blaðið - 28.10.2006, Page 8
8 LAUGARDAGUR 28.OKTÓBER2006
blaAið
UTAN ÚR HEIMI
AFGANISTAN
Staðfesta fall óbreyttra borgara
Atlantshafsbandalagið hefur staðfest að að minnsta
kosti tólf óbreyttir borgarar hafi fallið í loftárás á
vígamenn talibana í suðurhluta landsins á fimmtudag.
Loftárásin var gerð á búðir hirðingja í Kandahar og er
hermt að að minnsta kosti fjörutíu manns hafi fallið.
Fordæma landamæragirðingu
Mexíkóar fordæma ákvörðun bandarískra stjórn-
valda um að reisa rúmlega þúsund kílómetra langa
girðingu á landamærum ríkjanna til að sporna við
ólöglegum innflytjendum. Til samanburðar er hring-
vegurinn íslenski tæpir 1.400 kílómetrar.
Segja ákærur „síonistasamsæri”
íransstjórn vísar á bug ásökunum stjórnvalda í
Argentínu um að íranskir ráðamenn og Hizballah
beri ábyrgð á hryðjuverkárás á samkomumiðstöð
gyðinga í Buenos Aires 1994. Klerkastjórnin
segir ákærurnar „samsæri síonista".
Bændur sannfærðir um hleranir lögreglunnar með mótmælendur tjölduðu hjá þeim:
Vissu allt sem við sögðum í síma
„Síðustu tvö sumur hefur síminn
okkar látið einkennilega og símtöl
slitnuðu reglulega. Ég hef nú verið
að grínast með að þá hefur lög-
reglan líklega þurft að skipta um
spólu hjá sér,“ segir Guðmundur
Ármannsson, bóndi á Vaði.
Þegar mótmæli stóðu sem hæst
gegn virkjunarframkvæmdum á
Austurlandi og álveri á Reyðarfirði
fengu mótmælendur að tjalda á
túninu hjá honum. Á því tímabili
varð Guðmundur þess var að sím-
töl slitnuðu daglega og síminn var
öðruvísi en venjulega. „Auðvitað
hefur maður engar sannanir fyrir
þessu en við erum sannfærð um
að síminn var hleraður hjá okkur.
Siminn var bara óvenjulegur á
þeim tíma sem mótmælin stóðu
yfir,“ segir Guðmundur. Fyrrver-
andi lögreglumenn sem Blaðið
hefur rætt við hafa sagt að mótmæl-
endur við Kárahnjúka hafi verið
hleraðir. Það sé hluti umfangsmik-
illa ólöglegra hlerana lögreglu án
dómsúrskurðar.
Guðmundur H. Beck, bóndi
á Kollaleiru í Reyðarfirði, hýsti
mótmælendur einnig á túninu hjá
sér. Hann segir ljóst að ekki dugi
aðeins að rannsaka ólöglegar hler-
anir í fortíðinni heldur þurfi að
rannsaka alveg fram til dagsins í
dag. „Við pössuðum okkur að segja
ekki frá neinum aðgerðum í síma
en í þeim fáu tilvikum sem það
var gert mætti sérsveitin ávallt á
svæðið á undraskömmum tíma,“
segir Guðmundur.
Hlerað hjá mótmælendum Bændur
sem hýstu mótmælendur gegn Kára-
hnjúkavirkjun og álveri á Reyöarfirði
eru sannfæröir um að hafa veriö hle-
raöir meöan á mótmælum stóð.
Gríptu tækifærið!
Santa Fe, Terracan og Getz
bílaleigubílarnir komnir í sölu!
Tilboðsdagar frá 25.okt til 28.okt.
pngin útbotgun
fc * ao% \an
Verðdæmi
HYUNDAITERRACAN Turbo dísel, beinskiptur.
Árgerð 2005, ek.42 þús.
Ásett verð kr. 3.050.000
-> TILBOÐ kr. 2.650.000
kr. 37.900 á mánuði*
cng\n útbo'gun
fc° 100% 'an
Verðdsml
HYUNDAi GETZ GLS, beinskiptur.
Árgerð 2005, ek.42 þús.
Á»«M v«rð kr. 1.230.000
-> TILBOÐ kr. 980.000
kr. 14.000 á mánuði*
Eng\n útbotgu"
fcn 100% 'an
Verðdœmi
HYUNDAI SANTA FE, beinskiptur.
Árgerð 2005, ek.52 þús.
Á.ett verð kr. 2.550.000
-» TILBOÐ kr. 2.150.000
kr. 30.900 á mánuði*
♦Bílasamningur: Engin útborgun og mánaðarlegar greiðslur f 84 mánuöi. Afborganir háðar breytingum á vöxtum og gengi erlendra mynta.
♦Bílar á mynd eru einungis dæmi.
Grjóthálsi 1, Reykjavík 575 1230.
Opið virka daga frá kl. 10 -18 og á laugardögum frá kl. 12 - 16.
bilaland.is
ísrael:
Líkir klerkum
við nasista
Ehud Olmert, forsætisráðherra
Isra'els, líkti kjarnorkuáætlun
klerkastjórnarinnar í fran og
hótunum hennar gegn Israelum
við ofsóknir nasista á hendur
gyðingum í ræðu sem hann hélt
við Yad Vashem-minnismerkið í
Jerúsalem í gær um þá sem féllu
í helforinni. Forsætisráðherrann
gagnrýndi alla þá sem rækta
tengsl við Mahmoud Ahmadinej-
ad, forseta írans, en hann rekur
harðlinustefnu gegn Israelsmönn-
um og hefur ítrekað sagt að
leggja ætti ríki þeirra í eyði.
Hvalur 9:
Fjórði hvalur-
inn skotinn
Hvalveiðibáturinn Hvalur 9
skaut íjórðu langreyðina vestur
af Snæfellsnesi um tvöleytið í
gær. Að sögn Gunnlaugs Fjólars
Gunnlaugssonar, starfsmanns
Hvals hf„ er hvalurinn svipaður
að stærð og sá sem skotinn var
á fimmtudaginn en sá reyndast
um 70 fet að lengd. „Hún er
svipuð á lengd og ekki síður feit.“
Von er á Hval 9 til hafnar
við hvalstöðina í Hvalfirði
um hálfellefuleytið i dag en
áætlað er að báturinn haldi
síðan aftur út eftir hádegi.
Bandaríkin:
56 prósent
vilja demókrata
Nýjasta skoðanakönnun
AP-fréttastofunnar og AOL-fjöl-
miðlafyrirtækisins staðfestir
aðrar kannanir sem segja að
meirihluti Bandaríkjamanna
ætli að kjósa frambjóðendur
demókrata í þingkosningun-
um í byrjun næsta mánaðar.
I könnuninni kemur fram að
56% ætla að kjósa demókrata á
meðan aðeins 37% hyggjast kjósa
repúblikana og hefur munurinn
á milli flokkanna aukist um níu
prósent frá síðustu könnun sem
var gerð fyrr í þessum mánuði.
Helsta ástæðan fyrir stuðningi
við demókrata er andstaða við
stefnu George Bush forseta
gagnvart írak, óánægja með
efnahagsástandið og störf þings-
ins undir stjórn repúblikana.