blaðið - 24.10.2006, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2006
blaöiö
UTAN ÚR HEIMI
*
Önnur umferð
Þörf er á annarri umferð í búlgörsku forsetakosningunum
vegna þess að kjörsókn var minni en fimmtíu prósent.
Kosið verður milli þeirra tveggja sem hlutu flest atkvæði,
Georgi Parvanov, núverandi forseta, sem hlaut um 60 þró-
sent atkvæða og Volen Siderov sem hlaut um 22 prósent.
Auglýsingasíminn er
510 3744
SMÁAUGLÝSINGAR
blaðið
Hafi álit á tréberki
Hvenær er maður virkilega dauður ■ Hörð samkeppni
Hversu hátt hlutfall af öllu vatni jarðar kemst
fyrir í einni kú? Umsækjendur í Oxford og Cam-
bridge þurfa að svara furðulegum spurningum.
Það dugar skammt að hafa góðar
einkunnir til þess að komast inn í
fremstu háskóla heims. f könnun
sem var gerð á dögunum á þeim
spurningum sem stjórnendur Ox-
ford og Cambridge spyrja umsækj-
endur til þess að vega og meta erindi
þeirra í hinar fornfrægu mennta-
stofnanir kemur fram að þær eru
ansi einkennilegar á köflum.
Að sögn þeirra sem þekkja til
hefur fjöldi afbragðsnemenda sem
sækja um skólavist í Oxford og Cam-
bridge aukist gríðarlega og því þarf
að grípa til framúrstefnulegra spurn-
inga til þess að komast að því hvaða
umsækjendur eru raunveruleg efni
í andleg stórmenni.
Fram kemur í könnuninni að
umsækjendur við náttúrufræði-
deild Oxford-háskóla þurftu að
svara eftirfarandi spurningu: Hér
er trébörkur, segðu okkur hvað þér
finnst? Stjórnendum læknadeildar-
innar i Cambridge er mikið í mun
að væntanlegir nemendur greini
mörkin á milli lífs og dauða og þar
af leiðandi voru þeir spurðir hve-
nær manneskja væri raunverulega
dauð. Stundum er sagt að þeir sem
helga sig hagfræðirannsóknum viti
verð allra hluta en ekki virði neins.
Þeir nemendur sem sóttu um nám
í hagfræði við Cambridge þurftu að
gefa upp hvers virði tepottur væri.
Stjórnendur heimspekideildarinnar
í Oxford virðast vera yfirborðs-
kenndari en þeir vildu vita hvort
umsækjendur „væru svalir”.
Aðrar spurningar sem umsækj-
endur fengu að spreyta sig á voru til
dæmis: Hvernig virkar permanent?
Hvaða stjórnmálamaður nítjándu
aldarinnar líkist Tony Blair mest?
Hversu hátt hlutfall af öllu vatni
jarðar kemst fyrir í einni kú?
Þessar skrýtnu spurningar eru
lagðar fyrir umsækjendur til þess
að komast að því hverjir hafa frjóa
og frumlega hugsun og til þess að
sjá hvernig rökhugsun þeirra bregst
við furðulegheitunum.
Skilið á milli afbragðsnemenda í Oxford og Cambridge:
Fer vegna bloggs
Jan Pronk, yfirmaður sendinefndar Sameinuðu þjóðanna í Súdan, yf-
irgaf landið í gær eftir að vera vísað úr landi. Ástæðan er sú að Pronk
hafði skrifað á bloggsíöu sína að súdanskar hersveitir hefðu tapað
bardögum í Darfúr-héraði og að liðsandi hersveitanna væri slæmur.
Súdönsk stjórnvöld hafa hindrað friðargæsluliða SÞ í að fara til Darfúr.
nrmsi
I kvöld milli kl. 18 og 19 á SKJAEINUM
SKJÁRE/WA/ næst i gegnum Skjáinn og Digital ísland