blaðið - 28.10.2006, Side 4
4 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006
blaöið
INNLENT
ÁTVR
Ríkið opnar á Hellu
Fjármálaráðuneytið hefur samþykkt opnun vín-
búðar á Hellu. Sveitarstjðrn Hellu hafði áður óskað
eftir því að vínbúð yrði opnuð í bænum. Ekki hafa
verið teknar neinar ákvarðanir um hvenær verði
ráðist í framkvæmdir vegna opnunarinnar.
LÖGREGLA
Sex með eituriyf
Lögreglan í Reykjavík hafði afskipti af sex
karlmönnum i fjórum fíkniefnamálum á
fimmtudag. Allir einstaklingarnir voru með
ætluð fíkniefni undir höndum en sá yngsti
sem var tekinn var sextán ára.
VIÐSKIPTI
Hundrað milljarða halli
Vöruskipti við útlönd eru áfram óhagstæð og í september munaði
tæpum átta milljörðum á inn- og útflutningi, það erfjórum milljörðum
minni munur en í fyrra. Fyrstu níu mánuði þessa árs höfum við flutt
inn vörur fyrir 275 milljarða og út fyrir 173 milljarða. Hallinn nemur
því 102 milljörðum og er það 27 milljörðum lakara en í fyrra.
Fasteignamarkaður:
Nokkrir grunnskólar skipta nemendum í hópa eftir námslegri getu:
Betri nemar fá þyngri próf
■ Einstaklingsmiðað nám ■ Nauðsynlegt að semja sérpróf ■ Kerfi sem var búið að leggja af
Salan minnkar
Heildarvelta á fasteignamark-
aði á höfuðborgarsvæðinu dróst
saman um rúman einn milljarð
dagana 20. til 26. október miðað
við sama tíma í fyrra. Þetta
kemur fram í tölum frá Fasteigna-
mati ríkisins. Alls var þinglýst
108 kaupsamningum vegna
fasteignakaupa í síðustu viku og
nam heildarveltan tæpum 3,4
milljörðum. Á sama tíma í fyrra
var 198 kaupsamningum þinglýst
með heildarveltu upp á rúma 4,5
milljarða.
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Að skipta nemendum niður í hópa
eftir getu er kerfi sem okkur hugnað-
ist ekki og því lögðum við það niður.
f þeim tilvikum sem slíkt er gert er
hins vegar nauðsynlegt að leggja fyrir
próf sem henta hverjum hópi fyrir
sig,“ segir Sigríður Heiða Bragadóttir,
aðstoðarskólastjóri Ölduselsskóla.
Sumir skólar eru farnir að flokka
nemendur niður í hópa, sem eru
ýmist kallaðir stjörnu- eða regnboga-
hópar, og er þeim boðið upp á mis-
munandi námsefni eftir getu þeirra.
Sumir þeirra eru farnir að semja
mismunandi próf sem miðast við
getu hópanna.
Ásdís Ýr Árnadóttir, uppeldis- og
menntunarfræðingur við Háskóla fs-
lands, er hissa á að verið sé að taka
aftur upp getuskiptingu í grunnskól-
unum. „I fíjótu bragði lítur það vafa-
samt út að taka aftur upp getuskipt-
ingu í grunnskólum og jafnframt að
leggja fyrir misþung próf. Röksemd-
ina um að þetta fyrirkomulag komi
til móts við einstaklingsmiðað nám
tel ég ekki eiga við, verið er að vinna
með hóp á grundvelli hópsins en ekki
einstaklinganna," segir Ásdís Ýr.
Inniheldur 22 valin bætiefni,
12 vítamín og 10 steinefni.
+i>AMO
heilsa
-hafðu það gott
Nauðsynlegt að hafa sérpróf
Jóhanna Vilbergsdóttir, skóla-
stjóri Engjaskóla, segir óhjákvæmi-
legt að bjóða nemendum upp á próf
sem hæfi þeirra getu. Skólinn hefur
verið að þróa með sér kerfi með skipt-
ingu í hópa. „Við erum að prófa hjá
okkur að blanda saman árgöngum
í samkennslu og síðan skiptum við
nemendum upp í hópa eftir náms-
legri getu, vinnuhraða og félagslegri
Hópaskipting i grunnskólum
Sumir grunnskó/ar þróa með sér
kerfi þar sem nemendum er skipt
uþp i hópa eftir námslegri getu út frá
stefnu um einstaklingsmiðað nám.
Sklptum nem-
endum upp /
hópa eftlrgetu,
hraða og stöðu
Jóhanna Vilbergsdóttir
skólastjóri Engjaskóla
stöðu,“ segir Jóhanna. „Formið á
kennslunni er þannig að nauðsyn-
legt er að semja sérstök próf fyrir hóp-
ana. Duglegri nemendur komast yfir
meira námsefni og þannig er ekki
sanngjarnt að leggja sama próf fyrir
alla.“
Enginn hvati
Asdís Ýr veltir fyrir sér hvort með
þessu fyrirkomulagi sé verið að út-
rýma hvötum fyrir nemendur að
vinna sig upp og leggja harðar að sér.
,Að setja slaka nemendur saman í
hópa virkar ekki endilega til uppbygg-
ingar fyrir þá einstaklinga,“ segir As-
dís Ýr. „í fyrstu má draga þá ályktun
að hætta sé á því að byggðar séu upp
falsvonir fyrir slaka nemendur því
síðar á lífsleiðinni lenda þeir jafnvel
á þröskuldum. Þá gætu þessir nem-
endur fengið tusku í andlitið."
Jóhanna er ekki sammála því og
segir nemendur vita hvernig staða
þeirra er í samanburði við aðra
nemendur.
„Börn sem þurfa sérkennslu gera
sér grein fyrir því að svo sé þannig
að ég lít ekki svo á að verið sé að
byggja upp falsvonir," segir Ásdís,
skólastjóri í Engjaskóla.
Eins og áður fyrr
Birna Sigurjónsdóttir, verkefna-
stjóri á menntasviði Reykjavíkur-
borgar, telur eðlilegt að skipta upp
í hópa eftir getu tímabundið. „Mik-
ilvægt er að þetta sé ekki eina leiðin
heldur að fjölbreytni sé gætt. Ef svo
er ekki, þá erum við komin aftur í
gamla getuskiptingarkerfið sem var
hér áður fyrr,“ segir Birna. Ásdís
Ýr telur hópaskiptingu í grunnskól-
unum ekki henta nemendum sem
standa höllum fæti. „Þau eru bara
með öðrum krökkum af sama getust-
igi í hópi og því hvatinn lítill,“ segir
Ásdis Ýr. „Að auki er oft talað um að
krakkar læri eirina mest af jafningum
sínum í gegnum herminám og ef jafn-
ingjar eru ekki Öflugir er herminámið
það að sama skápi ekki heldur."
Fagleg ræsting
fyrirtækja
er bæði betri og ódýrari
'~iíf'v'. 'Ur1
i m
Hreint
Auðbrekku 8, 200 Kópavogi, sími 554 6088, hreint@hreint.is, www.hreint.is
Staða kvenna í íslenskum stjórnmálum:
Læg'ri laun og fleiri konur
„Þrykkjum launum þingmanna
niður og þá myndu karlarnir fljót-
lega hverfa og konur koma í staðinn,"
sagði Margrét Sverrisdóttir, fram-
kvæmdastjóri Frjálslynda flokksins,
um það hvernig ætti að fjölga konum
í íslenskum stjórnmálum á ráðstefnu
Jafnréttisráðs á þriðjudaginn.
Aðspurð um ummælin segist
Margrét hafa sagt þau í kaldhæðni,
en það breyti því ekki að hún hafi
miklar áhyggjur af stöðu kvenna í
stjórnmálum. „Það verður spennandi
að sjá hvernig konum reiðir af í próf-
kjörunum framundan. Mér finnst
mun harðar sótt að konum sem eru
jafnvel í þeirri stöðu að vera búnar að
tryggja sér ákveðinn sess. Sem dæmi
má nefna Arnbjörgu Sveinsdóttur,
þingflokksformannSjálfstæðisflokks-
ins. Hún kemst nú i fyrsta sæti í Norð-
austurkjördæmi vegna þess að aðrir
eru að víkja og þá er sótt mjög fast að
henni."
Margrét nefnir einnig Drífu
Hjartardóttur. „Nú er hún fyrsti
þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suð-
urkjördæmi, en vikur fyrir Árna Mat-
hiesen og sækist eftir öðru sætinu.
Þá ráðast allir á hana í annað sætið.
Það virðist sem svo að það dugi ekki
konum að vera með öll spil á hendi
sem hefðu dugað karlmönnum til að
vera ósnertanlegir.“
Efnalaucjin Björg
Gæðahreinsun
Góö þjónusta
Þekking
Opiö: mán-fim 8:00 - 18:00
föst 8:00 - 19:00
laugardaga 10:00 - 13:00
Háaleitisbraut 58-60 • Síml 553 1380