blaðið - 28.10.2006, Qupperneq 25
blaðið
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006 25
„Á öðru hverju götu-
horni mátti sjá þrettán
ára gamlar mæður með
börn sín, allt vegna þess
að kaþólska kirkjan
leyfir ekki getnaðar-
varnir. Hver stendur
fyrir þannig pólitík, í
hvers þágu er þesskonar
pólitík? Þegar maður
sér þetta verður maður
ekki einu sinni reiður.
Maðurfinnur einfald-
lega til fullkomins
vanmáttar."
Þess vegna held ég að líf án listar
sé óhugsandi. Því miður lifum við
nú þá tíma þar sem því er haldið
fram, að hægt sé að lifa án listar. Ég
fullyrði að það verði snautlegt líf og
ég spái því að það sé líf sem endist
ekki og leiði af sér ískalt og grimmt
túrbó-samfélag.
Þegar listamönnum tekst best
upp þá vísa þeir okkur leið og fá
okkur til að hugsa meira abstrakt en
við erum vön, sem hlýtur að dýpka
skilning okkar á eigin vitund. Þetta
er einmitt hlutverk listarinnar: að
gera okkur einhvers vísari. Þetta
þykir kannski gamaldags á póstmó-
dernískum tímum en mér finnst
óhugsandi annað en að listin sé
einhvers konar leiðarvísir, hvati að
innihaldsríkara lífi og um leið betra
samfélagi."
Syndugar stúlkur og
syndlausir drengir
Ertu pólitískur í hugsun?
„Já og nei. Ég skil ekki alltaf pól-
itík og í seinni tíð hefur hún alið af
sér ótrúlega einsleitnar manneskjur
og skoðanir. Ég er nýkominn frá
Suður-Ameríku og fór meðal ann-
ars til Perú. Það eru miklar öfgar í
samfélaginu í Perú þar sem íbúar
hafa búið við allt að 2000 prósent
verðbólgu. í Líma búa 13 milljónir
og í miðju fátækrahverfi er stórt
spilavíti. Fólk safnar peningum, fer
í spilavítið og veðjar á að hreppa
stóra vinninginn. Þar er vonin.
Hverskonar stjórnmálamenn hafa
lagt á ráðin um þesskonar lausnir?
Þegar ég var í Líma stóðu yfir borg-
arstjórnarkosningar.Nokkrarkonur
voru í framboði til borgarstjóra og á
stefnuskrá þeirra var að kirkjan léti
af þeim ósköpum að banna fóstur-
eyðingar og getnaðarvarnir. Á öðru
hverju götuhorni mátti sjá þrettán
ára gamlar mæður með börn sin,
allt vegna þess að kaþólska kirkjan
leyfir ekki getnaðarvarnir. Hver
stendur fyrir þannig pólitík, í hvers
þágu er þesskonar pólitík? Þegar
maður sér þetta verður maður ekki
einu sinni reiður. Maður finnur ein-
faldlega til fullkomins vanmáttar.
Það sem ég segi núna segi ég bæði
í gamni og alvöru, því það er ómögu-
legt að tala bara í alvöru: Konur
ættu að segja sig úr öllum kirkjum.
Ef við skoðum Biblíuna, þá bók sem
hefur kannski haft mest afgerandi
áhrif á okkur sem manneskjur, þá
stendur þar að konur séu dætur Ka-
ins, og því syndugar. Við drengirnir
erum hins vegar syndlausir synir
Sets sem var ekki bróðurmorðingi
og átti ekki börn með móður sinni
eins og Kain. Ég veit ekki til þess að
nokkurt kirkjuþing hafi ályktað um
að það ætti að fella þessa kennisetn-
ingu úr gildi og að viðmiðin ættu að
vera önnur. Ég ætla að kirkjan haldi
sig við þetta. Samkvæmt henni eru
drengir aldir upp sem ósyndugir
en stúlkur sem syndugar. Þetta er
pólitík sem hefur átt við í þúsundir
ára og er haldið fram af kirkjunni.
Uppeldi kynjanna er yfirskyggt af
þessari sögu og þó svo að þetta sé
eitthvað sem enginn les lengur þá er
það þarna.“
Hvaða viðhorf hefurðu til
trúarinnar?
„Ég trúi og mér finnst gott að vera
í kirkju, en ég er líka gagnrýninn á
það sem kirkjan gerir eða ætti ég
frekar að segja, gerir ekki. Það er
vegna þess að mér er ekki sama um
hana. Hún er stofnun sem við ættum
að geta leitað til í mun ríkara mæli og
ætti að vera stærri hluti af lífi okkar.
En á meðan hún er hrædd, afstöðu-
laus og tekst ekki á við samtíma sinn,
neitar að vera í samræðu við fólkið
um það hvernig líf þess geti orðið
betra, þá er hætt við að hún skipti
okkur æ minna máli og þegar það
gerist vex grimmdinni ásmegin."
Aldrei verið töffari
Aftur að listinni, listamaður sem
ætlar sér að ná árangri, þarf hann
ekki að vera sjálfhverfur á vissan
hátt ogsetja vinnuna sína íforgang?
„Jú, það þarf hann að gera. En eins
og hver annar í þessu samfélagi lifir
hann ekki utan þess, hann lifir í því.
Ungir menn segja stundum að það
sé hollt hverjum listamanni að búa
við sult og seyru. Mér finnst þetta
fjarstæða enda koma þessar fullyrð-
ingar yfirleitt frá mönnum sem búa
heima hjá foreldrum sínum eða fyr-
irvinnu og geta farið í ísskápinn án
þess að sjáist á þeirra eigin buddu.
Menn eru misstrangir við sig en ef
menn stunda listsköpun af knýjandi
þörf þá víkur allt annað. Listsköpun
er sjálfhverf iðja og það getur verið
afskaplega erfitt fyrir annað fólk að
vera samvistum við listamann sem
hugsar fyrst og fremst um sjálfan
sig. En oft fyrirgefst listamönnum
þetta háttalag. Kannski vegna þess
að oftar en ekki lánast þeim að vera
þokkalegar manneskjur í leiðinni.“
Framhald á nœstu opnu
rafmagnsrúm verð frá 84.510
dúnsœngur & koddar
náttborð verð 9.800
eldhússtólar
eldhúsborð
barstólar
borðstofa
sjónvarpsherbergið
svefnsófar
sófasett & hornsófar
stólar / casper 39.000
www. toscana. is
HÚSGÖGNIN FASTEINNIG I HÚSGAGNAVAL, HÖFN S: 478 2535