blaðið


blaðið - 25.10.2006, Qupperneq 26

blaðið - 25.10.2006, Qupperneq 26
3 8 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2006 blaðiö Náttúran inn Það getur verið skemmtilegt að verða sér úti um eins og eina væna trjágrein úr garðinum og fara með inn fyrir veggi heimilisins. Trjágreinin getur þjónað hlutverki fataslár og einnig er hægt er að hengja Ijós á hana og stilla henni upp við vegg eða hengja í loft. Þetta er skemmtileg hugmynd fyrir barnaher- bergi og gefur þeim ævintýralegan blæ sem flest börn kunna að meta. heimili@bladid.net Yfirsýn yfir útgjöldin Með því að gera fjárhagsáætlun og halda heimilisbókhald fær maður betri yfirsýn yfir útgjöld heimilisins og þarf ekki að láta reikningana koma sér á óvart. neytendur neytendur@bladid.net Handverk og listmunir í Ráðhúsinu Forvitnileg sölusýning Handverk og Hönnun stendur í ár fyrir stórri sölusýningu á islensku handverki og listiðnaði þar sem kenna mun ýmissa grasa og eflaust hægt að finna eitt og annað skemmtilegt fyrir heimilið. „Þetta er í fyrsta skipti sem Handverk og Hönnun stendur fyrir sölusýningu eins og þessari," segir Sunneva Hafsteinsdóttir framkvæmdarstjóri Handverks og Hönnunar. Þetta eru mjög mikið nytjahlutir sem þarna eru til sölu og sýnis og hugmyndin er að fólk hitti manneskjurnar á bakvið hlutina, en handverksfólkið sér um að kynna sína framleiðslu sjálft. Sýningin er líka haldin til að auka skilning á handverki og listiðnaði og fólk getur spurt spurninga um verkin og vinnuna á bakvið þá, þannig að þetta verður mjög skemmtilegt og gefandi. Einnig er verið er að stytta leiðina á milli neytandans og framleiðandans en eins og við þekkjum það í dag þá er leiðin þar á milli oft mjög löng. Það er oft mikil vinna að baki hverjum hlut og gaman fyrir fólk að kynnast henni og eykur það einnig á virðingu fyrir hlutunum.” Sérstök valnefnd sá um að velja inn sextíu ólíka aðila til að sýna hlutina sína á sýningunni. Valnefndin hafði það að markmiði að úrvalið væri sem fjölbreyttast. Það sem verður til sýnis og sölu í Ráðhúsinu eru munir úr leðri og roði, skartgripir, glermunir, nytjahlutir úr leir, húsgögn, fjölbreyttar textílvöruru, hlutir úr hornum og beinum og fjölbreyttir trémunir. Ráðhúsið ætti að vera skemmtilegur viðkomustaður um helgina og eflaust hægt að finna ýmislegt í jólapakkana fyrir þá sem eru farnir að huga að jólum. Sýningin opnar klukkan 17.30 á fimmtudaginn 26. október og verður opin föstudag frá 12.00 til 19.00 og laugardag og sunnudag frá 12.00-18.00. loa@bladid.net Málaðar rendur í Marimekko í Marimekko á Laugaveginum er hægt að finna eitt og annað fallegt fyr- ir heimilið. Fyrirtækið er finnskt og var stofnað 1951. í upphafi sérhæfði fyrirtækið sig í textílframleiðslu en nú framleiðir fyrirtækið fatnað og eitt og annað fyrir heimilið þó að fal- legur textíll sé þar alltaf í fyrirrúmi. í haust býður Marimekko upp á nýja línu í ýmsum hlutum fyrir heimili eins og borðmottum, pottaleppum, ofnhönskum og púðaverum. Mynstr- ið sem prýðir nýju línuna kallast Piccolo og eru hlutirnir gerðir til að fagna fimmtíu ára afmæli mynsturs- ins. Mynstrið hefur hingað til aðeins verið notað á skyrtum sem kallast Jokapoika. Mynstrið er eins og það sé málað með pensli og sagan segir að það hafi orðið til þegar sonur kon- unnar sem stofnaði Marimekko hafi búið sér til grímubúning þar sem hann tók skyrtu föður síns og mál- aði á hana rendur með pensli. Blý og kadmíum i leirvörum Hætta á blýeitrun Vísbendingar eru um að leir- hlutir sem eru ríkulega lit- skreyttir geti gefið frá sér mikið magn af blýi, kadm- íum og öðrum þungmálmum. Af þeim sökum á fólk aldrei að nota leirvörur undir matvæli og drykki nema fullvíst sé að þær séu ætlaðar undir slíkt. Sérstaklega skal varast að nota leirhluti undir súr matvæli og drykki svo sem ávaxtagrauta, ávaxtasafa og vín. Þetta kemur fram í upplýsinga- riti um nýjar reglur sem ætíað er að snerta matvæli sem Umhverfisstofn- un hefur gefið út. Elín Guðmundsdóttir, forstöðu- maður matvælasviðs Umhverfis- stofnunar, segir að fólk geti litið eft- ir því hvort glas- og gaffalmerki sé á leirvörum en það er til marks um að varan sé hæf fyrir geymslu matvæla. Einnig gefa leiðbeiningar á umbúð- um yfirleitt til kynna hvort varan sé ætluð undir matvæli. Ekki ætlaðir undir matvæli Elín segir að framleiðendur og innflytjendur leirmuna hér á landi eigi að vera meðvitaðir um þetta og þekkja þær reglur sem gilda. Hætt- an felist frekar í því að fólk noti muni sem ekki eru ætlaðir fyrir matvæli undir þau. Það á meðal ann- ars við um muni sem það kaupir á ferðalögum erlendis. „Það á sérstaklega við um minja- gripi sem fólk kaupir og eru ekki endilega ætlaðir undir matvæli held- ur eru frekar hugsaðir sem skraut- gripir. Það notar þá undir matvæli án þess að gera sér grein fyrir hætt- unni,“ segir Elín. Glas og gaffall Þetta merki gefur til kynna að munur sé ætiaður fyrir matvæli. Blý getur haft skaðleg áhrif á taugakerfi og meltingarveg auk þess sem það getur leitt til blóðleys- is. Þeir sem eru viðkvæmastir fyrir blýi eru fóstur og lítil börn. Blýeitrun úr leirmunum „Ég er ekki viss um að fólk sé al- mennt meðvitað um hættuna og þess vegna erum við að reyna að koma þessu til skila," segir Elín. Hún þekkir ekki dæmi þess að þessi efni hafi borist úr leirmunum og valdið fólki skaða hér á landi en þau séu þekkt erlendis. „Það voru dæmi um það í Svíþjóð í hitteðfyrra þar sem fólk var að koma með mikið af leirhlutum frá Grikklandi sem blý og kadmium lak úr,“ segir hún. f að minnsta kosti einu tilviki kom upp alvarleg blýeitrun við neyslu matvæla sem geymd voru í leiríláti sem ekki var hæft til geymslu mat- væla. Samfellur ekki eitraðar Fjallað var um könnun danska neytenda- blaðsins Tænk á skaðlegum efnum í samfellum fyrir börn á neytendasíðu Blaðsins þann 18. októ- ber síðastliðinn. Af sex- tán samfellum sem blaðið lét kanna innihéldu sex óæskileg efni eins og þalöt og triclosan. Myndin sem birtist með greininni er af samfellum frá framleið- andanum Living Craft sem ekki reyndust inni- halda óæskileg efni. Living Craft í lagi Samfellur frá Living Craft lentu í öðru sæti í könnun danska neyt- endablaösins Tænk. Þvert á móti fengu þær aðra bestu einkunn í könnuninni. Myndbirtingin virðist hafa valdið misskilningi og bið- ur Blaðið þá sem hlut eiga að máli afsökunar á því. Vörur frá Living Craft eru umhverfisvottaðar og fást i verlsuninni Börn náttúrunnar á Skólavörðu- stíg 17 en hún sérhæfir sig í náttúrlegum leik- föngum, bókum um uppeldi og ullarfötum sem unnin eru á nátt- úrlegan hátt.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.