blaðið - 24.10.2006, Qupperneq 20
32 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2006
blaöið
fólk
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Er þetta píramídasvindl?
„Þetta er eini ekta píramídinn á íslandi og sá eini
sem erfullur af ást og kærleik."
Snorri Ásmundsson listamaður
Snorri dvelur í piramída og dreifir fallegri og góðri orku
með hugleiðslu. Hann mun vera við Perluna i dag og svo
við Hallgrimskirkju á fimmtudag fyrir þá sem vilja góða
strauma.
HEYRST HEFUR...
Iceland Airwaves er nýlokið og
er það mál manna að vel hafi
tekist til. Á laugardag var hið
árlega Hangover-partí Iceland
Airwaves í Bláa lóninu þar sem
blaðamenn og hljómsveitir
skemmta sér saman. Einni af
stærri hljómsveitunum sem þar
voru fannst heldur furðulegt
að áfenginu væri dælt í erlendu
blaðamennina á meðan hljóm-
sveitarmeðlimirnir sjálfir fengu
bara tvo bjóra eða svo þegar þeir
komu fram.
Blaðamaður New York Times
missti kjálkann í gólfið af að-
dáun þegar hann fylgdist með is-
lensku hljómsveit-
inni Reykjavík!
á fimmtudags-
kvöldið á Nasa.
Blaðamaðurinn
var vægast sagt
mjög hrifinn af tónlistinni sem
og framgöngu hljómsveitarinnar
sem gerði allt vitlaust.
Gott gert betra Guðrún Helga Sig■
urðardóttir: „Fjölmiðlar hafa breyst
rosalega mikið og að mörgu leyti
til hins betra. Það er hins vegar
alltaf hægt að halda áfram, velta -
hlutunum fyrir sér og spyrja spurn-
inga til að gera gott betra. “
BlaWFMI
Fjölmiðlar
A f eðlimir bresku hljómsveit-
lVJ.arinnar Kaiser Chiefs
sem var stærsta nafnið á Iceland
Airwaves í ár eru
mikið fyrir að
vera í einrúmi.
Þeir kröfðust þess
til dæmis að fá að
snæða í einrúmi
í Hressingarskálanum sem var
upplýsingamiðstöð Airwaves.
Var orðið við ósk þeirra og
félagarnir fengu að borða við
kertaljós og hvíta dúka, rétt eins
og þeir væru einir í heiminum.
1'7' anadíska hljómsveitin Wolf
I\.Parade spilaði á troðfullum
Gauknum á föstudagskvöldið
og þóttu tónleikarnir með ein-
dæmum skemmti-
legir. Söngvari
WolfParade,
Dan Boeckner,
var gríðarlega
ánægður með
kvöldið og ekki síður íslensku
áhorfendurna en þetta var í
fyrsta sinn sem hljómsveitin
steig fæti á íslenska grund.
Fær drauminn uppfylltan
Blaðamannafélag íslands og Fé-
lag fréttamanna halda svokallað
pressukvöld á Thorvaldsen í kvöld
klukkan 20 og þar verður rætt
um stöðu kvenna sem starfa í
fjölmiðlum.
Guðrún Helga Sigurðardóttir blaða-
maður skipulagði kvöldið ásamt fleiri
góðum konum. „Ég var búin að ganga
lengi með þann draum í maganum
að fjölmiðlakonur myndu hittast og
ræða saman um þetta málefni sem
og önnur. Þetta var líka haldið í fyrra
og ég nefndi það við Örnu Schram,
formann Blaðamannafélags íslands,
að mig langaði til að halda þessu
áfram. Hún tók vel í það og stakk upp
á að halda pressukvöldið 24. október,
á kvennafrídeginum sjálfum. Við
fengum því Björgu Evu Erlendsdóttur,
formann Félags fréttamanna, og Svan-
borgu Sigmarsdóttur blaðamann til
að skipuleggja þetta með mér.“
Liður í þjóðfélagsumræðu
Katrín Pálsdóttir, fréttamaður
á Ríkisútvarpinu, Herdís Þorgeirs-
dóttir prófessor og Hjördís Finn-
bogadóttir, starfsmaður umboðs-
manns Alþingis, munu halda stutt
erindi á pressukvöldinu.
„Þetta eru allt rosalega klárar og
flinkar konur. Herdís hefur staðið
fyrir tengslaneti kvenna á Bifröst,
er gamall blaðamaður og hefur því
skemmtilega sýn á blaðamennsku.
Katrin gerði viðamikla rannsókn
og ritgerð um fjölmiðlaheiminn
og við báðum hana að einblína á
konur og stöðu fjölmiðlakvenna.
Hjördís er fyrrverandi fréttamaður
og hefur því reynsluna úr þessum
heimi,“ segir Guðrún Helga og
bætir við að hún telji að það sé
ekkert einfalt svar til við því hver
staða fjölmiðlakvenna sé. „Mér
finnst mjög áríðandi og gott að fjöl-
miðlakonur komi saman og ræði
málið. Það skiptir miklu máli enda
er þetta liður í þjóðfélagsumræðu
og eitthvað sem skiptir okkur fjöl-
miðlakonur máli.“
Margt breyst í blaðamennsku
Guðrún Helga segist vonast til
að sjá karlmenn á pressukvöldinu.
„Þetta er opinn fundur og vonandi
koma sem flestir. Það þarf ekki endi-
lega að vera fólk í fjölmiðlaheim-
inum heldur- fólk sem hefur áhuga
á þessu umræðuefni," segir Guðrún
Helga sem byrjaði í blaðamennsku
sumarið 1984. „Það hefur rosalega
margt breyst í blaðamennsku á
þessum tíma. Fjölmiðlaumhverfið
í dag er allt öðruvísi, fjölmiðlarnir
sjálfir og starfsaðstæður blaða-
manna eru allt aðrar. 1 dag höfum
við tölvur en þá notaði ég gamla,
slitna ritvél sem vantaði takkana
á þannig að ég ýtti alltaf á járnin
þegar ég skrifaði. Fjölmiðlar hafa
breyst rosalega mikið og að mörgu
leyti til hins betra. Það er hins vegar
alltaf hægt að halda áfram, velta
hlutunum fyrir sér og spyrja spurn-
inga til að gera gott betra.“
svanhvit@bladid. net
SU DOKU talnaþraut
JL 4 2 8 6 3 5 9 7 Lausn síðustu gátu: Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt I reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri Ifnu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
5 6 7 4 2 9 1 8 3
9 8 3 1 5 7 6 2 4
2 9 5 6 1 4 3 7 8
6 7 8 2 3 5 4 1 9
3 1 4 7 9 8 2 5 6
4 Jj 6 9 8 1 7 3 2
7 9 5 4 2 8 6 1
8 2 1 Jj 7 6 9 4 5
*
Gáta dagsins:
4 1 7
5 7 8 6
1 9 7 3 4
2 6 5 3
1 7
1 4
5 8 9 1
9 2 6
4 8 6
eftir Jim Unger
Ef það væri ekki vegna mín og Frankie
greiddir þú miklu hærri skatta?
Á förnum vegi
Fórstu á
Airwaves?
Ema Jóhannesdóttir, nemi
Nei, ég fór ekki.
Tanja Dögg Guðjónsdóttir,
nemi Nei, það gerði ég ekki.
Andri Þór Bjarnason,
afgreiðslumaður
Nei, ég komst ekki.
Hákon Freyr Friðriksson,
afgreiðslumaður Já, ég fór
og sá þetta næstum allt saman.
Fimmtudagurinn stóð upp úr því
það vóru flottustu hljómsveitirn-
ar þá.
Árni Guðbergur Ingimarsson,
nemi Nei, ég var ekki á landinu.