sunnudaginn þar sem
Herskáir mótmælendur Mótmælendur tóku sér meðai annars stöðu á göm-
lum hertólum sem nota átti á sýningu.
hann kallaði eftir þjóðarsátt. Hann árið 1956, sem hersveitir Sovétmanna
sagði þjóðina hafa sameinast í kröfu bældu niður með þeim afleiðingum
um sjálfstæði landsins í uppreisninni að á þriðja þúsund létu lífið.
Bein útsending frá fótboltaleik dró úr kjörsókn:
Skurðurinn stækkaður
Panamaskurðurinn Tengir Atlantshaf við Kyrrahaf
íbúar Panama samþykktu með
miklum meirihluta í þjóðaratkvæða-
greiðslu á sunnudaginn að skipa-
skurðurinn sem liggur i gegnum
landið skyldi stækkaður. Ríkis-
stjórnin, flestir stjórnmálaflokkar
og fulltrúar atvinnulífsins í Pan-
ama studdu stækkunina. Kosninga-
þátttakan var einungis um fjörutíu
prósent. Stjórnvöld skýra þessa litlu
þátttöku með því að knattspyrnu-
leikur Real Madrid og Barcelona
hafi verið sýndur í sjónvarpi sama
dag. 78 prósent þeirra sem kusu
studdu tillöguna.
Núna eru fjölmörg flutningaskip
of stór til að geta siglt í gegnum
hinn áttatíu kílómetra langa skurð
sem tengir Atlantshaf við Kyrra-
haf. Afkastageta skipaskurðarins
mun tvöfaldast að framkvæmdum
loknum og vonast rlkisstjórnin til
þess að stækkunin muni draga úr
hinni miklu fátækt í landinu. Haf-
ist verður handa á næsta ári og er
áætlað að framkvæmdum ljúki á
aldarafmæli skurðarins, árið 2014.