blaðið - 25.10.2006, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2006
blaðið
UTAN UR HEIMI
Gula fljótið rautt
Kínversk stjórnvöld hafa sektað kínverskt fyrirtæki
fyrir að hleypa lituðu vatni í Gula fljótið. Með þessu
breyttist litur fljótsins á um kílómetra löngu svæði.
Verið er að kanna hvort efnin séu eitruð en fljótið er
uppspretta drykkjarvatns tuga milljóna manna.
■II
I hættu vegna slæðuummæla
Daniela Santanche, hægrisinnaður þingmaður á
ftalíu, hefur fengið lögregluvernd eftir að hafa sagt
að ekkert í Kóraninum skipaði konum að ganga með
slæður. íslamskur bænaprestur kallar Danielu heið-
ingja og óttast nú margir um öryggi þingmannsins.
mmm
Gætu haldið tilraunum áfram
Fréttir um að stjórnvöld í Norður-Kóreu hefðu beðist
afsökunar á kjarnorkusprengingu eru misvísandi og engin
trygging fyrir því að þau hætti tilraunum. Kínverskur sendi-
maður hefur haft eftir Kim Jong-ll, forseta Norður-Kóreu,
að stjórnin iðrist sprengingarnar og geri ekki fleiri tilraunir.
Islensk heimili:
Skulda 670
milljarða
Skuldir heimila við bankakerf-
ið hafa aukist um 130 milljarða
eða tæp 25 prósent frá áramótum
samkvæmt frétt Greiningar Glitn-
is banka. Heildarskuldir námu
670 milljörðum í lok september.
Um 75 prósent af skuldum
heimilanna eru í formi verð-
tryggðra langtímalána og hafa
þessar skuldir hækkað töluvert
vegna hárrar verðbólgu undan-
farið. Þá hafa gengisbundnar
skuldir tvöfaldast frá áramót-
um og námu þær 56 milljörð-
um í lok síðasta mánaðar.
Bankinn spáir því að
aukin greiðslubyrði muni
draga úr neyslugetu almenn-
ings á næstu mánuðum
og innlendri eftirspurn.
Óvenjuleg viðbrögð ölvaðs ökumanns sem ók á hus:
Lést vera meðvitundarlaus
og blekkti lögreglumenn
■ Sóaði tíma lögreglu og sjúkraflutningamanna ■ Drukknir menn reyna að vinna tíma
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
„Við höfum séð margt en þetta er
alveg nýtt fyrir okkur,“ segir Guð-
brandur Sigurðsson, aðalvarðstjóri
umferðardeildar lögreglunnar í
Reykjavík. Maður á þrítugsaldri
sem keyrði á húsvegg gerði sér upp
meðvitundarleysi þegar lögreglan
kom á staðinn og leiddi það til
mikils umstangs fyrir lögreglu og
sjúkraflutningamenn.
Maðurinn var við akstur í aust-
urborginni í Reykjavík þegar hann
missti stjórn á bíl sem hann ók
og klessti á vegg. Þegar lögreglan
kom á staðinn var bíllinn nokkuð
Þetta er alveg nýtt
fyrir okkur
Guðbrandur Sigurðs-
son, aðalvarðstjóri
umferðardeildar
lögreglunnar
skemmdur og loftpúði hafði blásið
út þegar lögreglan kom á slysstað.
Maðurinn virtist meðvitundar-
laus en annað átti eftir að koma í
ljós. Ekki varð þó vart við áverka á
honum.
„Lögreglan sér náttúrlega enga
aðra leið en að koma manninum
undir læknishendur,“ segir Guð-
brandur. Lögreglan sá því til þess að
maðurinn væri fluttur á slysadeild
Borgarspítalans og virtist allan
þann tíma vera meðvitundarlaus.
Eftir að maðurinn kom á spítal-
ann kom í ljós að hann hafði gert sér
upp meðvitundarleysið, og það svo
vel að engan grunaði neitt. Þar að
auki fannst áfengislykt út úr mann-
inum og tók spítalinn tvær blóð-
prufur í stað einnar.
„Það kemur fyrir að menn reyni
að ýkja ástand sitt og þykist ölvaðri
en þeir eru,“ segir Guðbrandur. Það
munu drukknir menn gera svo
farið sé með þá í blóðprufu. Hug-
myndin er sú að kaupa sér tíma
A rangri hillu í lífinu Maður á þrítugs-
aldri lék sig meðvitundarlausan á slys-
stað og komst það ekki upp fyrr en
hann var kominn á spítala. Maðurinn
reyndist svo sannfærandi að haft var
á orði að hann ætti heima í leiklist.
þannig að áfengismagnið í blóði
þeirra minnki.
Atvikið er litið mjög alvarlegum
augum og þá sérstaklega fyrir að
sóa tíma sjúkraflutningamanna,
lögreglu og lækna. Þá mun það vera
ólöglegt að plata neyðarhjálparlið.
Alls voru 20 manns teknir ölvaðir
um síðustu helgi en einnig er tekið
hart á ökumönnum án öryggisbelta
og 14 ökumenn voru sektaðir vegna
þessa.
;
- llfe " I
How to Look Good Naked
■
Claire er tveggja barna móöir sem hefur ekki sæst viö líkama sinn eftir barnsburö.
Getur hún litiö vel út nakin? Fylgstu meö á SKJÁEINUM kl. 22.00 í kvöld.
SKJÁRE/WN næst í gegnum Skjáinn og Digítal ísland
0