blaðið - 25.10.2006, Page 30
blaðið
Pólitíska hornið..
vinstri, HÆGRI snú!
Maður er eiginlega ekki maður
með mönnum í dag nema láta
sig umhverf-
ismál varða.
Þetta er hálf-
partinn eins
og tískubóla
og það er í
sjálfu sér í
lagi en það
er samt eitt-
hvað bogið
við þessa
umræðu. Það er eins og einhver
brenglun hafi orðið einhvers
staðar á leiðinni þegar fólk fór
að halda að stjórnmálamenn og
ríkið væru best til þess fallin að
stjórna og hafa yfirumsjón með
náttúrunni og umhverfismálum.
Ríkið á nefnilega ekki að skipta
sér eins mikið af umhverfis-
málum og það gerir í dag. Það
er ekki best til þess fallið. Það
eru allt of margir flóknir og
ólíkir hagsmunir sem togast á
hjá ríkinu eða þeim sem taka
ákvarðanirnar, til þess að besta
niðurstaða fáist.
Reynslan sýnir að þar sem mest
umhverfisspjöll hafa orðið í
heiminum, þar sem umgengni
um náttúruna er hvað verst,
hefur ríkisvaldið verið á ferðinni.
Má nefna sem dæmi ótrúlega
mengun og umhverfisspjöll í
gömlu Sovétríkjunum sem hin
nýfrjálsu ríki sitja uppi með. Hlut-
verk ríkisins á ekki að vera annað
en að setja lagalegan ramma um
nýtingu og vernd náttúrunnar og
framfylgja reglunum.
Einkaaðilar eru mun líklegri til
þess að gæta betur að hags-
munum náttúrunnar innan þess
ramma sem ríkið setur. Það
er þeirra hagur að vel sé farið
með náttúruna og umhverfið því
það ætti að nýtast þeim. Ef þeir
ganga á gæði náttúrunnar bera
þeir sjálfir skaðann af því. Það
er þeim beinlínis í hag að horfa
til sjálfbærrar nýtingar og setja
hagsmuni náttúrunnar í forgang
svo að þeir geti grætt á henni.
Þá græða allir; náttúran, þeir
sem hennar njóta og þeir sem
hana vilja nýta.
kristin@bladid.net
V______________________ J
Þorvaldur Þórsson
Það tók Will Gadd rúma viku að klífa Black
Death og áður en yfir lauk höfðu hann og
Ijósmyndari hans farið þrjár ferðir á sjúkra-
hús til aðhlynningar. Á leiðarenda komst
hann á endanum nefbrotinn.”
„Það er að kólna núna þannig að það er ekki annað
hægt að gera en að vona það besta,” segir Þorvaldur Þórs-
son í stjórn íslenska alpafélagsins um veður til ísklifurs.
Þorvaldur segir nauðsynlegt fyrir þá sem vilja stunda
ísklifur að sækja námskeið. „Það er hægt að sækja nám-
skeið hjá íslenskum fjallaleiðsögumönnum,“ segir hann
og nefnir að slys verði oftast hjá byrjendum vegna van-
mats á aðstæðum. „Þekkingin skiptir máli í ísklifri,” seg-
ir Þorvaldur.
Þorvaldur segir aðstæður á íslandi mjög góðar til ísklif-
urs og marga erlenda og færa ísklifursmenn sækja hingað
til að fara leiðir sem aldrei áður hafi verið farnar. „Það er ákveðin
spenna í því að klifra leið í fyrsta sinn. í Colorado sem er mekka ísklif-
urs í veröldinni er búið að klifra allar leiðir mörg hundruð sinnum.
Á Islandi þarf ekki að keyra nema í klukkutima frá Reykjavík til að
finna spennandi klifurleiðir sem aldrei hafa áður verið farnar.”
Þorvaldur nefnir hinn heimsfræga Will Gadd sem kom hingað til
lands til að klífa eina erfiðustu klifurleið heims: Brennivín í Hauka-
dal (Black Death á enska vísu). „Það klifur hefur ekki verið endur-
tekið og reyndist leiðin honum mjög erfið. Það tók hann rúma viku
að klífa leiðina og áður en yfir lauk höfðu hann og ljósmyndari hans
farið þrjár ferðir á sjúkrahús til aðhlynningar. A leiðarenda komst
hann á endanum nefbrotinn.”
„Jökulís er ekki eins skemmtilegur til klifurs og venjulegur vatnsís,”
segir Þorvaldur. „Jökulísinn er í mörgum lögum og flagnar leiðinlega
frá. Gott er að ganga upp fossa. Auðveldara er að höggva þann ís til
því hann er linur og auðveldur viðureignar.”
Varðandi útbúnað í ísklifri segir Þorvaldur að ákveðins grunn-
búnaðar sé þörf. „Það þarf að verða sér úti um axir og brodda," segir
hann. „Klifurlínu, ísskrúfur og tvistaheldur hann áfram. „Og fyrst
og fremst þarf að verða sér úti um þekkingu,” bætir hánn við.
Uridir áhrifum sjöunda áratugarins
Mínikjólar
Stutt skal paö vera í haust
og í anda sjöunda áxatug-
arins. Mlnikjóllinn er afar
heitur i haust og hvort sem
kjóllinn er mynstraður úr
ull eða satíni, með belgsniði
eða a-sniði, skal harm vera
afar stuttur, eða vel ofan
við hné. Hægt er að klæð-
ast þykkum sokkabuxum
við kjólana og háhæluðum
skóm með rúrmaðri tá eða
lágum ökklastígvójum.
Gerviaugnhár eru einnig
vinsæl í haust og aí
ýmsum gerðum, mynstruð
og skreytt.
og gerviaugnhár eru heit í haust
- ;;; 'MUu
buúdbu, ''
bcAÁJUtt