blaðið - 28.10.2006, Page 20
20 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006
blaðið
lúúmuuu
HöfuðHúpan var mölbrotin,
blóðslettur voru um allt herbergið og
blóðpollur við höfuð líksins og við hlið
þess lá koparstöng, alblóðug.
hf-Qvl
RAMIÐ I NOVEMBERMÁNUÐ11929
Með koparstöng að vopni
Klukkan níu að morgni 30. nóvember
1929 var lögreglunni í Reykjavík tilkynnt
um innbrot hjá Sveini Egilssyni hf. við
Laugaveg og var lögregla jafnframt beðin
um að kalla út lækni. Þegar lögregla kom á
vettvang var greinilegt að brotist hafði ver-
ið inn, búið var að taka rúðu úr glugga rétt
við dyrnar.
Bróðir Sveins, Jón, hafði aðstöðu í her-
bergi næst skrifstofunni þar sem peningar
voru geymdir. Þegar lögregla kom inn í her-
bergi Jóns lá hann þar örendur. Höfuðkúpan
var mölbrotin, blóðslettur voru um allt her-
bergið og blóðpollur við höfuð líksins og við
hlið þess lá koparstöng, alblóðug. Auðsætt
var að hún hafði verið notuð til að vinna á
Jóni. Öll merki voru um að hörð átök hefðu
átt sér stað í herberginu.
Á skrifstofunni voru greinileg merki um
innbrot. Búið var að opna peningaskápinn
og taka úr honum þá peninga sem þar höfðu
verið. Augljóst var að brotist hafði verið inn
um nóttina og Jóni ráðinn bani.
Við skoðun læknis kom í ljós að á höfði
Jóns voru um tuttugu sár eftir verkfæri,
hugsanlega koparstöngina. Þá voru áverkar
á hálsi sem bentu til að tilraun hefði verið
gerð til að kyrkja Jón, þó var það ekki talið
víst.
Glæpamaðurinn kunnugur
Rannsókn var hafin af öllu því afli sem
lögregla réð yfir. Umgangur var bannaður
um húsið. Við leit lögreglu fundust bílstjóra-
gleraugu á gólfinu í herbergi Jóns heitins.
Allir sem unnu hjá Sveini Egilssyni eða
höfðu unnið þar voru yfirheyrðir. Greini-
legt var að sá sem framdi glæpinn var kunn-
ungur. Lögregla spurði alla um gleraugun
en enginn kannaðist við að eiga þau og eng-
inn vissi hver gæti átt þau.
Eftir því sem lögreglan talaði við fleiri
beindist æ sterkari grunur að manni að
nafni Haukur Hjálmarsson. Hann var ní-
tján ára bílstjóri í Reykjavík og þekkti sæmi-
lega vel til hjá fyrirtækinu. I ljós kom að
hann hafði verið úti þessa nótt og aðspurður
gat hann ekki gert skynsamlega grein fyrir
hvar hann hafði verið. Lögregla gerði leit á
heimili hans. í þvottaskúffu fundust ný bíl-
stjóragleraugu, ónotuð. Þar var líka nýr sam-
festingur, enn i umbúðapappírnum.
Rispur í andliti
Lögregla leitaði áfram á heimili Hauks.
Grunur um að hann væri sá seki gerðist
áleitnari. Allt var skoðað. Mynd, þar sem
Haukur var með bílstjóragleraugu, vakti
athygli lögreglunnar. Gleraugun sem hann
bar á myndinni voru nákvæmlega eins og
þau sem fundust á morðstaðnum en alls
ekki eins og gleraugun sem fundust í þvotta-
borðsskúfunni.
Myndin varð til þess að lögreglu þótti
ástæða til að rannsaka Hauk enn frekar, en
auk þess fór ekki framhjá neinum að hann
var með rispur í andliti. Hauki var gert að
hátta sig og þá sást að önnur nærbuxna-
skálmin var talsvert blóðug að framanverðu,
fyrir ofan hné.
Allt benti til að Haukur væri sá seki. Hann
hafði greinilega verið með gleraugun þegar
hann framdi glæpinn, sennilega misst þau
af sér í átökunum við Jón, hafði ekki athug-
að að taka þau af sér og hann vissi að hann
varð að fá sér ný til að vekja sem minnsta
athygli. Þrátt fyrir mikla leit fundust ekki
þau utanyfirföt sem Haukur hafði verið í
morðnóttina. Lögreglu grunaði að Haukur
hefði verið í samfestingi morðnóttina og
þess vegna hefði hann keypt sér nýjan. En
hvar voru fötin?
Greinilegt var að leita varð betur. Það
var gert, bæði á morðstaðnum og á heimili
Hauks. Eftir langa mæðu fannst loks sam-
festingur á þaki bíls á verkstæðinu. Við skoð-
un kom í ljós að blóð var á samfestingnum
og ekki nóg með það heldur kom einn blóð-
bletturinn heim og saman við blóðblettinn
á nærbuxnaskálm Hauks.
Þegar honum var gerð grein fyrir að
hverju lögregla hefði komist gáfst hann upp
ogjátaði.
Ég skal ekki segja frá
í frásögn sinni af atburðum varð Haukur
margsaga. Þegar hann var ítrekað spurður
hélt hann sig við eftirfarandi frásögn:
Þegar Haukur var nýkominn inn á
verkstæðið kom Jón í dyragættina. Hauk-
ur greip koparstöng sem var á gólfinu og
barði Jón með henni. Haukur fór næst
inn á skrifstofuna og tók peningana. Þeg-
ar hann kom aftur inn í herbergi Jóns sat
hann særður upp við kommóðuna. Hauk
minnti að Jón hefði stunið upp: „Ég skal
ekki segja frá því.“
Haukur hikaði ekki heldur réðst aftur að
Jóni og barði hann til ólífis með stönginni.
Það sem rennir stoðum undir þessa frásögn
er að efri vör líksins var þrútin eftir högg og
því ekki útilokað að einhver tími hafi liðið
frá því Jón fékk höggið og þar til hann lést.
Dómurinn
Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að
ekki væri minnsti vafi á að Haukur hefði
myrt Jón, en tók jafnframt fram að ekki
væri hægt að segja til um hvenær ásetning-
ur um að myrða Jón hafi vaknað.
Haukur hafði ekki áður sætt ákæru eða
refsingu. Faðir hans bar að skapferli Hauks
væri þannig að hann skipti mjög sjaldan
skapi en þegar hann reiddist væri reiði hans
líkari brjálæði en reiði.
Haukur var dæmdur í aukarétti Reykja-
víkur til 16 ára fangelsis. Hæstiréttur stað-
festi dóminn.
.0
20-30% afsláttur af rúmum
Baösloppar Rúmteppasett
20% afsláttur 20-40% afsláttur
Handklæði Sængurfatnaður
30% afsláttur 20% afsláttur
Utsala
20-40% afsláttur
rumcó
Langholtsvegi 111,104 Rvk. Sími 568 7900
Opið virka daga 11-18, laugardaga 11-14