blaðið - 24.10.2006, Side 30
42 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2006
blaðið
Fyrrverandi kryddpían Victoria Beckham ætlar nú að koma
með nýtt gallabuxnamerki. Hún er hætt að hanna fyrir hið
vínsæla Rock and Republic-merki. Það gekk mjög vel hjá
tísku-poppskvísunni að hasla sér völl í tískubransanum og
núna hefur hún trú á því að hennar eigið merki muni verða
jafnvel enn vinsælla en Rock and Republic.
Spólað til baka...
Hvað fannst þér
um Airwaves?
„Mér fannst hátíðin frábær í
einu orði sagt. Það var fullt af
efnilegum tónlistarmönnum og
skemmtilegum hljómsveitum á
Airwaves þetta árið,“ segir Helgi
Valur trúbador.
„Það var mjög gaman að fylgjast
með flestum hljómsveitunum því
þær voru mjög skemmtilegar og
einstaklega athyglisverðar þetta
árið. Ég fór að sjá mjög margt
og meðal þess sem mér fannst
skemmtilegast var Benny Cres-
po’s Gang, Wulfgang, Jan Mayen,
Hölt hóra og Lay Low. Það sem
kom mér eiginlega mest á óvart
var hversu góð íslensku böndin
voru. Þau voru áberandi betri en
margt annað á hátíðinni,“ segir
Helgi Valur.
„Hátíðin í heild sinni var mjög vel
heppnuð. Það var ekki mikið af
hljómsveitum sem maður þekkti
og það er oft á tíðum mjög gott.
Tónleikahaldarar eru greinilega
komnir uþþ á lagið með að velja
góðar hljómsveitir þó þær séu
ekki þekktar. Mér fannst hátíðin
eiginlega betri en í fyrra því hljóm-
sveitirnar voru betri og tónleikar
fleiri. Það voru líka mun minni
raðir en í fyrra og það er mjög til
bóta,“ segir Helgi Valur.
„Ég var sjálfur að spila í Þjóðleik-
húskjallaranum á fimmtudeginum
og það gekk mjög vel. Stemn-
ingin var góð og fólk tók vel í tón-
listina mína. Þegar ég var búinn
að spila fór ég svo í nokkur viðtöl
og náði mér í sambönd sem er
mikilvægur þáttur í svona hátíð,“
segir Helgi.
„Það má alltaf deila um fjölmiðla-
umfjöllunina sem svona hátíð fær.
Ég fékk góða gagnrýni og það
er náttúrlega mjög gaman að
blað eins og Rolling Stone komi
og taki þátt í þessu með okkur.
Það virkaði samt eins og sumir
gagnrýnendanna komi bara til
þess að detta í það og fá fría
ferð til íslands,“ segir Helgi Valur
trúbador.
V.
kristin@bladid. net^
Athugasemd
Síðasta laugardag var glæsi-
legur tískuþáttur í Orðlaus en
því miður gleymdist að geta
þess að Anna á Gel sá um
hárið á módelinu.
» Handbók um heimili mitt
Sveitarstjórinn
M i” " i ft W
Samfélag og menning:
Samfélagið er gríðarlega fjölbreytt og sterkt og einkennist helst
af áhuga á fornbókmenntum, fornum íslenskum mat og fornum
einstaklingum. Menningin einkennist af arfaslökum píanóleik,
fölskum sturtusöng og fyrrgreindum skottísdansi.
nc
N
Vert að sjá:
Góður gestur getur ekki látið hjá
líða að skoða köldu kartöflugeymsl-
una undir útidyratröppunum. Slíkar
geymslur voru ómissandi hluti af
daglegum heimilisrekstri í den tid.
Nú er stefnan að hafa geymsluna
til sýnis sem safngrip enda kann
húsmóðirin ekkert til verka i kart-
öfiurækt og geymslan helst notuð
til kælingar á veisludrykkjum þegar
v húsið fyllist af gestum.
Næturlff:
Næturlífið á Hlíðarveginum snýst um
svefn og baráttu um pláss. I húsinu býr
lítill drengur sem getur tekið ótrúlega
mikið piáss miðað við stærð og ummál.
Hinir hæfustu lifa af og fá hlutfallslega
meiri svefn en hinir íbúarnir. Oftast tapa
ég baráttunni um plássið.
Hvað þarf að hafa með í för:
Gestir þurfa að taka með sér sæng og
kodda því oft eru margir gestir í nætur-
gistingu og sumir hafa farið flatt á því að
hafa ekkert annað sér til næturvarma en
hálft baðhandklæði. Ekki þarf að taka
með sér mat því kistan er full af heimatil-
búnu slátri og flatkökum og ísskápurinn
troðinn af rifsberjasultu.
v.
Hættur:
Það er viðsjárvert að rölta mikið um
lóðina því hún er gríðarlega stór og þú
gætir týnst á leiðinni. Þá er algerlega
óskilgreint hvaða dýr þrifast í frum-
skóginum framan við húsið. Innandyra
ber helst að gæta sín á pólitískum
áróðri sem alltaf er skammt undan.
Matur og menning:
Hafragrautur í morgunmat, slátur og skyr í há-
deginu. Vatn og undanrenna til drykkjar. Til
hátíðabrigða er íslenskt lambakjöt með rifs-
berjasultu eða gæs með rifsberjasultu. Stund-
um nautakjöt með rifsberjasultu.
Staösetning:
Húsið mitt er frábærlega vel stað-
sett, gegnt leikskólanum ogá
ská við skrifstofu sveitarfélags-
ins. Sveitarstjórinn þarf þvi ekki
að vera á bíl, nema hann þurfi
að fara á fund... sem er reynd-
ar oft. Húsið er algerlega falið í
þykkum trjágróðri sem reynist
gestum oft fjötur um fót og vill-
ast þeir því langtímum saman
um kauptúnið Hvolsvöll áður en
þeirfinna mig.
Dýralíf:
Dýralífið hefur tekið stórstígum
breytingum frá því við fengum
heimsókn frá manni með eitur í úða-
brúsa. Risastórar köngulær höfðu
tekið yfir húsið að utan og unnu að
því að láta það hverfa inn í einn risa-
stóran, fullþekjandi köngulóarvef.
Þá hefði húsið væntanlega að fullu
orðið ósýnilegt gestum og gangandi
og var gripið til örþrifaráða og hús-
V^tökuköngulónum útrýmt.
C\V
Hvenær er best að koma:
Besti tíminn er eiginlega ekki til því ég er aldrei
heima. Nema það sé kostur að heimsækja
húsráðandann sem ekki er heima
því bóndinn og barnið eru eflaust
skemmtilegri gestgjafar en
sveitarstjórinn og prófkjörs-
frambjóðandinn sem alltaf
er í símanum. Mæli með að
fólk kíki frekar á heima-
síðuna ef ætlunin er að
hitta á mig.
m
./
Stjórnarfar:
Á heimilinu ríkir jafnrétti og bræðralag og frelsi einstaklings-
ins er i hávegum haft. Reglan er sú að sá sem er heima,
hann ræður, sem er líklega ekki mjög hagstætt fyrir mig.
Þarf að endurskoða þetta stjórnarfar þegar ég hef tíma.
k/
en
J.
». __
® I
ISS
Heilsa:
Heilsan er gríðarlega góð enda hollt og gott
að anda að sér ferska loftinu á landsbyggð-
inni. Stöku sinnum bregður þó svo við að
slappleiki geri vart við sig á sunnudögum en
það er þó iöulega í þeim tilfellum þegar ég hef
brugðið mér í heimsókn til höfuðborgarinnar.
,\WxXN
\WX
Siðir og venjur:
I sveitinni er til siðs að
vera afskaplega kurteis
og klára matinn sinn. Þá
ber að borða saltfisk á
laugardögum og stunda
dans að minnsta kosti
einu sinni í viku hverri,
helst skottís.
Unnur Brá Konráðsdóttir
Sveitarstjóri í Rangárþingi eystra
Tíska götunnar
Það eru allir i gallabuxum þessa dagana og það er einhvern veginn
eins og þær detti aldrei úr tisku. Það koma alltaf ný og ný snið sem
eru flott og það geta allir fengið gallabuxur við sitt hæfi. Hvernig
gallabuxum gengur fólkið í og hvar kaupir maður fiottar buxur?
Birkir Vagn Ómars-
son, 24 ára: Ég er
í Levi's en ég keypti
þær einmitt f Banda-
ríkjunum.
Eric Davis, 21 ára:
Þetta eru Guess-bux-
urnar mína og ég fékk
þær i Bandarfkjunum.
Ásta Dögg Jóhann-
esdóttir, 25 ára; Ég
keypti þessar í Centr-
um og þær eru Lee.
Eyjólfur Bjarnason,
22 ára: Ég keypti
mfnar buxur i Deres en
þær eru Diesel.
Sesselja Siguröar-
dóttir, 33 ára: Þetta
eru Diesel-buxur og þá
hlýt ég að hafa keypt
þær í Deres.
SvanurJónsson,
44 ára: Ég keypti bux-
urnar mínar í Jack og
Jones og þá hljóta þær
að vera frá þvi merki.