blaðið - 24.10.2006, Síða 16
blaðiö
Útgáfufélag:
Stjórnarformaður:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Ár og dagurehf.
SigurðurG.Guðjónsson
Sigurjón M. Egilsson
Brynjólfur Þór Guðmundsson og
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Janus Sigurjónsson
Hlerunarstöð
við Hverfisgötu
í langan tíma hefur það verið á vitorði margra innan lögreglunnar í
Reykjavík að símar fólks hafa verið hleraðir. Og jafnvel í meira mæli en
haldið hefur verið fram. Heimildarmenn Blaðsins fullyrða að svo sé, en
ábyrgðarmenn lögreglunnar bera af sér sakir. Það er alsiða við vinnslu af-
hjúpandi frétta, að heimildarmenn sem oftast eru knúnir áfram af réttlæt-
iskennd, staðfesta mál meðan þeir sem ábyrgðina bera gera allt sem þeir
geta til að kæfa mál, til að hrekja blaðamenn af leið eða til að koma með
einhverjum hætti í veg fyrir að óþægilegar fréttir rati á prent.
Við vinnslu frétta um símahleranir í lögreglustöðinni við Hverfisgötu
kom svo margt fram sem kemur á óvart. Þeir sem voru fúsir til að ræða
við blaðamenn höfðu frá mörgu að segja. Næturvöktum í símstöðinni,
sem köllluð var hótel helvíti, og skráningum á félagsmönnum ýmissa fé-
laga og samtaka. Embættismenn sem rætt var við geta ekki útilokað að
enn sé fylgst með fólki sem ekki getur talist til afbrotamanna, svo sem
eins og mótmælendum hinna ýmsu mála. Þar voru nefnd Falun Gong og
mótmæli vegna Kárahnjúka. Einn þeirra sem starfar við að fylgjast með
fólki segir ekki rétt að til séu skrár um félagatöl, segir að það myndi stang-
ast á við lög um persónuvernd, meðan aðrir viðmælendur eru sannfærðir
að slíkar skrár séu til og þær uppfærðar reglulega.
„Ég vann í mörg ár við að hlera í fíkniefnamálum. Við fengum afhentar
spólur með samtölum í þeim málum sem við vorum að vinna í. Að sam-
tölunum loknum leyndust alls konar samtöl þar fyrir aftan. Samtöl sem
við áttum alls ekki að heyra,” segir einn heimildarmanna Blaðsins við
vinnslu fréttarinnar. Einn þeirra sem starfaði í dularfulla símaherberginu
neitar þessu ákveðið: „Ég kannast ekki við þessar frásagnir. Hér er ein-
hver misskilningur á ferðinni," segir hann.
Þar sem heimildirnar eru traustar og ásakanir þeirra manna, sem rætt
er við, eru alvarlegar verður lögreglan að gera betur en neita málinu í einu
handtaki. Það er ákvörðun að birta frétt gegn neitun þeirra sem eiga best
að þekkja til. Neitunin má þó aldrei verða til þess að frétt birtist ekki, ein-
ungis neitunarinnar vegna. Þá verður fjölmiðill að vega og meta fyrirliggj-
andi gögn, framkomnar fullyrðingar, þá sem tala eða annað sem styður
fréttina. Þegar það hefur verið gert er fyrst hægt að taka ákvörðun um birt-
ingu fréttar. Það er þetta sem ábyrgðarmenn fjölmiðla meta hverju sinni.
Hleranir á lögreglustöðinni við Hverfisgötu eru staðreyndir. Fullyrt er
að oft hafi verið hlerað án dómsúrskurða, að lögreglan hafi brotið lög. í
allri þeirri umræðu sem verið hefur um hleranir og persónunjósnir er
hlerunarstöðin við Hverfisgötu sennilega ekki veigaminnsti þátturinn og
hlýtur að verðskulda athygli.
Sigurjón M. Egilsson
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aðalsimi: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á augiýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
KARCHER
99,99% hreinlæti
Fjögra þrepa hreinsun á lofti
Engir ryksugupokar
Fjórföld síun á lofti skilar
því tandurhreinu út í
andrúmsloftið
DS 5500
' Afl: 1400 W
• WWW.RAFVER.IS
Hepa 12 loftsía Vatni með óhreinindum
hellt úr fötunni
16 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2006
blaöiö
Fullkomin falleinkunn
Þegar félagi minn, Rannveig
Guðmundsdóttir, var félagsmálaráð-
herra fyrir tólf árum kynnti hún ítar-
lega úttekt álaunamisrétti kynjanna.
Svo tók við ríkisstjórn Framsóknar-
flokks og Sjálfstæðisflokks. Nú í
vikunni kynnti félagsmálaráðherra
árangur síðustu tólf ára með niður-
stöðum sams konar könnunar og
gerð var fyrir tólf árum. Og árangur-
inn er nákvæmlega enginn. Launa-
misrétti kynjanna er nákvæmlega
jafn slæmt og þegar þessir flokkar
tóku við. Og það er einfaldlega full-
komin falleinkunn í stærsta mann-
réttindamáli samtímans að ná
engum árangri á tólf árum.
Það er kannski til marks um al-
menna uppgjöf að það var víðast
ekki nema fjórða eða fimmta frétt
að enn séu mannréttindi daglega
brotin á öðrum hverjum íslendingi
og það í jafn miklum mæli og fyrir
áratug síðan. Það er líka merkilegt
að okkur blöskrar þetta svo að við
reynum að tala allar stærðir niður.
Þannig er sagt að óútskýrður launa-
munur þýði að konur hafi 16% lægri
laun, en ekki að við karlar höfum
20% hærri. Það er líka sagt að í heild-
ina hafi konur þriðjungi lægri laun,
i stað þess að segja eins og er að
við strákarnir erum með helmingi
hærra kaup.
Aukaverkefni
Nú ber ríkisstjórnin ekki ein
ábyrgð á þessum víðtæku mannrétt-
indabrotum á konum. Það gerum
við öll. Og ríkisvaldið mun ekki
eitt og sér leysa launamisréttið.
Við þurfum öll að leggja okkar af
Klippt & skorið
mörkum til þess. En ríkisstjórnin
hefur forystu fyrir landinu og á að
leiða baráttuna gegn launamisrétt-
inu. Það á að gera kröfu um að for-
ysta í baráttunni gegn launamisrétti
sé forgangsmál ríkisstjórnarinnar
Helgi Hjörvar
og það er hægt að gera kröfu til þess
að á tólf árum miði eitthvað áleiðis.
Hvorugu er til að dreifa.
Það var þó lofsvert þegar ríkis-
stjórnin innleiddi í þverpólitískri
samstöðu ný lög um fæðingarorlof.
Að öðru leyti hefur launamisréttið
verið einhvers konar aukaverkefni,
falið einu fagráðuneytanna og eng-
inn árangur næst. Þau verkefni sem
tekin eru alvarlega, þeim er sinnt
af ríkisstjórninni sjálfri og gjarnan
stýrt úr forsætisráðuneytinu. Þetta
sjáum við til dæmis þegar kemur að
varnarviðræðum við Bandaríkin.
Við sjáum þetta líka í ráðherranefnd
um einkavæðingu, því einkavæð-
ingin skiptir svo miklu máli að
hópur ráðherra stýrir henni. Upplýs-
ingatækninni var líka sinnt þvert á
ráðuneyti og „Einfaldara ísland“ er
enn eitt af verkefnum forsætisráð-
herra. Af þessu sést að það eru ein-
faldlega önnur verkefni sem hafa for-
gang hjá ríkisstjórninni en glíman
við launamisrétti kynja.
Þegar ríkisstjórnin ætlar sér eitt-
hvað raunverulega, eins og að virkja,
þá er ómælt fé sett í rannsóknir, sér-
fræðiaðstoð, áætlanagerð og loks
framkvæmd. Enda rísavirkjanirnar.
Engin slík alvara er í áætlunum og
framkvæmd í jafnréttismálum.
Nýir vendir sópa best
Við í Samfylkingunni höfum með
félögum okkar í stjórnarandstöð-
unni lagt fram tillögur um aðgerðir
í þessum efnum. Þær snúa bæði að
launaleyndinni og heimildum Jafn-
réttisráðs. Áður hefur Samfylkingin
lagt til að jafnréttismálin verði gerð
að ábyrgð forsætisráðherra, svo að-
eins séu nefnd nokkur dæmi um
það sem hægt er að gera. Og merg-
urinn málsins er sá að ríkisstjórnin
er einfaldlega ekki að gera allt sem
hægt er í málinu. Hennar tólf ár
hafa engu skilað okkur og tími er til
kominn að fela þeim forystuna sem
vilja grípa til róttækra aðgerða. Og
við kunnum til verka. Undir forystu
Ingibjargar Sólrúnar gerði Reykj-
avíkurlistinn jafnréttismál að for-
gangsmáli og ábyrgð borgarstjóra.
Og með áætlunum og stefnu í kjara-
samningum náðist umtalsverður
árangur í að minnka launamun hjá
borginni. Slíka forystu þurfum við
nú fyrir landinu.
Höfundur er þingmaður
Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Avef Marðar Árnasonar, þingmanns
Samfylkingarinnar, hafa gestapennar,
svonefndir „ráðherrar dagsins" lagt orð
*Bt j í belg upp á síðkastið, þar á
Hl meðal Karl Th. Birgisson,
1 sem útlagði hvernig hlutirnir
væru ef hann fengi að ráða:
BMjmyndið ykkur i staðinn
rfkisstjórnarfund með Ingi-
björgu Sólrúnu, Össuri, Helga, Kristjáni,
Völu Bjarna, Árna Páli, Merði - og í okkar
villtustu draumum Róberti og Gumma Stein-
gríms." Sú tilhugsun vakti mismunandi hughrif
með lesendum og hin hressilega þingkona
Guðrún Ögmundsdóttir var ekki sein á sér að
benda á það á vef sínum (althingi.is/go/) að ekki
væri jafnréttið ofarlega í huga Karls: 9 karlar og
2 konur. Gunna þurfti þó ekki að bíða lengi eftir
því að hlutur kvenna væri réttur á síðum Marðar,
þvi næsti ráðherra dagsins, Ragnhildur Vigfús-
dóttir, óskaði sér þess helst að konur yrðu meiri-
hluti þingheims og mynduðu þjóðstjórn kvenna.
Annars vakti það eftirtekt að alþingismenn-
irnir Birgir Ármannsson og Helgi
Hjörvar mættust á gamaldags pólit-
ískum kappræðufundi í síðustu viku og greindi
á um eitt og annað. Ekki allt þó,
þvi glöggir menn hafa tekið eftir
þvi að Helgi hefur nú tekið upp
sama slagorð og Birgir í sinni
prófkjörsbaráttu: „Vöndum valið."
Klippari sló á þráðinn til Helga og spurði út í
þetta, en hann sagði þetta helbera tilviljun. „Ég
hef ekki séð þetta slagorð hans Birgis, hvað þá
meir." í kvöld mætast svo þau Birgir og Kolbrún
Halldórsdóttir á efri hæðinni á Café Victor í
Hafnarstræti.
Framsóknarmenn munu frekar fúlir eftir að
Guðlaugur Þór Þórðarson, stjórnarfor-
maður Orkuveitu Reykjavíkur, gangsetti
Hellisheiðarvirkjun á laugardag að viðstöddu
tæplega 1% þjóðarinnar. Gremju framsóknar-
manna má rekja til þess að Guðlaugur Þór minnt-
istekkiáAlfreð Þorsteinsson,fyrirrennarasinn,
einu orði. Gárungarnir segja hins vegar að miðað
við hvernig Gulla hafi legið orð
til Alfreðs á siðasta kjörtímabili
hefðu þeir sjálfsagt fyrst orðið
brjálaðir ef hann hefði úttalað
sig um hann.
andres.magnusson@bladid.net