blaðið - 28.10.2006, Blaðsíða 38
3 8 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006
Það er einfalt að búa til drauga-
sleikipinna úr laugardagsnamminu.
Settu einfaldlega vasaklút eða bréf
yfir sleikjóinn og bittu hnút með
bandi utan um sleikipinnann.
blaðið
Krekkjðvahan er skenuatileg
Víða um heim er hrekkjavöku fagnað. Á (slandi
hefur sá siður ekki fest sig í sessi. Þess í stað höld-
um við upp á öskudag í febrúarmánuði. En það er
samt alltaf gaman að finna sér tilefni til að klæð-
ast í búning, lesa draugasögu, búa til draugakökur
og kynna sér um hvað hrekkjavakan snýst.
Draugakökur
Þetta þarftu:
1/2 bolli sykur
1/2 bolli púðursykur
1/2 bolli hnetusmjör
1/4 bolli mjúkt smjör
1 egg
1 1/4 bolli hveiti
3/4 teskeið matarsódi
Vz teskeið lyftiduft
1/4 teskeið salt
Skrautkrem:
3 bollar flórsykur
4 til 5 teskeiðar mjólk
Nammi til að skreyta með ef vill. Eða skrautsykur.Smá-
kökumót sem er eins og draugur í laginu. Hringlaga mót
dugir líka ef þú átt ekki slíkt.
Og svona gerirðu:
Fáðu einhvern fullorðinn til að hjálpa þér.
Hrærðu saman sykri, hnetusmjöri, smjöri og eggi í stórri
skál. Hrærðu saman við hveiti, matarsóda, lyftidufti og
salti. Settu plastfilmu yfir skálina og kældu deigið í ís-
skápnum í 3 klukkustundir.
Hitaðu ofninn í 220 gráður.
Settu smá hveiti á hreint borð. Skiptu deiginu í tvennt og
búðu til tvær rúllur úr því. Flettu út deigið og skerðu út úr
því með litlu kökumóti. Notaðu hringi eða mót sem eru í
laginu eins og draugur. Raðaðu kökunum á bökunarpapp-
ír. Passaðu að hafa þær ekki of þétt saman.
Kökurnar eiga að bakast í 6 til 8 mínútur þangað til
þær eru Ijósbrúnar. Taktu þær þá úr ofninum og láttu þær
kólna.
Biandaðu skrautkremið í skál þangað til það er mjúkt og
settu það á kökurnar. Skreyttu með nammi.
Hvers vegna draugar
og beinagrindur á
hrekkjavöku?
Hrekkjavaka
um helgina
Hrekkjavaka er haldin hátíðleg
víða um heim núna um helgina og
í næstu viku og þið veltið því ef
til vill fyrir ykkur af hverju svona
mikil áhersla er lögð á drauga og
draugalega stemningu.
Siðurinn er upprunninn hjá Keltum
á Bretlandseyjum en fyrir þús-
undum ára fögnuðu þeir nýju ári
1. nóvember í stað 31. desember.
Keltar dýrkuðu náttúruna og héldu
mikla veislu þar sem þeir kveiktu
bál, fóru í búninga og færðu gjafir
og mat til látinna vina og ættingja
í von um að þeir kæmu f heimsókn.
I Mexíkó fögnuðu Astekar degi hin-
na dauðu í ágúst. Þeir færðu þeim
blóm og mat. Miklu seinna lýsti
kaþólska kirkjan því yfir að þann 1.
nóvember yrði haldin allraheilagra-
messa til að heiðra látna dýrlinga.
Nóttin fyrir allraheilagramessu
varð þekkt sem All Hakkiween sem
má þýða sem hrekkjavöku. Þegar
kaþólsk trú breiddist út um Suður-
Ameríku sameinuðust þessar hátíð-
ir í eina, sú keltneska, dagur hinna
dauðu og allraheilagramessa.
Beinagrindur, draugar og
nornir einkenna þennan
dag og nóttina áður
og sumum
finnst það ógurlegt en hrekkjavaka
er samt hátíð og þá ríkir engin
sorg og lífi þeirra sem eru látnir er
fagnað. Þannig minnir hrekkjavak-
an og tákn hinna dauðu, draugar
og beinagrindur, okkur á hvað lífið
er dýrmætt
II
Árshátíð
Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni verður
haldin í húsi Ferðafélags íslands Mörkinni 3 föstudaginn
3. nóvember kl. 19.30 (húsið opnað kl. 19.00 )
Ávarp:
Veislustjóri:
Hátíðarræða:
Einsöngur:
Danssýning:
Margrét Margeirsdóttir formaður FEB
Hinrik Bjarnason.
Guðrún Helgadóttir rithöfundur.
Signý Sæmundsdóttir.
Ungmenni frá Dansfélaginu Hvönn í Kópavogi.
Söngur og gamanmál.
Dansleikur: Hljómsveitin Klassík leikur fyrir dansi.
Veislumatseðill.
Verð aðgöngumiða kr. 4800.-
Miðar seldir á skrifstofu félagsins s.588-2111
Síðasti söludagur þriðjudagur 31. október.
Hvað heitir þú?
„Ólína Rún Þórarinsdóttir."
Hvenær áttu afmæli?
„4. janúar og ég er alveg að verða
5 ára.“
Áttu einhver systkini?
„Ég á eina systur sem heitir Fan-
ný Helga og er 2 ára.“
Hvað heitir leikskólinn þinn?
„Hann heitir Rjúpnahæð og deild-
in mín heitir Krummahreiður."
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera í leikskólanum?
„Að leika mér í dúkkubúinu og
að stóru kubbunum og að leika
mér úti.“
Hvað langar þig að verða þegar þú
verður stór?
„Ég myndi vilja vera lögga því
að þá gæti ég verið úti seint á
kvöldin."
Hvaða kvikmynd sástu síðast og
hvernig fannst þér hún?
„Ég horfði síðast á öskubusku og
fannst hún mjög skemmtileg."
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
„Pasta með tómatsósu og steikt-
ur fiskur."
Hver er uppáhaldstölvuleikurinn
þinn?
„Ég spila aldrei tölvuleiki. Ég fer
bara í Stafakarlanna og inn á
disney.com eða barbie.com."
Hvernig tónlist finnst þér skemmti-
legast aðhlustaá?
„Tónlistina úr Línu langsokk og
Latabæ."
Ef þú fengir eina ósk, hvers mynd-
irðu óska þér?
„Að ég gæti leikið við Elís og
Bent Ara frændur mína á hverj-
um deg i."