blaðið - 28.10.2006, Blaðsíða 31
blaöiö
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006 31
„Höfnunartilfinningerfylgikvillileik-
arans en hún þarf ekki að vera mikil
í byrjun ferilsins þvi þá á maður allt
lífið framundan og alla sénsana eftir.
Ég held að fólk á mínum aldri sé oft
illa haldið af höfnunarkennd, ekki
síst þeir sem eru á föstum samningi
því þeim finnst þeim hafnað á þeirri
forsendu að þeir fái ekki góð hlut-
verk að glíma við. Ég upplifi meiri
höfnunartilfinningu inni í stofnun-
unum en í lausamennskunni því þar
er erfitt að upplifa mikla höfnun.
Það vinnur enginn leikari í lausa-
mennsku nema hann hafi mikið til
að bera, aðrir detta út og fara í önnur
störf.“ Edda hefur prófað að vera á
samningi og að vera í lausamennsku
en er ekki frá þvi að lausamennskan
henti henni betur. „Það er spennu-
fíkillinn í mér sem fær eitthvað út
úr því að vera í lausamennsku en ég
er ekki að segja að það sé mér hollt.
Á haustin fæ ég óviðráðanlegt gleði-
kast í magann við það að veturinn
skuli kannski vera hálfskrifað blað.
Þetta er því alltaf stressandi en ég
væri vanþakklát ef ég leyfði mér að
taka mér orðið basl í munn. Ég er
þvílík forréttindamanneskja, ég hef
alltaf haft miklu fleiri verkefni en ég
get sinnt og er óendanlega þakklát."
Næ ekki andanum fyrir grátnum
Edda ákvað að skella sér í háskóla
í sumar og er nánast hálfnuð með
mastersgráðu í stjórnun mennta- og
menningarfyrirtækja. „Eftir námið
stefni ég að því að fara í röðina með
strákunum og sækja um borgarleik-
hússtjórastöðuna. Annars er allt
opið hjá mér, ég gæti líka ráðskast
aðeins með öll þessi stóru flugfélög,
skipafy rirtæki, banka eða fjárfesting-
arfyrirtæki. Ég er alveg tilbúin til að
fá 20 milljónir á mánuði í nokkur ár.
Það væri svolítið öruggt fyrir spennu-
fíkilinn í mér en ég myndi reyna að
gera þetta æsandi,“ segir Edda og
viðurkennir að skólinn geti verið
ansi erfiður. „Þetta er svo erfitt að
stundum næ ég ekki andanum fyrir
grátkekki og áhyggjum. Stundum
finnst mér ég vera með greindarvísi-
tölu núll en þess á milli er þetta of-
boðslega skemmtileg áskorun. Þetta
er mesta áskorun sem ég hef á ævi
minni tekist á við því þarna er ég á
núllpunkti, ég hef ekkert í handrað-
anum nema lífsreynsluna og er að
takast á við hluti sem ég hef aldrei
á ævi minni lent í. Þó ég sé stundum
í áhyggjukasti og geti ekki sofið því
ég held að ég geti þetta ekki þá ríf
ég mig upp á rassgatinu og sæki
mér áfallahjálp. Ég hringi í Gunna
vin minn sem segir alltaf að ég geti
þetta víst og þá er ég komin á rétt ról.
Þau verkefni sem ég hef leyst hingað
til hafa gengið upp og með reglulegu
millibili er ég í bjartsýniskasti og tel
fullvíst að ég muni ná öllum kúrs-
unum sem ég þarf til að geta skrifað
ritgerðina."
Hættulega þægilegt
að vera einhleyp
Edda er fráskilin og segist því
finna fyrir mikilli samsvörun við
Ástríði, persónu sína í Brilljant skiln-
aður. „Það var ekki langt um liðið
frá mínum skilnaði þegar ég byrj-
aði að leika í verkinu. Þetta er búið
að vera meðferð fyrir mig og meira
að segja ákveðin heilunarmeðferð
fyrir marga sem sjá þetta. En þetta
er tilfinningavinna í hvert sinn á
leiksviðinu og það má segja að það sé
súrsætt að standa uppi á sviði í hvert
sinn og rifja upp þessar gömlu tilfinn-
ingar. Það er líka ákveðið kikk því
maður fær stundum kikk út úr því
að þjást. Ég er því einhleyp og það
er hættulega þægileg tilfinning. Ég
trúi því að maður eigi að eiga í ástar-
samböndum og ég veit að það er líka
skrifað í mín ský. Hins vegar er svo of-
boðslega þægilegt að ráða öllu sjálfur,
þurfa aldrei að spyrja neinn og gera
allt nákvæmlega eins og manni sýn-
ist. Ég er líka í þeim forréttindahópi
að eiga svona ofboðslega mikið af
yndislegum vinum og kunningjum í
kringum mig og yndislega fjölskyldu.
Ástríður fann rosalega fyrir einmana-
leikanum og það eru margir sem
upplifa hann. Eg upplifði hann bara
á stuttu tímabili þegar ég vildi ekki
hafa samband við neinn, ég þurfti að
vera ein og þjást.“
Rækta það besta í mínu fari.
Edda hefur unnið heilmikið í
sjálfri sér undanfarin ár og segist
umfram allt vera þakklát fyrir ynd-
islegt líf. „Mér finnst ég hafa fengið
Fágæt sérgáfa „Það verðurað segj-
ast eins og er að kómískt hæfileikafólk
útskrifast mjög sjaldan úr leiklistarskóla.
Þetta er fágæt sérgáfa en þegar maður
er kominn á minn aldur þá þorir maður
að segja þetta upphátt. “
margar gjafir frá lífinu, bæði í starfi
og einkalífi. Það er svo mikið af fólki
að glíma við sjúkdóma og alls konar
sorgir og það er ómetanlegt að eiga
fjölskyldu þar sem allir eru heilsu-
hraustir. I sjálfsræktinni reyni ég að
rækta það besta í mínu fari en ég hef
alltaf viljað vinna með tilfinningar
mínar. Leikarar þurfa að gera það
en það er því miður ótrúlega auðvelt
að sleppa með yfirborðsvinnu. Ef þú
sérð leikara sem þú virkilega hrífst af
og hann fær þig til að hlæja og gráta
þá er öruggt að hann er að vinna
alvöru tilfinningavinnu og fara í
eigin tilfinningabanka. Svo sérðu
fullt af fólki sem stendur uppi á leik-
sviði með tilfinningarnar hangandi
utan á sér og hefur ekki kjark til að
fara í eigin tilfinningabanka," segir
Edda og bætir við að sjálfsræktin
hafi gefið henni meiri heiðarleika.
,Ég er miklu óhræddari að horfast í
augu við það þegar ég verð grimm,
hranaleg eða stekk upp á nef mér og
veð yfir fólk. Ég er farin að ná utan
um það strax, ég þarf ekki að ljúga
að sjálfri mér að þetta hafi verið í
lagi. Ég horfist í augu við að það var
ekki í lagi hvernig ég kom fram og
ég er farin að þora að biðjast fyrir-
gefningar. Ég á til ofboðslega mikla
stálstjórnunarsemi, ég verð ósveigj-
anleg og hlutirnir verða að vera eftir
mínu höfði. Ég er að læra að greina
þarna á milli, hvenær það er stjórn-
sýki og hvenær það er vegna þess að
ég hef reynsluna og veit betur.“
svanhvit@bladid.net
v'\nsæ\u
irsh^ðarp^ar
. ££%&****
fundi« áahóPa
fyrir 5t°ra y
ekki missa af okkar landsfræga og margrómaða jólahlaðborði.
Pantið tímanlega til að tryggja ykkur borð. Síðast komust færri að en vildu.
p^ðeins
nokkur kvo\d
laus
Veislur O
cc
Árshátíðir '<
I—
Jólahlaðborð Zi
<
Brúðkaup cc
Z)
Fermingar O
Vinnustaðafundir oo
ID
Hópefli tn
LLl
Ráðstefnur o.fl. >
Á föstudags- og laugardagskvöldum er innifalið í verði;
Jólahlaðborð, dansleikur, hljómsveit leikur fyrir dansi,
rútuferðir fram og til baka.
Sunnudagskvöldin eru fjölskyldukvöldin okkar, þá kemur
jólasveinninn í heimsókn með glaðning handa börnunum,
frítt fyrir 12 ára og yngri í fylgd með foreldrum.
4 glæsilegir salir - allt að 350 manns
Tilvalið fyrir starfsmannahópa, vinahópa, klúbba,
félagasamtök og alla hópa sem vilja hafa gaman og láta
dekra við sig í mat og drykk .
UppL og ból^nir í síma Sfliðasfláíimi í HVCVCUfÖCuilt
www. skidaskali.is - Netf. skidaskali@skidaskali.is
uDI ZUZU