blaðið - 28.10.2006, Side 10
10 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006
blaóiö
UTAN ÚR HEIMI
Reyna aö þrýsta á viðræður
Viktor Jústsjenkó, forseti Úkraínu, fundaði með ráða-
mönnum Evrópusambandsins í Finnlandi í gær. Rætt
var um mögulega aðild Úkraínu að sambandinu. Forset-
inn vonasttil að aðildarviðræður gætu hafist árið 2008.
Gefið haföi verið út að umræðan færi ekki fram.
Fá aðild að WTO
Alþjóðaviðskiptastofnunin (WTO) hefur gefið Ví-
etnömum grænt Ijós á aðild að stofnuninni. Líkur
eru taldar á að formleg aðild taki gildi í næsta
mánuði. Stjórnvöld í Hanoí vonast til þess að að-
ildin tryggi áfram hagvaxtarskeiðið í landinu.
ÍSRAEL
Neita að hafa skotið á þýskt herskip
Stjórnvöld í Israel viðurkenna að skorist hafi í odda milli
tveggja herflugvéla og þýsks herskips á þriðjudag sem er á
Miðjarðarhafinu vegna framkvæmdar vopnahléssamkomu-
lagsins milli Israels og Líbanons. Þau neita því að flugmenn-
irnir hafi skotið á þýska herskipið.
Björgun:
Vegalaus kona
Lögreglan í Reykjanesbæ kom
konu til bjargar seint aðfaranótt
föstudags en lögreglumenn-
irnir komu að henni sitjandi í
vegkanti við Grindavíkurveg í
slæmu veðri. Konan var með
sígarettu í munninum og
áfengisflösku í fanginu. Hún
var vafin inn í teppi og augljós-
lega ölvuð. Henni hafði sinnast
við gestgjafa sína og ætlaði
að ganga til Reykjavíkur.
Þjófnaður:
Mikiö um
þjófnaði
Tölvu var stolið frá heilbrigðis-
stofnun í Reykjavík á fimmtudag-
inn en atvikið átti sér stað um
miðjan dag. Þá var einnig stolið
tveimur símum í borginni og í
Vesturbænum fannst einstaldingi
eins og olíufélögin skulduðu
honum því hann tók bensín og
ók á brott án þess að borga. Einn-
ig var farið inn í fyrirtæld og
peningum stolið úr læstri hirslu.
w Trú og stjórnmál íranar
úthúða Bandaríkjamönn-
um við föstudagsbæna-
haldið í Teheran i gær.
Tvöfalda getu sína til að auðga úran:
Iranar skrefi nær kjarnorku
■ Lítil samstaða innan öryggisráös ■ Skref í átt að kjarnorkuframleiðslu
franar hafa tvöfaldað getu
sína til að auðga úran að
sögn írönsku fréttastofunar
ISNA. Reynist fótur fyrir frétt-
inni hafa þeir með þessu
tekið mikilvægt skref í að
auðga nægilega mikið
magn til þess að
standa undir raf-
orkuframleiðslu
og öðlast getu
til þess að fram-
leiða kjarn-
orkuvopn. Á
sama tíma og
þessar fregnir
berast funda
stórveldin
um útfærslu
þvingunarað-
gerða á vettvangi
öryggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna
vegna þess að klerka-
stjórnin í Teheran fellst
ekki á kröfu alþjóðasam-
félagsins um að þeir láti af
auðgun úrans.
f frétt ISNA kemur fram að önnur
skilvindusamstæða hafi verið tekin
í notkun í kjarnorkustöð í landinu
en slíkar samstæður eru notaðar
til að auðga úran. Talsmaður
franska utanríkisráðuneytis-
ins sagði í gær að stórveldin
myndu taka tillit til þess-
ara frétta við útfærslu á
þvingunaraðgerðum
en bætti því við að
fregnirnar ættu ekki
að koma á óvart.
Klerkastjórnin
hefur lýst því yfir
að hún ætli að
ljúka við að koma
upp 3 þúsund skil-
vindum í kjarn-
orkuveri sínu í
Natanz fyrir árslok.
Sérfræðingar segja að
hátt í sextíu þúsund skil-
vindur þurfi til þess að
framleiða nægjanlega mikið
af auðguðu úrani fyrir kjarna-
kljúf og telja vestrænar leyniþjón-
ustur írana vera þrjú til tíu ár frá því
að koma sér uþp nægjanlegu magni
til smíðar á kjarnorkusprengju.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
gaf á sínum tíma frönum frest til
þess að láta af auðgun úrans fyrir
31. ágúst á þessu ári. Þrátt fyrir að
þeir hafi ekki fallist á þá kröfu og
ekki hafi gengið að koma af stað við-
ræðum á milli klerkastjórnarinnar
og Evrópusambandsins um lausn
deilunnar við samningaborðið
hefur ekki enn verið gripið til að-
gerða. Kínverjar og Rússar, sem
hafa neitunarvald í öryggisráðinu,
hafa lítinn áhuga á því að gripið
verði til þvingunaraðgerða gegn
klerkastjórninni en á sama tíma
benda Bandaríkjamenn á vaxandi
ógn sem stafar af kjarnorkuáætlun
hennar. Fulltrúar ríkjanna sem
hafa neitunarvald í öryggisráðinu
hófu að funda um útfærslu þvingun-
araðgerða á fimmtudag en ljóst er af
fréttum að samstaða innan hópsins
er ekki mikil og hefur Sergei Lavrov,
utanríkisráðherra Rússlands, spáð
því að langt sé í land með að sátt um
útfærslu náist.
f
!í$
Teg 2106
eg 2064
Mikiö úrval af húsgögnum úr eik og hnotu
Teg 2111
Teg 2101
HUSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKURVEGI 66 HAFNARFIRÐI SÍMI 565 4100
Rússland:
Golfbílarnir
boönir upp
Auðmönnum mun brátt gefast
tækifæri til þess að eignast golf-
bíla sem stórmenni á borð við Ge-
orge Bush, Vladímír Pútín, Tony
Blair og aðrir leiðtogar átta helstu
iðnríkja heims hafa ekið. Golfbíl-
arnir voru notaðir á fundi leið-
toganna í Pétursborg í Rússlandi
í sumar og ákveðið hefur verið
að bjóða þá upp í næsta mánuði.
Til að eignast þessa átta
fágætu vagna þarf að bjóða
meira en níu milljónir íslenskra
króna. Að sögn rússneska blaðs-
ins Vremya Novostei verður
ágóði uppboðsins notaður til
þess að borga hluta kostnaðar
ríkisins við fundarhöldin.