blaðið - 28.10.2006, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006
blaðið
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Ertu búinn að fara
í Bókhlöðuna?
„Ég er alltaf i Bókhlöðunnl á hverjum degi við fræðigrúsk mitt."
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor
Landsbókasafnið hefur opnað aðgang að bréfasafni Halldórs Laxness
sem hefur verið lokað í þrjú árað beiðni fjölskyldu skáldsins. Hannes
hefur gefið út þrjár bækur um ævi nóbelsskáldsins.
HEYRST HEFUR...
T Tefritið Múrinn tekur Mogg-
V ann í kennslustund í sögu
kalda striðsins, en um daginn
birtist í Staksteinum Morgun-
blaðsins
pistill
þar sem
höfundur
þótti draga
upp heldur
einhliða mynd af íslandssög-
unni frá þeim tíma. Pistillinn
er í formi spurninga og þar má
til dæmis má finna eftirfarandi
spurningar sem þykja skemmti-
leg lesning og vel úthugsuð
sneið til þeirra moggamanna:
Hvaða íslenskur stjórnmála-
flokkur hefur aldrei mótmælt
neinu ofbeldisverki Banda-
ríkjastjórnar nokkurs staðar í
heiminum?
Hvers vegna var félag íslenskra
stúdenta í Kaupmannahöfn
kallað „glórulausir kommún-
istar“ í Morgunblaðinu 1951?
Hvaða dagblað varði hernað
Bandarikjamanna í Víetnam
lengst allra blaða i Evrópu?
Omar R. Valdimarsson
hittir naglann á höfuðið
þegar hann fjallar um fjöl-
miðlafárið sem skapast hefur
í kringum
dreng
kenndan
við dr.
Mister.
Hann veltir
fyrir sér
þeim skila-
boðum sem fjölmiðlarnir
Sirkus, Séð og heyrt og Bleikt
og blátt senda til unglinga
með „töff” umfjöllunum
um fárveikan alkóhólista og
dópista:
„Ekki taka dóp og drekka eins
ogsauður, þvíþá munu ung-
lingsstelpur álíta þig vera kyn-
tákn, þér mun verða rúnkað
baksviðs á rokktónleikum,
síðanferðu í langtpartí
með gröðum blaðamönnum,
flottustu píur landsins vilja
vera kœrusturnar þínar ogþú
getur sörfað á milli sófa.”
Fríðurinn minn
Skítmixari sem horfir
mikið á sjónvarpið
Haukur Már „Sjónvarp
er alveg dásamlegt,
eins og að stíga í heitt
baðkar," segir hann.
Fyrsta skáldsaga Hauks Más
Helgasonar; Svavar Pétur & 20.
öldin, hefur nýverið komið út hjá
bókaútgáfunni Nýhil. Svavar Pétur
& 20. öldin segir frá bankastarfs-
manninum eilífa, Svavari Pétri Svav-
arssyni, sem er gert að flytja líkið af
John Lennon frá New York til Kópa-
vogs, þar sem því verður stillt upp
við hafnarmynnið til að bjóða íbúa
velkomna í 20. aldar-garðinn Öld-
ina okkar. „Við sem ólumst upp á 20.
öldinni finnum að það er horfinn
heimur og mikið hefur breyst síðan
þá. Mér finnst rétt svo tímabært að
fást við nostalgíu í garð þessa ný-
liðna tíma,” segir Haukur.
„Eftir að bókin kom út er ég eigin-
lega bara búinn að detta í sjónvarpið
og ég er búinn að liggja kvefaður í
viku. Kvef er góð réttlæting til að
liggja heima hjá sér og horfa á vídeó
endalaust. Ég ligg í sófanum og hef
það gott. Þegar ég var búinn með
alla Twin Peaks-þættina eftir Lynch
horfði ég á South Park og svo Simp-
sons, Extras og Office. Þetta hefur
verið mín sáluhjálp síðustu vikuna
og er alveg rosalega nærandi. Sjón-
varp er alveg dásamlegt, eins og að
stíga í heitt baðkar.”
Haukur er enn að jafna sig á kvef-
pestinni. „Ég er búinn að vera hálf-
einrænn síðustu viku,” og hann
segir gríðarlegt sjónvarpsáhorf vik-
unnar vera tilfallandi. „Mér finnst
mjög trúlegt að ég sitji heima við
um helgina, annars er ég er ekki
vanur að plana neitt. Ég verð hér
þangað til einhver dregur mig út úr
húsi.”
Um áhugamál önnur en að horfa
á sjónvarp segir Haukur lífið bara
vera vinnu. „Djók,'’ segir hann svo.
„En ég les og skrifa og ég hangi
voðalega mikið. Stundum með
vinum mínum og stundum einn.
Ég hef ekki haft nein áhugamál
eins og golf eða körfubolta eða svo-
leiðis en ég fékk sett af penslum og
olíumálningu í jólagjöf frá systur
minni sem ég tók upp um daginn
með skelfilegum afleiðingum. Það
er alveg hræðilegt að prófa að gera
eitthvað sem maður hefur ekki
prófað áður og fatta að maður er
lélegur í því.”
„Síðan á ég eitt áhugamál sem er
leyndarmál. Ég vil ekki ljóstra upp
um það en það hefur að gera með
göt sem er búið að saga á grindverk
þannig að þau eru hlið sem enginn
veit af nema ákveðinn hópur manna
sem getur skriðið þar inn á kvöldin
en ég get ekki sagt ekki hvar því þá
verður hliðunum lokað.”
Aðspurður um hvað hann væri
að gera ef hann væri ekki að skrifa
bækur segist Haukur vilja skrifa
fyrir bíó og leikhús. „Annars hugs-
aði ég um hvort ég ætti að fara og
læra trésmíði í Iðnskólanum nú ný-
lega vegna þess að ég var kominn
með ógeð. En það væri óliklegt að
þeir hleyptu mér inn því ég er það
sem er kallað skítmixari.”
dista@bladid.net
SU DOKU talnaþraut
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig
að hvertala komi ekki nema einu sinni
fyrir i hverri linu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers niu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
1 2 6 7 5 9
3 9 6 7
9 2 6
7 6
9 4 8 1 5
3 5 1
4 6 3 8
2 8 1 9
8 2
3 5 9 4 6 1 8 7 2
1 6 8 5 7 2 4 9 3
2 4 7 3 8 9 5 6 1
4 3 2 6 5 8 7 1 9
6 8 1 7 9 4 2 3 5
7 9 5 1 2 3 6 4 8
5 7 3 8 1 6 9 2 4
8 2 4 9 3 7 1 5 6
9 1 6 2 4 5 3 8 7
eftir Jim Unger
„Hann finnur aldrei sígaretturnar,
erþað nokkuð pabbi?"
Hvað bar hæst
í vikunni?
Ágúst Guðmundsson, leikstjóri
Um þessar mundir eru allir
í kvikmyndageiranum að
gera mínútumyndir. Fjörutíu
slíkar hafa verið gerðar og eru
allar nákvæmlega ein mínúta
á lengd. Þetta er eins konar
andlegt spretthlaup. Ég lauk við
mína í vikunni og hef frumsýnt
hana daglega síðan. Annars
má nefna hvalveiðarnar sem
byrjuðu sem undarleg þjóð-
ræknisgjörð og kosningatrikk í
prófkjörsbaráttu, en nú er meira
horft á neikvæðu hliðarnar. Hafi
íslendingar rétt á að veiða hval,
sem má vel vera, þá er afar vafa-
samt hvort nýta eigi þann rétt.
Katrin Anna Guðmundsdóttir, tals-
kona Femínistafélags Islands
Það sem bar hæst í vikunni var
femínistavikan sem Femíni-
stafélagið stóð fyrir. Hún hófst
þann 24. október og lýkur i dag,
laugardag. Það var ýmislegt gert.
Atvinnu- og stjórnmálahópur
félagsins sendi til að mynda frá
sér tvær áskoranir. Skorað var á
atvinnurekendur að jafna launa-
muninn og konur hvattar til að
fara í framboð auk þess sem kjós-
endur voru minntir á að kjósa
konur í stjórnmálum. Þetta er
búin að vera mjög skemmtileg
vika, alvöru femínistavika út í
gegn!
Þorkell Helgason, orkumálastjóri
Minnisstæðastur er fýrirlestur
þar sem Einar H. Guðmunds-
son stjarneðlisfræðingur ræddi
um heimsmynd nútímans. Hvert
var upphaf alheimsins? Mikill
hvellur þar sem allt efni tók að
myndast eftir óðaþenslu rúmsins
úr einni agnarögn á ótrúlega
skömmu augnabliki. Svo er
heimurinn enn að þenjast út, millj-
örðum ára síðar. Óraviddirnar
eru slíkar að við getum aðeins
skynjað brot af alheiminum. Samt
hafa boðin frá sjónarröndinni
verið það lengi á leiðinni að við
erum í raun að horfa á upphafið.
Ekki nóg með það heldur lifum
við kannski ekki í einum alheimi.
Heimarnir kunna að vera ótelj-
andi margir og án alls orsakasam-
bands við okkar heim. Yandamál
hins daglega lifs verða hjákátleg í
þessu samhengi.