blaðið - 24.10.2006, Qupperneq 25
ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2006 37
Ágúst Borgþór Sverrisson rithöfundur les úr verkum sínum á Skáldspírukvöldi í
bókaversluninni löu í Lækjargötu í kvöld klukkan 20. Aögangur að upplestrinum er
ókeypis og eru allir velkomnir.
Sigurður Halldórsson sellóleikari, Pamela De Sensi flautu-
leikari og Daníel Þorsteinsson píanóleikari halda tónleika í
Salnum í Kópavogi á morgun, miðvikudag, klukkan 20. Á efn-
isskránni eru seiðandi verk frá Suður-Ameríku eftir Heitor
Villa-Lobos, Astor Piazzolla og Alberto Ginastera.
10 mínútur með Sól
Sól Hrafnsdóttir er einn þeirra
hönnuða sem valdir voru sem
áhugaverðir hönnuðir á íslandi til
að kynna verk sín á hönnunarm-
araþoni. Sól útskrifaðist frá Listahá-
skóla Islands síðasta vor og vinnur
nú á hönnunarstofu Atla Hilmars-
sonar.
„Ég tók að mér nokkur verkefni
meðan ég var enn í námi. I sumar
vann ég í lausamennsku og nú vinn
ég á stofunni hjá Atla.” Sól segir
námið góðan undirbúning fyrir
starf og að henni finnist alltaf gam-
an og krefjandi að koma að nýju
verkefni. „Það er einstaklingsbund-
ið hvernig fólk kemur að hverju því
verkefni sem það tekur að sér,” segir
hún. „Mér finnst alltaf krefjandi að
gera mitt besta úr því sem verkefn-
ið býður upp á, sumir þrá alltaf að
hafa frjálsar hendur meðan starfið
býður ekki alltaf upp á það en það er
alltaf hægt að finna á því lausn.
Mér fannst sérstaklega skemmti-
legt að koma að því að hanna útlit
fyrir Norræna músíkdaga sem
haldnir voru nú nýverið, segir Sól
aðspurð um þau verkefni sem hún
hefur komið að. „Við vorum þrjú
saman sem komum að verkefninu,
ég, Hörður Lárusson og Sigurður
Orri Þórhannesson og mér fannst
verkefnið takast vel í góðri sam-
vinnu. Til að mynda bjuggum við til
nýtt letur sem við unnum úr höfða-
letri sem er gamalt íslenskt skreyti-
letur. ”
dista@bladid.net
Kynning á
leiklistarmeðferð
Sigríður Birna Valsdóttir leiklist-
armeðferðarfræðingur heldur
fyrirlestur og kynningu á leiklistar-
meðferð á morgun klukkan 20 að
Lindargötu 3. Fræðsludeild Þjóðleik-
hússins og Félag um leiklist í skóla-
starfi (FLÍSS) standa að kvöldinu.
Sigríður Birna er menntaður kenn-
ari frá Kennaraháskóla (slands og
er með meistaragráðu í leiklistar-
meðferð frá New York-háskóla. Hún
hefur kennt leiklist við Hagaskóla
undanfarin þrjú ár og sinnt nem-
endum með tilfinningaleg og/eða
félagsleg vandamál.
Fræðslukvöldið er það fyrsta af
fimm fræðslukvöldum sem haldin
verða einu sinni (mánuði í allan
vetur. Á hverju kvöldi miðla kenn-
arar eða starfandi leikhúslistamenn
af reynslu sinni og vinnubrögðum.
„Tilgangurinn er að hóa saman kenn-
urum og leikurum sem hafa áhuga
á að nota leiklist meira í skólunum,“
segir Ólafur Guðmundsson leikari
sem heldur utan um fræðslukvöldin.
Ólafur segir að áhugi á notkun
leiklistar við kennslu hafi aukist
undanfarin ár.
„Skólarnir hafa möguleika á að nota
þetta fag bæði sem sjálfstæða
grein og líka sem kennsluaðferð í
öðrum greinum. Það er auðvelt að
tengja þetta við alls konar fög svo
sem tungumálakennslu og íslensku-
kennslu," segir Ólafur.
Píramídi ástar og kærleika
Snorri Asmundsson myndlistar-
maður hefur smíðað fallegan pír-
amída úr plexigleri sem hann kallar
„Pyramid of Love“ eða píramída ást-
arinnar.
Þar inni dvelur myndlistarmað-
urinn í lótusstellingunni og biður
um ást og kærleika öllum til handa.
I síðustu viku dvaldi Snorri í píram-
ídanum á þremur stöðum í miðborg-
inni, fyrir framan Nýlistasafnið á
Laugavegi, á Lækjartorgi og á horni
Laugavegar og Bankastrætis.
I tilkynningu frá listamanninum
segir að áhorfendur og vegfarend-
ur hafi fundið fyrir undursamlegri
orku sem stafaði frá píramídanum.
Þeir sem misstu af gjörningnum
í síðustu viku fá tækifæri
til að bæta úr því í dag
og á fimmtudag. I
kvöld klukkan 18
mun Snorri end-
urtaka leik-
inn fyrir
framan
Perluna
í Öskjuhlíð. Tildrög uppátækisins
má rekja til þess að Snorri sem ný-
verið varð fyrir andlegri vakn-
ingu fannst vanta fallega og
góða orku yfir Reykjavík
þar sem vond ára borg-
arinnar væri oft yf-
irsterkari þeirri
góðu.
Viö þurfum stjórnmálamenn sem vilja efla menntun
í landinu. Illugi hefur þann metnað og framtíöarsýn
sem til þarf.
Þórólfur Þórlindsson,
prófessor.
Þaö er mjög mikilvægt fyrir Sjálfstæöisflokkinn
að forystusveit hans sé skipuö einstaklingum
sem hafa djúpan skilning og viðamikla þekkingu
á efnahagsmálum þjóðarinnar. Menntun og
reynsla llluga á þessu sviöi á eftir aö reynast
Sjálfstæðisflokknum dýrmæt á næstu árum.
Ég treysti llluga mjög vel og hvet alla Sjálfstæðismenn
eindregiö til aö kjósa hann í 3. sætið í prófkjörinu.
Ólafur Davíösson, hagfræöingur
og fyrrverandi ráöuneytisstjóri
í forsætisráöuneytinu.
Framtíðarmann
í forystu!
Ný verkefni • Nyjar áherslur • llluga í 3. sæti
Prófkjör okkar sjálfstæðismanna í Reykjavík er 27. og 28. október 2006. WWW.illugi.is