blaðið - 28.10.2006, Blaðsíða 12
blaöid
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Ritstjóri: Sigurjón M. Egilsson
Fréttastjórar: Brynjólfur Þór Guðmundsson og
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Ritstjórnarfulltrúi: Janus Sigurjónsson
Nauðgarar lausir
Get ekki varist tilhugsuninni um að lögreglan gæti staðið sig betur í að
finna nauðgarana sem réðust á ungu konurnar í miðbænum. Árásirnar í
porti við Menntaskólann í Reykjavík, við Þjóðleikhúsið og sú þriðja utan
við borgarmörkin eftir að sú kona þáði far með ókunnugum heim eftir
skemmtanahald í miðbænum vekja ugg.
Þrátt fyrir að konurnar hafi kannski ekki tekið skynsamlega ákvörðun
þegar þær ákváðu að rölta einar um bæinn eða að þiggja bílfarið gefur það
ekki nauðgunarleyfi á þær. Nauðgunin er ekki á þeirra ábyrgð.
Við vitum af hættunum sem leynast, en þær hafa sjaldan verið eins of-
arlega í huga og nú. Enda gerist það sem betur fer ekki oft að konur séu
gripnar á göngu, dregnar afsíðis og nauðgað. Verður varnarleið kvenna að
vera aldrei einar á ferð í miðbænum að næturlagi? Passa að ein vinkonan
taki sig ekki út úr hópnum við skemmtanahald um helgar og allar fari
heim á sama tíma? Það á ekki að þurfa að verjast nauðgurum á götum
borgarinnar. Við hljótum að gera þá kröfu að lögreglan leggi allt kapp á
að stöðva þessa menn og upplýsa málin. Að hún haldi nauðgurum á mott-
unni með virku eftirliti í miðbænum um helgar. Sé sýnileg.
Afbrotafræðingurinn Helgi Gunnlaugsson sagði í viðtali við Blaðið ekki
hægt að útiloka að sömu mennirnir hafi nauðað konunum tveimur með
hálfsmánaðarmillibili við þessar sögufrægu byggingar borgarinnar, enda
frásögn þeirra beggja mjög áþekk. Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn
í Reykjavík, blés í sömu frétt á þá kenningu. Samt veit lögreglan ekki hverjir
voru að verki. Rannsókn hennar hefur ekki leitt þá á spor nauðgaranna.
Lögreglan hefur pukrast með rannsókn málanna frá fyrstu nauðgun-
inni fyrir tæpum þremur vikum. Hún hefur ekki óskað eftir aðstoð þeirra
sem voru á ferli þessar nætur.
Af hverju stíga lögreglumennirnir ekki fram og biðja almenning um að-
stoð við að upplýsa málin?
Konur eiga ekki að sætta sig við þá ógn sem vofir yfir þeim í miðbænum.
Konur geta, ef þær vilja, kallað eftir umbótum. Þær geta staðið saman og
hunsað að fara í miðbæinn þangað til nauðgararnir finnast. Ár er síðan
fimmtíu þúsund konur söfunuðust saman til að krefjast launajafnræðis
á við karla. Þær aðgerðir báru ekki árangur frekar en aðrar síðustu tólf ár.
Dæmið gæti hins vegar gengið upp neiti konur að eyða krónunum sínum í
miðbænum þar til löggæslan hefur verið hert.
Eftir helgar eru sagðar fréttir af tilefnislausum líkamsárásum á unga
menn í miðborginni. Dæmi eru um hópárásir á menn á göngu í miðbænum.
Þeir virðast hafa sætt sig við áhættuna sem þeir taka við skemmtanahaldið.
Ætla konur einnig að sætta sig við hættuna á að vera beittar ofbeldi?
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
PENZIM
ÍSLENSK NÁTTÚRUVARA UNNIN
Ú R SJÁVARRÍKINU UMHVERFIS
ÍSLAND
Dr. Jón Bragi Bjamason, prófessor í lífefhaffæði, hefiir
unnið að rannsóknum og þróun Pensímtækninnar um
áratuga skeið og er hún nú einkaleyfisvarin um allan heim.
Penzim fyrir húðina, liðina og vöðvana
12 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006
blaöið
LAtJPTkK? tKx< aKTja
MiG fl EvRUHr/MiU. tQ Vfrp G&>v£íKt
1\ fc TÆ ÍAkfl EiVM '
Prófkjörið er
einstakt tækifæri
Lýðræðið er langt frá því að vera
fullkomið. Það er þó besta stjórn-
arformið sem við þekkjum. Und-
anfarnar vikur hef ég tekið þátt
í prófkjörsbaráttu stærstu stjórn-
málahreyfingarlandsins. Það hefur
verið afar ánægjulegur tími. Félags-
menn í Sjálfstæðisflokknum hér í
Reykjavík eru um 20 þúsund. Ég
hef fengið færi á að ræða við mjög
marga þeirra, bæði þá sem komið
hafa á kosningaskrifstofu mína
við Austurvöll, þá sem ég hef rætt
við í síma og hitt á ótal fundum og
mannamótum. Það er ómetanlegt
fyrir þá sem vilja taka þátt í stjórn-
málum að fá tækifæri til að heyra
sjónarmið þeirra sem valdið hafa,
kjósenda.
Góð aðferð
Prófkjör er auðvitað ekki eina
leiðin sem stjórnmálaflokkarnir
hafa til þess að velja fólk á fram-
boðslista sína. Við sjálfstæðis-
menn þekkjum einnig þá leið sem
stundum hefur verið farin, að fela
fámennri kjörnefnd það verkefni að
stilla upp lista. Sjálf hef ég reynslu
af störfum kjörnefndar og tók þátt
í því að stilla upp lista fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar í vor. Var það
ærið verkefni þótt prófkjör hefði
skorið úr um efstu sæti. Að fela
fámennum hópi það hlutverk að
búa til framboðslista án prófkjörs
getur hins vegar orkað tvímælis.
Það er mikilvægt að nýir frambjóð-
endur fái tækifæri til þess að gefa
kost á sér og fái um leið að láta á
sig reyna í kosningabaráttu. Ég hef
sagt það við menn sem hafa spurt
mig hvort ekki sé erfitt og lýjandi
að heyja svo harða baráttu, að próf-
kjörsbarátta sé bara undirbúningur
fyrir þá baráttu sem mestu máli
skiptir; kosningarnar í vor. Treysti
menn sér ekki í þann undirbún-
Viðhorí
Sigríður Andersen
ing verður á litlu að byggja þegar
á hólminn er komið. Þess vegna
tel ég prófkjör ákjósanlegustu leið-
ina til þess að velja frambjóðendur
Sjálfstæðisflokksins.
Málefnalegt innlegg
Prófkjörið í dag hefur mun meiri
áhrif en bara á uppröðun listans í
vor. Allir frambjóðendur hafa nýtt
síðustu vikur, ef ekki mánuði, til
þess að eiga orðastað við þúsundir
kjósenda sem hafa skoðanir á hlut-
verki stjórnmálamanna. Eðli máls
samkvæmt er margt sem brennur
á mönnum. Sjálf hef ég fengið
tækifæri til þess að kynnast sjónar-
miðum fólks sem segir farir sínar
ekki sléttar í samskiptum við hið
opinbera, ríki eða borg. Má sem
dæmi nefna einföld mál á borð við
afgreiðslu erinda hjá opinberum
stofnunum, flóknari mál á borð við
tekjutengingu lífeyrisgreiðslna og
afar alvarleg mál eins og úrræði fyrir
langveik börn og foreldra þeirra. Ég
get svo nefnt það hér til gamans að
aðeins einn viðmælandi minn hefur
haft áhuga á að ræða kvótakerfið
sérstaklega. Það er trúlega til marks
um breytta tíma.
Öll þessi samtöl hafa verið áhuga-
verð og vakið mig til umhugsunar
um einfaldar og hagkvæmar lausnir.
Ég hef sannfærst enn frekar en áður
um að þær megi finna með sjálf-
stæðisstefnuna að leiðarljósi. Ég hef
einnig áttað mig á því með þessum
samtölum að í kosningunum í vor
verður einkum tekist á um þrennt;
stöðugleika í efnahagsmálum,
lækkun skatta og þar með bættan
hag heimilanna og aðstoð velferðar-
kerfisins við þá sem á þurfa að halda.
Það er afar mikilvægt að við fram-
bjóðendurnir höldum til haga öllum
þeim góðu ábendingum sem við
höfum fengið undanfarnar vikur.
Tökum þátt
Þátttaka í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins er einstakt tækifæri til
þess að hafa áhrif á framboðslista
stærstu stjórnmálahreyfingar lands-
ins. Ég hvet reykvíska sjálfstæðis-
menn til þess að taka þátt í þvi að
stilla upp sigurstranglegum lista
fyrir kosningarnar í vor.
Höfundur er lögfræðingur og
gefur kost á sér í 5.-7. sæti í prófkjöri
sjálfstæðismanna í Reykjavík í dag.
PENZIM er hrein,
tær og iitarlaus
náttúruvara byggð á
vatni en ekki fitu.
PENZIM inniheldur
engin ilmefhi,
litarefnl eða gerviefni
sem geta valdið
ofnæmisviðbrögðum.
PENZIMinniheldur
engar fitur, oflur eða
kremblöndursem
geta smitað og eyðilagt
flíkureðarúmfót.
PENZIM
VVmtAU MAIVRAt
SUftRAaiVI
VfARlVi: FVZVVtFS
AdvMtcttl Skin fc Body
PEN2IM
I.OTION
WltMALLMATlRAt
St
Penzim fæst í apótekum og heilsubúðum um land allt.
penzim.is
Klippt & skorið
Mikill hiti var frá fyrstu stundu í próf-
kjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík.
Þannig voru stuðningsmenn Guð-
laugs Þórs Þórðarsonar í
kjördeildum til þess að fylgj-
ast með kjörsókn, en þær
upplýsingar eru svo notaðar
til þess að hringja út þá kjós-
endur, sem láta bíða eftir sér,
og líklegir eru taldirtil þess að
styðja Guðlaug. Nokkurgremja mun hafa skap-
ast vegna þessa meðal annarra frambjóðenda,
en Þórunn Guðmundsdóttir, formaður
yfirkjörstjórnar, lét gott heita. Á hinn bóginn
munu aðrir frambjóðendur vera að velta fyrir
sér að senda eftirlitsmenn í kjördeildir til þess
að ganga úr skugga um að þar fari allt fram
eftir settum reglum.
Enginn treystir sér til þess að spá nokkru
fyrir um lyktir prófkjörsins, ef undan
er skilið efsta sætið, sem Geir H. Ha-
arde, flokksformaður, sækist einn eftir. Það
er svo ekki fyrr en í níunda sæti, sem menn
þora að spá að Grazyna
María Okuniewska kunnl
að hreppa það með nokkrum
fjölda atkvæða. Að öðru
leyti er nýliðunin óljós, en
þó heyrði Klippari það hjá
öldnum sjálfstæðismönnum
að Sigríður Andersen ætti stuðning þeirra
allan, enda tímbært að á þing kæmist reyk-
vísk sjálfstæðiskona úr ungliðahreyfingunni.
Það hefur víst ekki gerst í hálfa öld eða síðan
Ragnhildur Helgadóttir var kjörin á þing
1956.
Skákfrömuðurinn Hrafn Jökulsson
hyggst undir næstu helgi hreiðra um
sig í Kringlunni og
setjast að maraþontafli til
styrktar starfi skákfélagsins
Hróksins á Grænlandi. Meðal
þeirra, sem þegar hafa skorað
á þennan óþreytandi skák-
mann eru Unnur Birna Vilhjálmsdóttir
alheimsfegurðardrottning, Eva María Jóns-
dóttir sjónvarpskona, tónlistarmaðurinn KK,
Össur Skarphéðinsson þingmaður, Rúnar
Júlfusson tónlistarmaður, Guðlaugur Þór
Þórðarson alþingismaður, Benedikt Erlings-
son leikari ogJóhanna Vilhjálmsdóttir sjón-
varpskona. Ætli Klippari skori ekki á hann líka!
andres.magnusson@bladid.net