blaðið - 24.10.2006, Page 26
3 8 ÞRIÐJUDAGUR 24. 0KTÓBER 2006 n blaöiö
J L :
ferðir ferdir@bladid.net Oftar gist á hótelum Gistinætur á hótelum í ágúst siö- astliðnum voru 162.900 en voru 154.100 i sama mánuði árið 2005, sem er 5,7 prósenta aukning. Gisti- nóttum fjölgaði í öllum landshlutum. menntun menntun@bladid.net
Brúðkaupsferðalagið
Að gifta sig í Vegas
Aldursbil milli
nemenda brúað
vinsælla er að sameina
brúðkaupsferðalagið
og athöfnina sjálfa með
því að gifta sig utan
landsteinanna. Vinsæll áfangastað-
ur er Las Vegas í Nevada-fylki, enda
er Nevada-fylki frægt fyrir frjálslega
lagasetningu um giftingu og skilnað
þar sem mikil menning blómstrar í
kringum brúðkaup.
Það er um margt að velja þegar
stendur til að gifta sig í Las Vegas.
Allt frá afar einfaldri borgaralegri
athöfn til stórfenglegs, rómantísks
brúðkaups, þemabrúðkaups í Star
Wars-uppskrift, brúðkaups utandyra
eða sveimandi í þyrlu yfir ljósum
prýddri Las Vegas.
EINFÖLD ATHÖFN
Einfaldasta leiðin til að gifta sig er
að hafa stutta athöfn hjá sýslu-
manni Las Vegas. Athöfnin tekur
aðeins hálftíma og kostar um 50
dollara eða um 3.500 krónur.
KAPELLUR
Það úir og grúir af giftingarkapellur
í Las Vegas enda eru þær hluti
af þeirri menningu sem staður-
inn hefur upp á að bjóða. Fyrir
mörgum árum skapaðist þessi
mikla hefð fyrir giftingum vegna
frjálslegra laga um giftingu og
skilnað í Nevada-fylki.
AKTU TAKTU BRÚÐKAUP
Finna má verulega fallegar kapellur
í Las Vegas. Gjaldið er vanalega
frá 200 dollurum til 500 dollara eða
. um 35.000 krónur og þá er innifalin
notkun á kapellu, giftingarathöfnin
sjálf, blóm, tónlist og myndataka.
Þá er hægt að bæta við upplifunina
með því að ráða Elvis-eftirhermu í
athöfnina og margt fleira. Nokkrar
kapellur í Las Vegas sérhæfa sig í
bílalúgubrúðkaupum þar sem brúð-
hjónin aka hreinlega að bílalúgu til
að láta gefa sig saman.
HÓTELKAPELLUR
Flest hótel hafa að minnsta kosti
yfir einni kapellu að ráða. Mörg
þeirra hafa margar kapellur í
mismunandi stærð og með ýmiss
konar þemum.
Þemabrúðkaup eru vinsæl í hótel-
kapellunum. Hótel Excalibur býður
upp á miðaldabrúðkaup, MGM
Grand-hótel upp á hjólaskautabrúð-
kaup, Treasure Island sjóræningja-
brúðkaup um borð í skipi og HMS
Brittania og Las Vegas Hilton bjóða
jafnvel upp á Star Trek-brúðkaup
um borð í eftirlíkingu af geimskipinu
Enterprise með Klingon sem vrtni og
Ferenga sem gesti í brúðkaupinu.
Hótelbrúðkaup kosta frá 350 doll-
urum upp í 3500 dollara og meira,
rúmar 240.000 krónur. Pakkarnir
innihalda oft eina eða fleiri nætur í
brúðkaupssvítu á hótelinu, myndir,
blóm, tónlist, skemmtun og snyrt-
ingu og förðun fyrir brúðina.
FRÆGIR í VEGAS
Um 60.000 hjón gifta sig ár hvert
í Las Vegas og hefðin teygir sig
langt aftur í tímann. Hollywood-
stjörnur voru meðal þeirra sem
flykktust til Nevada og margar
þeirra komu aftur og aftur ýmist til
að skilja eða gifta sig með hraði..
• l.rnaí 1967 giftust þau Elvis
Presley, 32. ára, og Priscilla Anne
Beaulieu, 21 árs, á
• Milton Prell's Aladdin-hótelinu.
Þau giftu sig í kyrrlátri athöfn í svítu
hótelsins klukkan níu um kvöld. Fá-
menn athöfn var haldin á hótelinu
stuttu eftir brúðkaupið. Aðeins um
100 manns voru viðstaddir hana og
flestir voru vinir og ættingjar.
• Judy Garland giftist Mark
Herron árið 1965 en hún dó aðeins
fjórum árum seinna. Kirk Douglas
giftist Ann Buydens á Sahara-hótel-
inu, þau eru enn gift.
• Mickey Rooney var einn sá
alræmdasti en hann giftist alls 7
sinnum í Las Vegas á árunum 1944
til 1978 og alltaf í sömu kirkjunni,
Little Church of the West.
dista@bladid.net
r
Ártúnsskóla er bilið milli ólíkra
aldurshópa brúað með svo köll-
uðu Skólavinaverkefni en það
gengur út á það að elstu nemend-
urnir (12 ára) eru þeim yngri innan
handar, ræða við þá og taka þátt í
leikjum þeirra svo nokkuð sé nefnt.
„Þeir vinna með yngstu nemendun-
um á leiksvæðum þeirra í frímínút-
um, aðstoða þá við að komast út og
safnast saman við anddyrið þegar
frímínútur eru búnar. Þá aðstoða
þeir þá oft inni í matsal,“ segir Ellert
Borgar Þorvaldsson, skólastjóri Ár-
túnsskóla.
Ábyrgðarhlutverk
Þrír til fjórir nemendur eru skóla-
vinir viku í senn og vinna saman
í hópi. „Þeir fylla út gátlista fyrir
hvern dag vikunnar og í hverri viku
gera þeir grein fyrir á fundi með að-
stoðarskólastjóra hvað þeir voru að
gera, hvort þeir voru að leika með
krökkunum, ræða við þá, leysa ein-
hvern vanda sem upp kom eða eitt-
hvað annað," segir Ellert Borgar.
„Tilgangurinn með þessu er nátt-
úrlega fyrst og fremst sá að eyða bili
milli þeirra sem eru elstir í skólan-
um og þeirra sem yngstir eru. Þetta
skapar þessi vingjarnlegu tengsl sem
þurfa að vera á milli allra aldurshópa.
Ekki síst erum við að leggja upp með
ábyrgðarþátt þeirra sem eldri eru og
12 ára nemendur rækja þetta ábyrgð-
arhlutverk sitt með mikilli prýði og
færast alls ekki undan því,“ segir Ell-
ert Borgar.
Upphafið hjá Regnbogabörnum
Skólavinaverkefnið hefur verið í
gangi í Ártúnsskóla í þrjú ár og seg-
ir Ellert Borgar að upphaf þess megi
rekja til átaks sem Regnbogabörn
stóðu að á sínum tíma. „Það var fyrst
og fremst miðað við tíundu bekkinga
og að þeir hefðu þær skyldur innan
skólans að líta til með yngri félögum.
Við aðlöguðum kerfið að okkar
elstu nemendum sem eru 12 ára og
tókum upp okkar aðferðir sem hafa
gefið mjög góða raun,“ segir Ellert
Borgar Þorvaldsson að lokum.
Ef við eigum það ekki til þá bara búum við það til!
f/q?j7frriTT: WflBeéjtél B
%í! 564 0950
PUSTÞJONUSTA
Smiðjuvegur 50, Kóp., sími: 564 0950
Setjum
i allar geróir bíla
Endurskoðun grunnskólalaga Áhugafólk um skóla-
mál fær tækifæri til að kynna sér endurskoðun grunn-
skólalaga og taka þátt íhópastarfi á málþingi um
endurskoðun grunnskólalaga ílok næsta mánaðar.
\ \
Framtíðarsýn
grunnskólans
Menntamálaráðuneytið heldur
málþing um framtíðarsýn í málefn-
um grunnskólans og ný grunnskóla-
lög á Hóteli Nordica laugardaginn
25. nóvember næstkomandi klukk-
an 9.30 til 13.
Málþingið er haldið í tengslum
við heildarendurskoðun á grunn-
skólalögum og er liður í víðtæku
samráði um ný grunnskólalög til
að ná sem bestri samstöðu um fram-
tíðarsýn í málefnum grunnskólans
og leiðarljós nýrra grunnskólalaga.
Málþingið er öllum opið og þátt-
takendum að kostnaðarlausu. Þeir
sem hyggjast taka þátt í þvi eru
beðnir um að skrá sig hjá congress.
is. Þangað er einnig hægt að beina
fyrirspurnum vegna þingsins.
Málþingið er aðallega ætlað full-
trúum frá sveitarfélögum, skóla-
stjórum, kennurum, foreldrum
og ýmsum hagsmunaaðilum sem
koma að málefnum grunnskólans
og öðru áhugafólki um skólamál.
Á málþinginu verður staðan
í endurskoðun grunnskólalaga
kynnt og síðan verður rætt í hóp-
um um nokkur helstu álitamálin í
tengslum við endurskoðun grunn-
skólalaga og lögð áhersla á virkni
þátttakenda.