blaðið - 24.10.2006, Síða 15
blaöið
ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2006 15
Samfylkingin:
Vill þráð-
lausan miðbæ
Kanna á áhuga fjarskipta-
fyrirtækjanna á því að koma
upp búnaði sem kemur miðbæ
Reykjavíkur í þráðlaust netsam-
band samkvæmt tillögu fulltrúa
Samfylkingarinnar. Tillagan var
lögð fram á fundi menningar- og
ferðamálaráðs Reykjavíkur-
borgar í gær.
Markmiðið er að bjóða ferða-
mönnum og gestum miðborg-
arinnar að nýta sér þráðlaust
netsamband gegn vægu gjaldi
eða gjaldfrjálst.
Sala áfengis:
Dregið úr
kaupgleði
Þrátt fyrir tæplega fjögurra
prósenta veltuaukningu í dag-
vöruverslun í septembermánuði
milli ára dregur Rannsóknar-
setur verslunarinnar þá ályktun
að smám saman dragi úr kaup-
gleði landsmanna og að þensla
minnki.
Töluverður samdráttur var
milli ágúst- og septembermán-
aðar í ár og ein helsta skýring
þess eru veisluhöld landsmanna
um verslunarmannahelgina.
Aukning á sölu áfengis milli ára
er meiri en á dagvöru eða tæp
sjö prósent.
Skátastarf:
Kaldar kveðjur
frá ríkinu
Stjórn Bandalags íslenskra
skáta krefst þess að Alþingi
leiðrétti þá tillögu sem fram
kemur i fjárlagafrumvarpi um
niðurskurð á styrkjum ríkisins
til skátastarfs um 34 prósent. 1
ályktun frá BÍS segir að þetta
hafi verið þeim mun kaldari
kveðjur í ljósi þess að tilkynn-
ingin barst einungis fjórum
dögum eftir Forvarnardaginn,
þar sem áhersla var lögð á mik-
ilvægi skipulagðs æskulýðs- og
íþróttastarfs.
„Þessi niðurskurður er ekki
síður sár í Ijósi þeirrar stað-
reyndar að árið 2007 markar sér-
stakan sess í hugum skáta, því
hinn 1. ágúst 2007 eru hundrað
ár liðin frá því Baden-Powell
fór í fyrstu skátaútileguna og er
hún talin marka upphaf skáta-
starfsins," segir í ályktuninni.
Erfitt að fá stæði nálægt Kvennaskólanum í Reykjavík:
Bílar nema fylla öll stæði
■ Kemur niður á þjónustu fyrirtækja ■ íbúar komast ekki heim til sín
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
Á skólatíma er lagt í öll þau stæði
sem tileinkuð eru viðskiptavinum
fyrirtækisins og allt hverfið
pakkað af bílum frá nemendum
Kvennó. Þetta kemur niður á
okkar þjónustu við viðskiptavini
okkar,“ segir Ingiveig Gunnars-
dóttir, framkvæmdastjóri Ferða-
skrifstofunnar Príma Embla ehf
- Heimsklúbburinn, um mikinn
bílastæðavanda sem herjar á
íbúa og fyrirtæki í nágrenni við
Kvennaskólann í Reykjavík. Hún
segir ástandið mjög hvimleitt og
jafnvel starfsmenn fyrirtækisins
fái ekki stæði á morgnana. Ásgeir
Guðmundsson, formaður nem-
endafélags Kvennaskólans, segir
tæp sex hundruð nemendur skól-
ans og þykir leitt hvernig það bitni
á nágrönnum skólans. „Þau örfáu
bílastæði sem merkt eru skólanum
eru frátekin fyrir starfsfólk skólans.
Ég myndi segja að tæpur tugur nem-
enda nái að leggja í lögleg stæði á
morgnana,“ segir Ásgeir. „Við neyð-
umst til að leggja í einkastæði því
annað býðst ekki á morgnana í hæfi-
legri göngufjarlægð. Þannig hefur
komið til árekstra við fyrirtæki og
íbúa í nágrenni og okkur þykir það
leitt.“
Sendiráðin í vanda
Vandinn herjar líka á sendiráð
í nágrenni skólans og upplýsinga-
fulltrúi Bandaríska sendiráðsins
staðfesti slíkt. Ingiveig vill að
málið verði leyst fljótlega og hefur
óskað eftir því við yfirstjórn skól-
ans að tekið sé á vandanum. Við
viljum skjóta bót á þessu máli og
biðjum nemendur að leggja ekki
í einkastæði í hverfinu. Þeir hafa
gott af því að ganga aðeins enda
er þetta einfaldlega siðlaust,“ segir
Ingiveig.
Ásgeir er ósammála því og segir
nemendurfrekarleggja óleglega en að
þurfa að ganga langar vegalengdir.
„Þegar maður mætir eldsnemma
á morgnana og að verða of seinn þá
nennir maður ekki að leggja langt í
burtu frá skólanum," segir Ásgeir.
.Nemendur hafa greitt himinháar
fjárhæðir í stöðumælasektir eftir að
hafa lagt ólöglega."
Kemst ekki heim tii sín
Kristína G. Pálsson, íbúi við
Hellusund 6, lendir reglulega í
því að lagt sé í einkastæði hennar
og hefur ítrekað lent í árekstrum
Kennarar og nemendur Uenniaskótans i Reykjavlk <nl)a úrtwtur:
■ Biaðið fimmtudaginn 19. október
við nemendur skólans. „Þrátt fyrir
nokkur stæði fyrir utan húsið þá
kemst ég stundum ekki heim til mín
á daginn. Stundum er jafnvel lagt
ofan í tröppurnar hjá mér þannig að
ég kemst varla inn með vörur," segir
Kristína. „í þau skipti sem ég hef
reynt samskipti við nemendur þá hef
ég iðulega fengið ókurteis tilsvör.“
Oddný Hafberg, skólameistari
Kvennaskólans, segist hvetja nem-
endur til að leggja ekki í einkastæði
í hverfinu og að þeir taki frekar
strætó. Hún segir starfsfólk skólans
líka í vandræðum. „Þetta hefur verið
svona lengi enda erum við stödd
í miðbænum. Kennararnir eru í
kringum fimmtíu talsins og þeim
bjóðast tólf stæði,“ segir Oddný. Öll
stæðin hér í kring hafa verið gerð
gjaldskyld og óneitanlega sé þetta
mjög erfið staða.“
1 kr. aðra leiðina
Þetta einstaka tilboðsfargjald
gildirtil allra áfangastaða
Flugfélags íslands innanlands
4 er fyrir börn 2 -11 ára í fyigd
með fullorðnum og í sömu bókun
gildir 16. okt. - 6. nóv.
býðst eingöngu þegar bókað er
á netinu www.flugfelag.is
4 bókanlegt frá 13. október
www.flugfelag.is | 570 3030
FLUGFELAG ISLANDS