blaðið - 24.10.2006, Page 24
blaðtd
IGUR 24. OKTÓBER 2006
Stuttverkasamkeppni
Frestur ti! að skila verki í Stuttverkasamkeppni Leiklistarvefsins rennur út á mið-
nætti fimmtudaginn 26. október. Engin skilyrði eru um efni eða form verkanna
nema að þau mega ekki vera lengri en 800 orð að lengd og ekki hafa verið sýnd
eða birt áður. Nánari upplýsingar má nálgast á Leiklistarvefnum leiklist.is.
Slavek The Shit verðlaunuð
Stuttmyndin Slavek The Shit í leikstjórn Gríms Hákonarsonar hlaut Sil-
ver Hugo-verðlaunin á Kvikmyndahátíðinni í Chicago sem lauk á föstu-
dag. Önnur íslensk kvikmynd, Blóðbönd eftir Árna Ólaf Ásgeirsson,
I var einnig f einni af keppnisdagskrám hátiðarinnar.
Sagnfræðiátök
Árni Daníel Júlíusson sagnfræð-
ingur heldur erindi í hádegis-
fundaröð Sagnfræðingafélags
íslands í fyrirlestrasal Þjóðminja-
safns íslands í dag milli klukkan
12 til 13.
Erindi Árna Daníels heitir Hin þrjú
andlit Klíó: Átökin í sagnfræðinni,
og í því mun hann fjalla um tvær
tegundir sagnfræði sem báðar
gera kröfu til þess að teljast vís-
indaleg sagnfræði en hvor á sinn
hátt. Þetta eru empírísk saga
og félagsvís-
indaleg saga.
Einnig verður
fjallað um
tengsl þriðju
tegundar
sagnfræði,
póstmódern
sagnfræði,
við þessi tvö
eldri viðmið.
Póstmódernisminn hafnar hug-
tökum eins og vísindum, skyn-
semi, framförum og tengslum
texta og raunveruleikans.
í erindinu verður fjallað um
hvernig þetta nýja viðmið hefur
stóreflt sagnfræðilega umræðu
og blásið nýju lífi í greinina, þótt
sagnfræðin hafi í raun hafnað
hinum fræðilegu forsendum
þess.
Árni Daníel Júlíusson er doktor í
sagnfræði frá Kaupmannahafnar-
háskóla.
Hann vinnur nú að ritun ís-
lenskrar landbúnaðarsögu.
24 hönnuðir á 240 mínútum
lls 24 af áhugaverðustu
hönnuðum landsins
kynna verk sín í tíu mín-
útur á hönnunarmara-
þoni 28. október milli
klukkan 13 og 18 í Listasafni Reykja-
víkur, Hafnarhúsi. Samhliða hönn-
unarmaraþoninu verður opnuð sýn-
ing þar sem nemendur Háskólans í
Reykjavík og Listaháskóla Islands
kynna afrakstur sameiginlegs verk-
efnis um íslenska hönnun.
Nemendur skólanna tveggja
hafa undanfarnar vikur unnið að
þrettán mismunandi verkefnum
sem snúa að grafískri hönnun, vöru-
hönnun, fatahönnun og arkitektúr.
Markmið verkefnanna er að kynna
viðskiptahugmyndir sem lýsa spenn-
andi tækifærum þar sem sérkenni ís-
lenskrar hönnunar eru dregin fram.
Sýningin verður svo flutt í hús-
næði Marels í Garðabænum eftir
laugardaginn næstkomandi og verð-
ur opin almenningi þar.
Verkefni nemendanna eru mis-
jöfn að inntaki, allt frá því að skipu-
leggja atburðinn og sýninguna
sjálfa, til þess að vinna sértæk verk-
efni sem snúa beint að viðfangsefni
hvers sviðs í hönnunarnámi Lista-
háskóla íslands í samvinnu við nem-
endur í Háskólanum í Reykjavík.
Með samvinnu skólanna tveggja
eru tengsl viðskipta- og hönnunar-
lífs styrkt.
SPOTT
Undir flokknum vöruhönnun
unnu nemar í þrívíðri hönnun og
nemendur við viðskiptadeild Há-
skólans í Reykjavík að því verkefni
að finna leiðir til að kynna og mark-
aðssetja íslenska hönnun. I kring-
um það verkefni var stofnað fyrir-
tæki sem hlaut nafnið SPOTT, sem
þýðir glens eða grín.
„Nafnið er einnig tilvísun í enska
orðið spot, að „spotta” eitthvað út,“
segir Kristín Birna Bjarnadóttir, ein
úr hópnum. „Við völdum þá leið að
nýta okkur heimakynningu sem
markaðssetningu á vörunum ásamt
því að skapa ímynd í kringum fyr-
irtækið svo sem heimasíðu og útlit.
Okkur fannst sem heimakynning
væri skemmtileg og öðruvísi leið
til að ná til fólks. Markmið okkar
fyrirtækis, SPOTT, er að fara með
íslenska hönnun inn á íslensk heim-
ili. Að auka meðvitund almennings
og umræður um íslenska hönnun.
Við viljum sýna fram á að við get-
um framleitt og selt hugmyndir
okkar ekki síður en aðrar þjóðir og
reynsla okkar er sú að fólk veit ekki
af þessum íslensku vörum sem þó
eru framleiddar sem íslensk vöru-
hönnun,” segir Kristín Birna. „Við
erum fimm í hópnum, Friðgerður
Guðmundsdóttir, Ragnheiður Mar-
geirsdóttir og Kristín Birna Bjarna-
dóttir sem erum nemar í þrívíðri
hönnun í LHÍ og Elva Guðrún
Guðjónsdóttir og Martina Contolin
koma til liðs við okkur frá Háskólan-
um í Reykjavík.“
AUOVELDfbRIFÚM
bíLJÖÐElNANGRANDI
TEPPI A STIGAGANGINN
GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA
Stepp ehf. | Ármúla 32 |
itepp@stepp.i:
www.
Kom, sá og sigraði Silvía Nótt
sigraði eltirminniiega í forkeppni
Söngvakeppni Sjónvarpsins í vor.
Leitin að smellinum
íslenskir lagahöfundar og texta-
smiðir hafa nú ærna ástæðu til að
veita sköpunargleðinni útrás því að
auglýst hefur verið eftir lögum til
þátttöku í Söngvakeppni Sjónvarps-
ins 2007. Fyrirtækið BaseCamp
auglýsir eftir lögum fyrir hönd Rík-
isútvarpsins-Sjónvarps og þurfa
þau að berast til BaseCamp, Nethyl
2a, 110 Reykjavikeigi síðar en á mið-
nætti 16. nóvember. Einnig er hægt
að afhenda framlög í móttöku Rík-
isútvarpsins í Efstaleiti.
Alls verða 24 lög valin í forkeppni
Söngvakeppni Sjónvarpsins. Þrjár
undankeppnir verða haldnar og
síðan ein aðalkeppni.
Með svipuðu sniði og í fyrra
Óvenjumikið var lagt í keppn-
ina síðast enda tuttugu ár liðin frá
því að íslendingar tóku fyrst þátt
í henni. Að sögn Rafns Rafnsson-
ar, framkvæmdastjóra BaseCamp,
verður keppnin með svipuðu sniði
að þessu sinni.
„Við teljum að þetta hafi gengið
mjög vel í fyrra og ég myndi telja
að það væri meiri áhugi á henni en
var þá,“ segir Rafn og bætir við að í
fyrra hafi borist á milli tvö og þrjú
hundruð lög í forvalið.
„Maður býst við að það verði eitt-
hvað svipað í ár ef ekki meira,“ seg-
ir Rafn þannig að það má búast við
þvi að valnefndar bíði ærinn starfi
við að velja 24 lög úr bunkanum.
Þrjú lög á mann
Lagið má ekki vera lengra en
þrjár mínútur og getur hver höf-
undur sent inn þrjú lög.
Innsend lög og textar skulu vera
ný og áður óútgefin verk og mega
vera allt að þrjár mínútur að lengd
hið mesta. Hvorki lag né texti má
undir nokkrum kringumstæð-
um hafa komið út á einka- eða
markaðshljóðriti, þar með talið á
hljómplötu, kassettu, geisladiski,
myndbandi, eða annars konar út-
gáfuformi, í kvikmynd eða neinu
öðru formi.
Nánari upplýsingar, þátttöku-
eyðublað og reglur keppninnar má
nálgast á heimsíðu Ríkisútvarpsins
ruv.is/songvakeppnin og á heima-
síðu BaseCamp basecamp.is.